Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Fámennt ríki á jaðrinum

Posted on November 3, 2024November 3, 2024 by Fullveldi

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.

Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif á ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi sambandsins, fer þannig fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Þá einkum og sér í lagi í ráðherraráði þess. Fyrir vikið hafa fjölmennustu ríkin á meginlandinu bæði tögl og haldir.

Fámenn meginlandsríki eins og til dæmis Lúxemborg hafa ekki mikið vægi þegar ákvarðanir eru teknar innan Evrópusambandsins en einkum vegna landfræðilegra legu þeirra eru miklar líkur á því að ákvarðanir sem teknar eru einkum með tilliti til hagsmuna fjölmennustu ríkjanna henti þeim einnig ágætlega.

Fimm prósent af alþingismanni

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði vægi landsins þegar ákvarðanir væru teknar í ráðherraráði sambandsins, sem gjarnan er talið vera valdamesta stofnun þess, allajafna einungis um 0,08%. Til þess að setja það í samhengi væri það á við það að hafa einungis 5% hlutdeild í þingmanni á Alþingi.

Hvað þing Evrópusambandsins varðar væri staðan þar nokkuð betri, þar sem ekki er enn miðað algerlega við íbúafjölda ríkja sambandsins í tilfelli þess, en þó eftir sem áður alls ekki góð. Þannig fengi Íslands sex þingmenn af um 720 eins og staðan er í dag. Á við það að vera einungis með hálfan alþingismann.

Varðandi framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eiga ríki þess ekki eiginlega fulltrúa í henni enda er þeim sem þar sitja óheimilt að ganga erinda heimalanda sinna samkvæmt Lissabon-sáttmála sambandsins. Fyrir vikið eru umræddir einstaklingar í raun ekki annað en embættismenn Evrópusambandsins.

Skilur ekki veruleika eyjarskeggja

„Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins virðist, miðað við mörg lagafrumvörp hennar, vera ófær um að skilja veruleika fólks sem býr í fámennunum eyríkjum á jaðri sambandsins,“ hafði dagblaðið Times of Malta eftir Cyrus Engerer, þáverandi þingmanni Möltu á þingi Evrópusambandsins, í marz á síðasta ári.

Tilefnið var löggjöf Evrópusambandsins um kolefnisskatta á samgöngur með flugi en maltnesk stjórnvöld hafa varað mjög við áhrifum hennar á hag eyríkisins sem er líkt og Ísland mjög háð flugsamgöngum. Tilgangur löggjafarinnar er að hvetja fólk til þess að ferðast frekar með lestum en flugvélum!

Hafa má í huga í þessu sambandi að framkvæmdastjórnin, handhafi framkvæmdavalds Evrópusambandsins, hefur ein heimild til þess að leggja fram lagafrumvörp á vettvangi sambandsins. Það væri hliðstætt við það að ríkisstjórnin hér á landi gæti ein lagt fram lagafrumvörp á Alþingi en ekki alþingismenn.

Höfunun Bretlands skilaði engu

Hins vegar er ekki nóg að vera fjölmennt ríki ef viðkomandi ríki er á jaðrinum. Þannig gekk Bretland, með sínar rúmlega 67 milljónir íbúa, úr Evrópusambandinu meðal annars vegna þess að ekki hefði verið tekið nægjanlega tillit til hagsmuna Breta við ákvarðanatöku innan sambandsins að mati brezkra kjósenda.

Öll þau mál, sem brezkir ráðherrar greiddu atkvæði gegn í ráðherraráði Evrópusambandsins á árunum 1996-2014, voru engu að síður samþykkt og urðu að lögum samkvæmt niðurstöðum rannsóknar samtakanna Business for Britain frá 2014 þrátt fyrir að Bretland hafi verið eitt fjölmennasta ríki sambandsins.

Miðað við aðra rannsókn samtakanna var reynsla Breta af þingi Evrópusambandsins ekki mikið betri. Af þeim 576 þingmálum á þingi sambandsins sem meirihluti þingmanna Bretlands greiddi atkvæði gegn á árunum 2009-2914 voru 485 engu að síður samþykkt með atkvæðum þingmanna annarra ríkja þess.

Frakkar og Þjóðverjar við stýrið

Mateusz Morawiecki, þáverandi forsætisráðherra Póllands, ritaði grein í þýzka blaðið Die Welt í ágúst 2022 þar sem hann sakaði þýzk og frönsk stjórnvöld, sem réðu ferðinni innan Evrópusambandsins, um að hunza rödd Póllands. Ekki sízt varnaðarorð Pólverja í aðdraganda innrásar rússneska hersins í Úkraínu.

Morawiecki sagði að þó að gjarnan væri talað um að ríki Evrópusambandsins væru jafnrétthá réðu Þýzkaland og Frakkland í raun ferðinni. Pólland er eitt af fjölmennustu ríkjunum í Evrópusambandinu með tæplega 38 milljónir íbúa en er hins vegar, líkt og Bretland var einnig, á landfræðilegum jaðri sambandsins.

Franskir og þýzkir ráðamenn hafa í áratugi samræmt afstöðu sína áður en mál hafa verið tekin fyrir á vettvangi Evrópusambandsins. Þetta hefur sætt gagnrýni, ekki sízt frá fámennari ríkjum, á þeim forsendum að með því væru ákvarðanir í raun teknar fyrirfram og lítið svigrúm fyrir aðkomu annarra ríkja

Sitja ekki við sama borðið

Fjölmörg dæmi eru um það að fámennari ríki innan Evrópusambandsins, en engu að síður margfalt fjölmennari en Ísland, hafi orðið undir í ráðherraráði sambandsins þegar miklir hagsmunir þeirra hafa verið í húfi sem ekki hafa átt samleið með hagsmunum fjölmennustu ríkjanna. Ekki sízt í sjávarútvegsmálum.

Til að mynda þegar Írland varð að sætta sig við makrílsamning Evrópusambandsins við Færeyinga um árið sem gekk þvert á írska hagsmuni eða þegar Danir urðu gegn eigin vilja að taka þátt í refsiaðgerðum sambandsins gegn Færeyjum, hluta af danska konungdæminu, vegna síldveiða Færeyinga í eigin lögsögu.

Málflutningur Evrópusambandssinna breyttist ekki að ástæðulausu fyrir 15-20 árum síðan úr því að Ísland þyrfti að ganga í Evrópusambandið til þess að hafa þar áhrif yfir í tal um að eiga „sæti við borðið“. Fyrir utan annað er vitanlega lítið gagn að því að eiga sæti við borðið þegar ekki er setið við sama borð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 3. nóvember 2024)

(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: SvG)


Tengt efni:
Hegðaði sér eins og einræðisherra
Við erum á allt öðrum stað
Treystandi fyrir stjórn landsins?
Kæra sig ekki um evruna
„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb