Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Stærstu ríkin í algerri yfirburðastöðu

Posted on September 24, 2021 by Fullveldi

Fullyrt var í grein í Morgunblaðinu á dögunum eftir Ole Anton Bieltvedt að innan Evrópusambandsins gætu lítil ríki „stoppað framgang hvaða máls sem er. Til jafns við þau stóru, svo sem Þýzkaland, Frakkland, Ítalíu og Spán. Afstaða þeirra fámennu vegur jafn þungt og afstaða þeirra fjölmennu.“ Þá var því haldið fram að „ekkert stærra mál, stefnumörkun eða samningur“ tæki gildi án einróma samþykkis. Hér er hins vegar ekki farið með rétt mál sem er ekki sízt áhugavert í ljósi þess að skrifin snerust einkum um það að saka aðra um rangfærslur.

Fyrir það fyrsta er vert að hafa í huga að einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins, þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi þess, heyrir nánast sögunni til. Þannig hefur þeim tilvikum, þar sem krafizt hefur verið einróma samþykkis í ráðherraráði sambandsins, fækkað með hverjum nýjum sáttmála þess. Með gildistöku Lissabon-sáttmálans árið 2009 var það afnumið í fjörutíu málaflokkum. Fyrir vikið heyrir einróma samþykki í raun til undantekninga í dag og snýst um fáein málefni. Þar eru sjávarútvegsmál til dæmis ekki á meðal.

Kallað hefur verið eftir því að tekin verði frekari skref í þá átt að fækka þeim fáu tilvikum þar sem enn er krafizt einróma samþykkis í ráðherraráði Evrópusambandsins. Meðal annars bæði af framkvæmdastjórn sambandsins og pólitískum forystumönnum í ríkjum þess. Fyrr á þessu ári kallaði Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýzkalands, til að mynda eftir afnámi einróma samþykkis í utanríkismálum. Sagði hann nauðsynlegt að Evrópusambandið gæti tekið ákvarðanir í þeim efnum jafnvel þó einhver ríki sambandsins væru þeim andvígar.

Vægi ríkja einkum eftir íbúafjölda

Hversu fjölmenn einstök ríki Evrópusambandsins eru ræður mestu um möguleika þeirra á að hafa áhrif þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi þess. Langflestar ákvarðanir í ráðherraráðinu eru þannig til dæmis háðar því að 55% ríkjanna (einu ríki fleiri en einfaldur meirihluti) standi að baki þeim með 65% íbúa sambandsins. Í öðrum tilfellum þarf annars vegar einfaldan meirihluta ríkjanna og hins vegar 72% þeirra og 65% íbúanna. Þar hafa fjölmennustu ríkin eðli málsins samkvæmt langmest vægi en þau fámennustu að sama skapi afar lítið.

Þannig hefur Þýzkaland 18,5% af íbúafjölda Evrópusambandsins og Frakkland um 15%. Saman eru ríkin tvö með um helming þess íbúafjölda sem allajafna þarf til þess að taka ákvarðanir í ráðherraráðinu. Ef við bætum Ítalíu og Spáni við hafa ríkin fjögur um 58% íbúa sambandsins. Þá vantar aðeins ellefu ríki af þeim 23 sem eftir eru og er þá nánast aukaatriði hver þau eru með tilliti til íbúafjölda vegna fjölmennis stærstu ríkjanna. Þó öll hin ríkin 23 tækju sig saman þyrfti þau engu að síður tvö af stærstu ríkjunum fjórum í lið með sér til þess að taka ákvarðanir. Til samanburðar væri Ísland fámennasta ríkið innan Evrópusambandsins með 0,08% íbúafjöldans.

Hins vegar skiptir ekki síður máli að einungis þarf fjögur ríki til þess að hindra ákvarðanatöku í ráðherraráðinu svo framarlega að þau hafi yfir 35% íbúafjöldans innan Evrópusambandsins á bak við sig. Með öðrum orðum geta ríkin fjögur saman stöðvað hvaða mál sem er í ráðinu fyrir utan í þeim til þess að gera fáu tilfellum þar sem enn þarf einróma samþykki og þar sem einungis þarf einfaldan meirihluta. Raunar nægir Þýzkalandi og Frakklandi liggur við hvaða tvö ríki sem eru enda vantar þau einungis um 1,6% til þess að ná yfir 35% íbúafjöldans.

Ríki ESB sitja ekki við sama borð

Viðmiðið er að sama skapi fyrst og fremst íbúafjöldi ríkjanna í tilfelli þings Evrópusambandsins. Þannig hefur Þýzkaland 96 þingmenn af um 700 en til samanburðar hefði Ísland sex þingmenn innan þess. Þar er ekkert einróma samþykki heldur gildir einfaldlega meirihlutinn. Hvað framkvæmdastjórn sambandsins varðar er fullyrt í greininni að öll ríki þess eigi sinn fulltrúa í henni. Hið rétta er að þó ríkin tilnefni einn fulltrúa hvert er tekið skýrt fram í Lissabon-sáttmálanum að þeir eigi ekki að fylgja fyrirmælum frá ríkisstjórnum ríkjanna.

Með öðrum orðum er ljóst að stærstu ríki Evrópusambandsins eru bæði í lykil- og yfirburðastöðu þegar kemur að ákvarðanatöku á vettvangi sambandsins. Bæði þegar kemur að því að samþykkja mál og að hindra samþykkt þeirra. Við það bætist að fulltrúar stærstu ríkjanna funda gjarnan og samræma áherzlur sínar áður en mál eru tekin formlega fyrir innan Evrópusambandsins. Eins er ljóst að innan sambandsins gæti Ísland ekki stöðvað nein mál að undanskildum þeim fáu og fækkandi tilfellum þar sem einróma samþykki er enn áskilið.

Deginum ljósara er þannig að fullyrðingar greinarhöfundar, um að lítil ríki innan Evrópusambandsins geti „stoppað framgang hvaða máls sem er“, samrýmast á engan hátt raunveruleikanum. Þvert á móti hefur enginn skortur verið á tilfellum þar sem margfalt fjölmennari ríki en Ísland hafa orðið undir í ráðherraráðinu og þar með talið í tilfellum þar sem um stór hagsmunamál hefur verið að ræða fyrir þau. Þar á meðal í sjávarútvegsmálum. Fyrir utan annað er vitanlega lítið gagn að sæti við borðið þegar ekki er setið við sama borð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður í Morgunblaðinu 24. september 2021)

(Þinghús Evrópusambandsins í Strasbourg. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Frjáls viðskipti við allan heiminn
Reglur ESB víki fyrir norskum lögum
Hugvekja Styrmis Gunnarssonar
Hagsmunir Íslands miklu betur tryggðir
Svipað margir vilja í ESB án EES

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb