Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Klæðaleysi keisarans

Posted on July 18, 2024November 8, 2024 by Fullveldi

Hvar væri maður ef ekki væri fyrir menn eins og Ole Anton Bieltvedt sem veitir manni hvert tilefnið á fætur öðru til þess að stinga niður penna og fjalla um Evrópumálin. Málaflokk sem varðar mikilvæga hagsmuni okkar enda snýst hann fyrst og fremst um það hvort við förum áfram með valdið yfir okkar eigin málum eða framseljum það til Evrópusambandsins þar sem vægi okkar færi einkum eftir íbúafjölda landsins.

Málflutning Oles til þessa hef ég ítrekað hrakið, og einkum með gögnum Evrópusambandsins sjálfs, en mér er ljúft og skylt að halda því áfram á meðan tilefni gefast. Ekki þó hans vegna, enda ljóst af framgöngu hans að hann tekur ekki mark á rökum sem henta honum ekki, ekki einu sinni þó þau komi frá sambandinu, heldur vegna annarra sem taka rökum og hafa áhuga á því að kynna sér staðreyndir málsins.

Viðbrögð Oles hafa verið þau að birta í sífellu efni sem þegar hefur verið svarað og hrakið. Mögulega telur hann að birti hann það nógu oft fari fólk að halda að um sannleika sé að ræða. Ég skil fyrir vikið afskaplega vel að Ole skuli taka það óstinnt upp að ég skulu leyfa mér, svo notað sé orðalag hans, að vekja athygli fólks á því að keisarinn sé klæðalaus. Ég get hins vegar illa borið ábyrgð á klæðaleysi hans.

Þetta yrði svonefnt „sæti við borðið“

Telja má nánast á fingrum annarrar handar þá málaflokka sem einróma samþykki, stundum kallað neitunarvald, á enn við um þegar teknar eru ákvarðanir í ráðherraráði Evrópusambandsins. Hér áður var það reglan en heyrir nú til undantekninga. Þar á meðal eru til dæmis hvorki sjávarútvegs- né orkumál sem skipta okkur miklu. Þetta hefur eðli málsins samkvæmt komið sér verst fyrir fámennustu ríki sambandsins.

Kæmi til inngöngu í Evrópusambandið fengi Ísland sex þingmenn á þing þess af 720 sem er sambærilegt við það að hafa einungis hálfan þingmann á Alþingi. Staðan yrði tíu sinnum verri innan ráðherraráðs sambandsins þar sem vægi landsins yrði allajafna 0,08% eða á við 5% hlutdeild í alþingismanni. Til að mynda nýtist reiknivél á vefsíðu ráðsins sjálfs ágætlega í slíkum útreikningum. Þetta yrði „sætið við borðið“.

Hvað framkvæmdastjórn Evrópusambandsins varðar eiga ríki þess ekki eiginlega fulltrúa í henni enda er þeim sem þar sitja óheimilt samkvæmt Lissabon-sáttmálanum, grunnlöggjöf þess, að ganga erinda heimalanda sinna. Þeir eru einfaldlega embættismenn sambandsins. Varðandi forseta þings Evrópusambandsins, sem Ole nefnir, er hann ekki fulltrúi heimalands síns heldur þingflokksins sem hann tilheyrir innan þingsins.

Skilyrði en ekki samningsmarkmið

Vægi ríkja Evrópusambandsins verður eðli málsins samkvæmt ekki samið um við einstök umsóknarríki enda um að ræða heildarfyrirkomulag sem nær til allra ríkja þess. Seint yrði samþykkt af ríkjum sambandsins að allt annar mælikvarði gilti um Ísland í þeim efnum en þau sjálf. Hitt er annað mál að jafnvel þó vægi landsins yrði margfalt á við íbúafjöldann dygði það skammt enda yrðum við langfámennsta ríkið innan þess.

Ég hef vísað til ýmissra gagna frá Evrópusambandinu, þar á meðal bæklings sem það hefur gefið út til útskýringar á umsóknarferlinu og viðræðuramma sambandsins vegna umsóknar Íslands á sínum tíma en fullt efnislegt samræmi er þar á milli. Ole hefur haldið því fram án rökstuðnings að þar sé einungis um samningsmarkmið Evrópusambandsins að ræða. Það samrýmist hins vegar engan veginn gögnum þess.

Til að mynda voru viðræðurnar vegna umsóknar Íslands samþykktar af ráðherraráði Evrópusambandsins sumarið 2010 á þeim forsendum að þær færu fram innan viðræðurammans og að landið uppfyllti þau skilyrði sem þar væri kveðið á um. Viðræður við Tyrkland, sem Ole nefnir, hafa tekið langan tíma fyrst og fremst vegna þess að Tyrkir hafa ekki uppfyllt skilyrði sambandsins sem bundin eru í regluverk þess.

Semjum okkur ekki frá yfirstjórn ESB

Varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins og yfirstjórn þess eru ekki og hafa ekki verið í boði þegar umsóknarríki eiga í hlut. Dæmin sem Ole hefur nefnt í tilfelli umsóknarríkja og eiga erindi við veruleikann eru í öllum tilfellum sérstakar aðlagaðnir sem Ole kýs að kalla sérlausnir en þær verða að rúmast inna regluverks sambandsins og breyttu enn fremur engu um það að við færum undir vald þess.

Fram kemur þannig í viðræðuramma Evrópusambandsins að Ísland yrði taka yrði upp allt regluverk þess og að sérstakar aðlaganir yrðu að rúmast innan ramma regluverksins sem fyrr segir. Þá yrði tímabundin aðlögun að því að vera „takmörkuð að tíma og umfangi“ og væri einungis í boði í undantekningartilfellum. Í öllum tilfellum mætti slíkt hvorki fela í sér breytingar á reglum sambandsins né stefnumörkun þess.

Deginum ljósara er þannig að sérstakar aðlaganir væru engan veginn til þess fallnar að tryggja hagsmuni okkar Íslendinga kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið á einhverjum tímapunkti í framtíðinni enda þyrftu þær að rúmast innan regluverks sambandsins sem fyrr segir og breyttu engu um það að við færum undir vald þess. Það er einfaldlega ekki í boði að semja sig frá yfirstjórn Evrópusambandsins.

„Vitanlega er ESB ekki lokaður pakki“

Fyrir liggur einfaldlega í öllum meginatriðum hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér. Líkt og Uffe Ellemann-Jensen heitinn, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í sambandið, orðaði það um árið: „Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið.“

Hið sama á til að mynda við um Olli Rehn, þáverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins, þegar hann var inntur eftir því haustið 2009 hvort spil sambandsins yrðu loks lögð á borðið og upplýst hvað væri í boði eftir að sótt hafði verið um inngöngu í það: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk sambandsins og meginreglur þess.“

Ég hef fullan skilning á því að það þvælist fyrir Ole að svara skrifum mínum efnislega. Ekki sízt í ljósi þess að þau byggja einkum á gögnum frá Evrópusambandinu sjálfu og ummælum forystumanna þess. Telji hann hins vegar að ekkert sé að marka upplýsingar frá sambandinu geta það ekki beinlínis talizt meðmæli með inngöngu í það. Eðlilega vaknar þá sú spurning hvað fleira sé ómarktækt sem þaðan kemur?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 18. júlí 2024)

(Ljósmynd: Þinghús þings Evrópusambandsins í Strabourg. Eigandi Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hvernig og hvenær en ekki hvort
Reglurnar eru óumsemjanlegar
Þegar rökin skortir
„Þið vitið hvað þið væruð að fara út í“
Kaupin á eyrinni

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb