Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Spurning sem ekki er hægt að svara?

Posted on August 27, 2024October 29, 2024 by Fullveldi

Hreyfingar Evrópusambandssinna á Íslandi hafa um langt árabil látið gera skoðanakannanir fyrir sig þar sem spurt hefur verið meðal annars um afstöðu fólks til þess hvort ganga eigi í Evrópusambandið. Síðast fyrr í sumar. Fyrir það hafa verið greiddar háar fjárhæðir. Á sama tíma er um að ræða spurningu sem þær hafa viljað meina að ekki sé hægt að svara fyrr en samningur um inngöngu í sambandið liggi fyrir.

Hins vegar hafa Evrópusambandssinnar sjálfir fyrir löngu gert upp hug sinn í þeim efnum og ef niðurstöður kannana hafa sýnt meirihluta fyrir inngöngu í Evrópusambandið hefur enginn fyrirvari verið settur um það að fólk vissi í raun ekki hvað það væri að tala um. Líkt og þegar þær hafa verið á hinn veginn. Með öðrum orðum veit fólk greinilega eingöngu um hvað það er að tala ef það tekur undir með þeim.

Spil ESB liggja þegar á borðinu

Veruleikinn er sá að fyrir liggur í öllum meginatriðum hvað innganga í Evrópusambandið þýddi. Eins og Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og mikill hvatamaður inngöngu Íslands í sambandið, orðaði það hérna um árið: „Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið.“

Hið sama á til dæmis við um Olli Rehn, þáverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins, þegar hann var inntur eftir því haustið 2009 hvort spil sambandsins yrðu loks lögð á borðið og upplýst hvað væri í boði eftir að umsókn um inngöngu hefði verið lögð fram: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk sambandsins og meginreglur þess.“

„Samningaviðræður“ villandi

Til þess að útskýra fyrir almenningi ferlið sem sem fer í gang þegar ríki sækja um inngöngu í Evrópusambandið gaf framkvæmdastjórn sambandsins út sérstakan bækling sem ber heitið „Understanding enlargement“. Þar segir meðal annars að viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu í Evrópusambandið sé geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í sambandinu.

Tekið er fram að ekki sé um eiginlegar samningaviðræður að ræða: „Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum Evrópusambandsins – um 100.000 blaðsíður af þeim. Og þessar reglur (einnig þekktar undir heitinu acquis, franska fyrir „það sem hefur verið samþykkt“) eru ekki umsemjanlegar.“

Fimm prósent af alþingismanni

Með öðrum orðum verður allt það sem samið er um að rúmast innan regluverks Evrópusambandsins. Enn fremur er enginn afsláttur gefinn af því að valdið yfir flestum málum ríkja færist til stofnana þess. Þar á meðal og ekki sízt í sjávarútvegs- og orkumálum. Þá er ekki í boði að semja um vægi einstakra ríkja sambandsins við töku ákvarðana innan þess sem fer fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru.

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði vægi landsins þegar ákvarðanir væru teknar í ráðherraráði þess allajafna einungis um 0,08%. Sambærilegt við einungis 5% hlutdeild í þingmanni á Alþingi. Á þingi sambandsins fengi Ísland sex þingmenn af um 720 eins og staðan er í dag. Á við hálfan alþingismann. Þá eru þeir sem sitja í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins einungis embættismenn þess.

Séríslenzkur blekkingarleikur

Mjög langur vegur er einfaldlega frá því að Evrópusambandið sé einhvers konar leynifélag sem ekkert sé hægt að vita um án þess að sækja um inngöngu í það. Líkt og forystumenn þess hafa ítrekað bent á liggur fyrir í öllum meginatriðum hvað felst í því að ganga þar inn. Ekkert er til sem heitir að kíkja í pakkann í þeim efnum. Þar er einungis um að ræða séríslenzkan blekkingarleik hérlendra Evrópusambandsinna.

Hafi Evrópusambandssinnar í reynd trú á málstað sínum ætti varla að vefjast fyrir þeim að tala fyrir inngöngu í Evrópusambandið eins og hún er í stað þess að reyna að draga upp þá mynd að í inngöngunni felist eitthvað annað en einfaldlega innganga í það. Telji þeir enn fremur veruleg frávik frá regluverki sambandsins forsendu þess að ganga þar inn hlýtur sú spurning að vakna hvort þeir vilji það í raun.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 27. ágúst 2024)

(Ljósmynd: Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Tala eingöngu um vextina
Tugir milljarða evra til Pútíns
Fimm prósent af alþingismanni
Hættu að spyrja um spillinguna
Hvar er restin af könnuninni?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb