Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Sporin hræða vissulega

Posted on October 29, 2024October 29, 2024 by Fullveldi

Viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, við áhyggjum kjósanda af því að Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarstjóri um árabil, taki líklega sæti á Alþingi fyrir hönd flokksins eftir þingkosningarnar eru auðvitað afar skiljanleg í ljósi þess hvernig haldið hefur til að mynda verið á fjármálum og skipulagsmálum borgarinnar undir forystu hans í samstarfi við einkum Pírata og Viðreisn sem meðal annars á stóran þátt í verðbólgunni hér á landi undanfarin misseri. Hvað sem þannig líður viðbrögðum Kristrúnar er í öllu falli ljóst að sporin hræða vissulega í þeim efnum.

Tveir helztu drifkraftar verðbólgunnar hér á landi undanfarin misseri hafa annars vegar verið kostnaður vegna húsnæðis og hins vegar innflutt verðbólga. Aðallega frá ríkjum Evrópusambandsins enda mest flutt inn þaðan. Verðbólga jókst þar ekki vegna aukinna umsvifa heldur fyrst og fremst vegna glórulausra ákvarðana evrópskra ráðamanna í orkumálum sem varð til þess að ófá ríki sambandsins urðu háð orku frá Rússlandi. Þegar loks var brugðist við í þeim efnum, þó enn sé flutt inn mikið af rússneskri orku, leiddi það til hærra orkuverðs, þar með hærri framleiðslukostnaðar og loks hærra vöruverðs sem síðan skilaði sér hingað.

Bera mikla ábyrgð á verðbólgunni

Hækkandi húsnæðisverð hefur fyrst og fremst verið afleiðing skorts á húsnæði, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en einnig meiri kostnaðar vegna innfluttra byggingavara. Aftur fyrst og fremst frá ríkjum Evrópusambandsins. Skortinn á húsnæði má síðan einkum rekja til samkomulags sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu 2015 um vaxtarmörk svæðisins sem hindrar vöxt þess umfram það sem þar er kveðið á um. Líkt og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, benti á í grein í síðasta mánuði voru forsendur samkomulagsins stórlega vanmetnar miðað við þróun fólksfjöldans. Hins vegar neitar Reykjavíkurborg alfarið að hvika frá þeim.

Frá því áður en samkomulagið frá 2015 var gert hefur Samfylkingin farið fyrir meirihlutanum í Reykjavík. Píratar hafa að sama skapi verið hluti hans frá 2014 og Viðreisn undanfarin sex ár. Vel áður en verðbólgan fór á skrið. Með öðrum orðum er ljóst að verðbólgan er að miklu leyti annars vegar í boði meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur og Evrópusambandsins. Fyrir vikið er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að Samfylkingin og Viðreisn skuli hafa þá stefnu að Ísland gangi í sambandið, með öllu sem því fylgdi, til þess að bregðast við ástandi sem er að miklu leyti afleiðing ákvarðana ráðamanna í Brussel og fulltrúa flokkanna sjálfra.

Dökk mynd af efnahagsmálum ESB

Mögulega kemur fyrir vikið ekki á óvart að stefna Samfylkingarinnar og Viðreisnar sé að komast til valda til þess að koma stjórn landsins úr landi í hendur einstaklinga sem íslenzkir kjósendur hefðu í raun ekkert yfir að segja, enda fer vægi ríkja innan Evrópusambandsins fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra, en þó í flestum tilfellum einstaklinga sem hafa alls ekkert lýðræðislegt umboð frá kjósendum. Ókjörinna embættismanna sambandsins. Sömu einstaklinga og meðal annars bera mikla ábyrgð á því að gera ófá ríki Evrópusambandsins háð rússneskri orku og stuðla að viðvarandi efnahagslegri stöðnun innan þess árum saman.

Vægast sagt döpur staða efnahagsmála innan Evrópusambandsins, og þá einkum og sér í lagi evrusvæðisins, er raunar slík að dregin hefur verið upp afar dökk mynd í þeim efnum í skýrslum sem unnar hafa verið fyrir sambandið sjálft. Lesa má til að mynda í einni slíkri sem samin var af Mario Draghi, fyrrverandi bankastjóra Seðlabanka Evrópusambandsins, og birt í haust að efnahagsleg hnignun sambandsins hafi hafizt með tilkomu evrunnar fyrir um aldarfjórðungi. Ítrekaðar tilraunir síðan til þess að reyna að snúa þeirri þróun við hafa engu skilað. Nokkuð sem minnir óneitanlega á valdatíð Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 29. október 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hegðaði sér eins og einræðisherra
Við erum á allt öðrum stað
Treystandi fyrir stjórn landsins?
Kæra sig ekki um evruna
„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb