Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hefðu getað minnkað verðbólguna

Posted on November 29, 2024November 29, 2024 by Fullveldi

Verðbólgan hefur verið á stöðugri niðurleið undanfarna mánuði og var þannig 4,8% í nóvember miðað við 10,2% þegar hún var mest hér á landi. Sem þó var minna en hún fór mest í á evrusvæðinu á sínum tíma sem var 10,6%. Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir því að verðbólgan haldi áfram að lækka næstu mánuðina og verði komin niður í 4% í febrúar, 1,5 prósentustigi yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans.

Með öðrum orðum fer verðbólgan jafn og þétt minnkandi óháð þingkosningunum á morgun og vextir munu halda áfram að lækka í kjölfarið. Fyrir vikið er athyglisvert að helzta kosningaloforð Viðreisnar og Samfylkingarinnar sé að lækka verðbólguna. Til að mynda hefur Viðreisn auglýst grimmt undir slagorðinu: Lækkum þessa verðbólgu. Það er vitanlega ekki sérlega erfitt að lofa einhverju sem er þegar að eiga sér stað.

Kaus að sverja af sér Dag B. Eggertsson

Hitt er svo annað mál að Viðreisn og Samfylkingin hefðu fyrir margt löngu getað gripið til aðgerða til þess draga verulega úr verðbólgunni. Flokkarnir hafa þannig báðir verið við stjórnvölinn í Reykjavíkurborg frá því fyrir núverandi verðbólgutímabil en helzta ástæða verðbólgunnar hefur verið hækkandi húsnæðiskostnaður. Einkum vegna mikils skorts á íbúðarhúsnæði og lóða undir það. Þá aðallega í höfuðborginni.

Viðreisn og Samfylkingin hafa þannig borið verulega ábyrgð á verðbólgunni. Viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í Spursmálum á mbl.is voru þau að hún hefði ekki verið í borgarstjórn Reykjavíkur og sverja af sér Dag B. Eggertsson, oddvita flokksins í borginni og nú frambjóðanda hans til Alþingis, á meðan Viðreisnarmenn hafa sagt flokkinn engu hafa ráðið vegna fámennis í borgarstjórn.

Verðbólga í boði Evrópusambandsins

Framan af átti innflutt verðbólga, aðallega frá ríkjum Evrópusambandsins, enn fremur stóran þátt í verðbólgunni í krafti hærra verðlags á innfluttum vörum þaðan. Verðbólgan á evrusvæðinu, sem fór fyrr upp en hér á landi og fyrir vikið fyrr niður, var meiri en hér þegar hún var mest og var einkum afleiðing glórulausra ákvarðana evrópskra stjórnmálamanna sem gerði mörg ríki sambandsins háð rússneskri orku.

Flokkarnir tveir eru sem kunnugt er samkvæmt stefnu sinni hlynntir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þó þeir hafi báðir forðast að minnast á málið í kosningabaráttunni. Það er engin tilviljun að fylgi Samfylkingarinnar fór að aukast samhliða því sem flokkurinn setti sambandið á ís fyrir tveimur árum og fylgi Viðreisnar eftir að forystumenn flokksins hættu nánast að tala um málið fyrir nokkrum vikum síðan.

Staðan getur sannarlega versnað

Viðreisn og Samfylkingin hafa að sama skapi sagst ætla að taka á ríkisfjármálunum. Við vitum hins vegar hvernig til hefur tekizt hjá þeim í Reykjavík. Afsökunin er líklega sú sama þar. Kristrún sverji af sér Dag og Viðreisn segist engu hafa ráðið í meirihlutanum í borgarstjórn. Telja verður afar ólíklegt að kjósendur vilji að haldið verði á ríkisfjármálunum eins og fjármálum borgarinnar sem hefur nær verið sett á hausinn.

Hvaða líkur geta hins vegar talizt á því að Viðreisn og Samfylkingin muni halda öðruvísi á málum í ríkisstjórn en flokkarnir hafa gert í Reykjavík? Hvers vegna hefur staðan í borginni gert lítið annað en að versna ef þessum flokkum er treystandi fyrir ríkisfjármálunum? Við höfum vítið í Reykjavík til þess að varast. Margir eru skiljanlega ósáttir við ýmislegt í ríkisrekstrinum til þessa. En staðan getur sannarlega versnað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 29. nóvember 2024)

(Ljósmynd: Frá Reykjavík. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hægt með krónunni?
Forðast að tala um meginstefnuna
Verðbólga í boði Viðreisnar
Frjálslynd Viðreisn?
Verður það sama gert aftur?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb