Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hæfasti einstaklingurinn

Posted on June 1, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Forsetakosningarnar sem fram fara í dag snúast fyrst og fremst um hæfasta einstaklinginn til þess að gegna embætti forseta Íslands að mati hvers og eins. Kosningarnar eru persónukjör. Þær eru í raun atvinnuviðtal eins og ýmsir hafa nefnt réttilega. Við kjósendur erum sameiginlega að ráða í starfið. Hver og einn greiðir atkvæði með þeim sem hann vill sjá sem forseta lýðveldisins og síðan liggur niðurstaðan fyrir.

Við Katrín Jakobsdóttir höfum þekkst í hátt í tvo áratugi og höfum við ýmis tækifæri rætt saman um pólitík. Gagnkvæmt traust hefur ríkt á milli okkar þrátt fyrir að við höfum verið staðsett á ólíkum stöðum í stjórnmálunum. Sem er ekki sízt ástæða þess að ég hyggst kjósa hana í forsetakosningunum. Ég tel hana einfaldlega hæfasta einstaklinginn af þeim sem sækjast eftir því að gegna embættinu.

Mér hefur alltaf þótt virðingarvert hversu reiðubúin Katrín hefur augljóslega verið að hlusta á og íhuga mín sjónarmið. Jafnvel þó gjarnan væri um að ræða nálgun sem ekki samrýmdist hennar persónulegu sýn á lífið og tilveruna. Enda er ég hægrimaður og hún til vinstri. Þetta hafa fjölmargir aðrir nefnt, bæði í umræðunni í aðdraganda kosningabaráttunnar og á liðnum árum. Þetta á því miður ekki við um alla.

Talað hefur verið um það að Katrín sé umdeild. Vitanlega. Forystumenn verða alltaf umdeildir enda er það óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að standa í stafni og þurfa að geta tekið umdeildar og erfiðar ákvarðanir. Það þarf forseti lýðveldisins líka að geta gert. Á sama tíma hefur Katrín sýnt einstaka hæfileika til þess að vinna með og virkja fólk úr ólíkum áttum til þess að finna lausnir á sameiginlegum verkefnum.

Ég ætla að kjósa Katrínu sem næsta forseta Íslands. Þann einstakling sem ég tel hæfastan af þeim sem í boði eru til þess að gegna embættinu. Ég vona að aðrir kjósendur kjósi að sama skapi þann einstakling sem þeir telja hæfastan. Ég hygg að flestir ættu að geta tekið undir þá nálgun og ekki sízt þeir sem eru líkt og ég hægramegin í stjórnmálunum. Lýðræðið sker svo úr um það hver verður næsti forseti lýðveldisins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 1. júní 2024)

(Ljósmynd: Bessastaðir. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Tveir forsetar fyrir einn
Dýrmætt veganesti í forsetaembættið
Hvaðan kemur fylgi Katrínar?
Mesti stjórnmálamaðurinn?
Vill ekki lengur íslenzkan her?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb