Fyrir sex árum síðan fann Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sig knúna til þess að að rita grein á Kjarnann til þess að koma á framfæri áhyggjum sínum af því að víglínan í umræðum um Evrópumálin hér á landi væri að færast. Frá því að hverfast um það hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið yfir í það að snúast um það hvort æskilegt væri að landið yrði áfram aðili að EES-samningnum.
Category: EES
Mótleikur ESB vegna Icesave-málsins
Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða ríkisábyrgð á tryggðum innistæðum í bönkum. Hérlend stjórnvöld hafa lagt áherzlu á mikilvægi þess að Ísland fái undanþágu frá ákvæðum tilskipunarinnar um ríkisábyrgð en um leið viðurkennt að afar ólíklegt sé að slík undanþága verði veitt.
Drögumst aftur úr vegna EES
Forystumenn Evrópusambandsins hafa ekki séð sér annað fært á undanförnum árum en að gangast við þeim veruleika að sambandið sé hnignandi markaður miðað við það sem er að gerast víðast hvar annars staðar og að regluverks þess sé iðulega afar íþyngjandi. Lausn þeirra hefur hins vegar allajafna verið meiri samruni innan Evrópusambandsins, meira framsal valds, meiri miðstýring – og meira regluverk.
Ríkisábyrgð á 1.359 milljarða króna?
Tryggðar innistæður í fjármálastofnunum á Íslandi námu 1.359 milljörðum króna um síðustu áramót samkvæmt upplýsingum frá Tryggingasjóði vegna fjármálafyrirtækja (TVF) og jukust þær um rúma 70 milljarða á síðasta ári. Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi í gegnum EES-samningninn mun það að öllum líkindum þýða ríkisábyrgð á tryggðum innistæðum.
Höfum aldrei notið fulls tollfrelsis
Meginástæða þess að ákveðið var á sínum tíma að Ísland skyldi gerast aðili að EES-samningnum var sú að við Íslendingar áttum að njóta sérstakra kjara fyrir sjávarafurðir inn á markað Evrópusambandsins umfram þá sem ekki ættu aðild að honum. Einkum og sér í lagi með tilliti til tolla. Á móti áttum við að taka upp regluverk sambandsins um innri markað þess. Var það réttlætt með sérstöku kjörunum.
Með of mikil völd
Meirihluti Norðmanna telur Evrópusambandið hafa of mikil völd yfir norskum málum í gegnum aðild Noregs að EES-samningnum. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið Sentio gerði fyrir norsku samtökin Nei til EU. Samkvæmt könnuninni eru 57% þeirrar skoðunar en 27% því ósammála. Sé aðeins miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti telja tæp 68% völd sambandsins of mikil.
Vilja fríverzlunarsamning í stað EES
Meirihluti þeirra Norðmanna sem afstöðu taka með eða á móti vilja skipta aðild Noregs að EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar í landi. Tveir af hverjum fimm aðspurðum tóku ekki afstöðu í könnuninni en ef miðað er við þá sem það gerðu eru rúm 60% hlynnt því að skipta EES-samningnum út fyrir fríverzlunarsamning en tæp 40% mótfallin.
Hindrar fríverzlun við Bandaríkin
Flest bendir til þess að fríverzlunarsamningur við Bandaríkin sé ekki í kortunum á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum. Vandséð er þannig að stjórnvöld í Washington væru reiðubúin til þess að fallast á það að innfluttar bandarískar vörur til Íslands þyrftu að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem oft er mjög ólíkt því sem gerist vestra og gjarnan beinlínis hannað til þess að vernda framleiðslu innan þess.