Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Mótleikur ESB vegna Icesave-málsins

Posted on April 10, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða ríkisábyrgð á tryggðum innistæðum í bönkum. Hérlend stjórnvöld hafa lagt áherzlu á mikilvægi þess að Ísland fái undanþágu frá ákvæðum tilskipunarinnar um ríkisábyrgð en um leið viðurkennt að afar ólíklegt sé að slík undanþága verði veitt.

Tryggðar bankainnistæður á Íslandi námu 1.359 milljörðum króna um síðustu áramót samkvæmt upplýsingum frá Tryggingasjóði vegna fjármálafyrirtækja (TVF) og jukust þær um rúma 70 milljarða á síðasta ári. Í byrjun árs 2021 voru tryggðar innistæður á Íslandi um 1.000 milljarðar króna og hafa þær þannig aukizt um þriðjung á undanförnum þremur árum eða að meðaltali um rúmlega eitt hundrað milljarða á ári.

Til þess að setja tryggðar innistæður um áramótin í samhengi námu þær um þriðjungi af vergri landsframleiðslu síðasta árs og hærri fjárhæð en áætlaðar heildartekjur ríkissjóðs á síðasta ári. Þá er vert að hafa það í huga að í tryggingasjóðnum er að finna 20 milljarða króna til þess að mæta ábyrgðum vegna innistæðutrygginga reyni á þær samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum eða um 1,5% af tryggðum innistæðum.

Ríkisábyrgð á innistæðum fest í sessi

Málið snýst í raun um kjarna Icesave-deilunnar enda ljóst að Ísland hefði tapað henni ef umrædd tilskipun Evrópusambandsins hefði verið í gildi hér á landi þegar deilan kom upp á sínum tíma. Deilan snerist um það hvort ríkisábyrgð væri á innistæðum í Icesave-netbanka Landsbanka Íslands í Bretlandi og Hollandi samkvæmt eldri tilskipun. Fór svo að lokum að EFTA-dómstóllinn úrskurðaði 2013 að svo væri ekki.

Með hliðsjón af efni tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar er ljóst að um ríkisábyrgð er að ræða sem að auki er afstaða sambandsins. Þannig segir í 10. grein hennar að ríki skuli sjá til þess að innistæðutryggingasjóðir séu í stakk búnir til þess að standa við skuldbindingar sínar og tryggja enn fremur aðgengi þeirra að skammtímafjármögnun til þess að mæta kröfum á hendur þeim.

Markmiðið með nýrri tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar er þannig ekki sízt að bregðast við Icesave-málinu og dómi EFTA-dómstólsins. Vert er að hafa í huga í því sambandi að Evrópusambandið stefndi sér inn í málið gegn Íslandi fyrir dómstólnum og tók þannig formlega afstöðu gegn landinu. Með tilskipuninni er afstaða sambandsins í málinu, að ríkisábyrgð sé á innistæðum, fest í sessi lagalega.

Evrópusambandið alls staðar við stýrið

Tilskipunin hefur ekki verið tekin fyrir í sameiginlegu EES-nefndinni, þar sem regluverk frá Evrópusambandinu er tekið upp í EES-samninginn, en fyrr en síðar er viðbúið að sú verði raunin. Telja verður ólíklegt að íslenzk stjórnvöld verði reiðubúin til þess að beita svonefndu neitunarvaldi í samningnum þrátt fyrir alvarleika málsins en þau hafa til þessa sagt ekki hættandi á slíkt vegna mögulegra viðbragða sambandsins.

Málið er annars afar lýsandi fyrir þann veruleika að Evrópusambandið er í raun alls staðar við stjórnvölinn þegar EES-samningurinn er annars vegar. Þannig er til að mynda undir sambandinu komið hvaða regluverk þess fellur undir samninginn og enn fremur hvort einhverjar undanþágur verði veittar í þeim efnum. Þá getur einungis Evrópusambandið breytt því regluverki sem tekið hefur verið upp í EES-samninginn.

Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara í dag þegar þau semja um milliríkjaviðskipti. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum og í enn ríkari mæli inngöngu í Evrópusambandið, felur ekki í sér vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum í gegnum íþyngjandi regluverk sem er ekki okkar, tekur ekki mið af okkar hagsmunum og við getum ekki breytt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 10. apríl 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Drögumst aftur úr vegna EES
Höfum aldrei notið fulls tollfrelsis
Með of mikil völd
Vilja fríverzlunarsamning í stað EES
Hindrar fríverzlun við Bandaríkin

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb