Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Með of mikil völd

Posted on March 26, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Meirihluti Norðmanna telur Evrópusambandið hafa of mikil völd yfir norskum málum í gegnum aðild Noregs að EES-samningnum. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið Sentio gerði fyrir norsku samtökin Nei til EU. Samkvæmt könnuninni eru 57% þeirrar skoðunar en 27% því ósammála. Sé aðeins miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti telja tæp 68% völd sambandsins of mikil.

Fjallað er um skoðanakönnunina í norska dagblaðinu Nationen. Þar kemur enn fremur fram að meirihluti bæði kvenna og karla telji Evrópusambandið hafa of mikil völd í Noregi í gegnum EES-samninginn. Hið sama eigi við um alla aldursflokka og landshluta. Þá sé meirihluti stuðningsmanna allra norskra stjórnmálaflokka sömu skoðunar fyrir utan Umhverfisflokkinn sem hefur þrjár þingmenn á norska þinginu af 169.

Til að mynda er þannig meirihluti stuðningsmanna tveggja stærstu flokka Noregs, Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, sem fer fyrir núverandi ríkisstjórn landsins, og Hægriflokksins, systurflokks Sjálfstæðisflokksins, á því að of mikil völd hafi verið framseld til Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Hið sama á jafnvel við um meirihluta stuðningsmanna Venstre, systurflokks Viðreisnar.

Evrópusambandið alls staðar við stjórnvölinn

Hönnun EES-samningsins er með þeim hætti að hann fylgir samrunaþróuninni innan Evrópusambandsins á því sviði sem samningurinn nær til, það er innri markaði sambandsins, sem er sífellt að dýpka samhliða meiri samruna og þenjast út til fleiri málaflokka. Evrópusambandið er þar alls staðar við stýrið. Það setur reglurnar, ákveður hverjar þeirra eigi við um innri markaðinn og hvort undanþágur verði veittar.

Samrunaþróunin innan Evrópusambandsins felur í sér kröfur um vaxandi framsal valds frá ríkjum þess til sambandsins og þar með meiri miðstýringu þess. Þar sem EES-samningurinn snýst um það að sömu reglur gildi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, sem EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Liechtenstein eiga aðild að ásamt ríkjum Evrópusambandsins, nær samrunaþróunin á innri markaðinum einnig til ríkjanna þriggja.

Frá sjónarhóli Evrópusambandsins hefur EES-samningurinn í reynd aldrei verið hugsaður einfaldlega sem viðskiptasamningur. Samningurinn er enda ekki skilgreindur sem slíkur af hálfu sambandsins heldur sem svonefndur „association agreement“ en slíkir samningar snúast fyrst og fremst um að tryggja pólitísk og efnahagsleg áhrif þess í viðkomandi löndum. Viðskiptahlutinn er einungis liður í því.

Vilja fríverzlunarsamning í staðinn fyrir EES

Meirihluti þeirra sem tóku afstöðu með eða á móti í annarri skoðanakönnun Sentio fyrir Nei til EU á dögunum voru hlynntir því að skipta EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning við Evrópusambandið. Kannanir í Noregi hafa einnig sýnt meirihluta fyrir því að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildina að samningnum. Þá hafa allar kannanir frá 2005 sýnt meirihluta andvígan inngöngu í sambandið.

Hvorki kjósendur í Noregi né hér á landi voru inntir álits á aðildinni að EES-samningnum í þjóðaratkvæði þegar hún stóð fyrir dyrum fyrir 30 árum síðan. Skoðanakannanir hér á landi á þeim tíma bentu til þess að samningnum yrði mögulega hafnað. Safnað var yfir 34 þúsund undirskriftum með gamla laginu, á pappír, þar sem skorað var á stjórnvöld og síðan forseta Íslands að setja málið í þjóðaratkvæði en við því var ekki orðið.

Til stóð að EFTA-ríkið Sviss gerðist einnig aðili að EES-samningnum en svissneskir kjósendur höfnuðu því hins vegar í þjóðaratkvæði. Fyrir vikið sömdu þarlend stjórnvöld um tvíhliða samninga við Evrópusambandið um viðskipti og önnur tengsl. Bretar höfnuðu einnig áframhaldandi aðild að EES-samningnum þegar þeir yfirgáfu Evrópusambandið og sömdu þess í stað um víðtækan fríverzlunarsamning við sambandið.

Þegar skipt EES út fyrir fríverzlunarsamning

Mjög langur vegur er frá því að ríki bíði í röðum eftir því að gera samninga við Evrópusambandið í anda EES-samningsins. Ráðamenn sambandsins reyndu ítrekað að fá bæði Sviss og Bretland til þess en án árangurs. Þvert á móti kjósa ríki heimsins allajafna víðtæka fríverzlunarsamninga þegar þau semja um viðskipti sín á milli. Þar á meðal og ekki hvað sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni.

Við Íslendingar erum í öllum meginatriðum í sömu stöðu og Norðmenn hvað EES-samninginn varðar. Stöðugt eru gerðar meiri kröfur um framsal valds yfir íslenzkum málum vegna aðildar Íslands að samningnum í gegnum sífellt meira íþyngjandi regluverk frá Evrópusambandinu. Tímabært er að skipta honum úr fyrir nútímalegan víðtækan fríverzlunarsamning. Þá annað hvort sjálfstætt eða í samfloti með hinum EFTA-ríkjunum.

Við höfum ásamt Norðmönnum þegar látið reyna á það að semja um víðtækan fríverzlunarsamning í stað EES-samningsins. Við Bretland, annað stærsta viðskiptalands Íslands á eftir Bandaríkjunum og stærsta viðskiptaland Noregs, án þess að neitt færi á hliðina og án þess að ríkin tvö hafi þurft að framselja vald yfir eigin málum í vaxandi mæli í gegnum upptöku á íþyngjandi regluverki líkt og í tilfelli EES-samningsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 26. marz 2024)

(Ljósmynd: Norski fáninn. Eigandi: Petter Ulleland)


Tengt efni:
Vilja fríverzlunarsamning í stað EES
Hindrar fríverzlun við Bandaríkin
Verri viðskiptakjör í gegnum EES
Hvað gerir Bjarni við bókun 35?
Fór Ísland á hliðina?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb