Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Vilja fríverzlunarsamning í stað EES

Posted on March 20, 2024 by Fullveldi

Meirihluti þeirra Norðmanna sem afstöðu taka með eða á móti vilja skipta aðild Noregs að EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar í landi. Tveir af hverjum fimm aðspurðum tóku ekki afstöðu í könnuninni en ef miðað er við þá sem það gerðu eru rúm 60% hlynnt því að skipta EES-samningnum út fyrir fríverzlunarsamning en tæp 40% mótfallin.

Könnunin var gerð af fyrirtækinu Sentio fyrir norsku samtökin Nei til EU en niðurstöður kannana í Noregi, þar sem spurt hefur verið um EES-samninginn annars vegar og fríverzlunarsamning hins vegar, hafa á undanförnum árum ítrekað skilað niðurstöðum á hliðstæðum nótum. Hins vegar hafa kannanir, þar sem einungis hefur verið spurt um EES-samninginn, sýnt fleiri hlynnta áframhaldandi aðild að honum en andvíga.

Eina rökrétta skýringin

Við fyrstu sýn virðist fullkomið ósamræmi á milli þessara kannana en í raun er að öllum líkindum afar einfaldri skýringu fyrir að fara. Þannig hefur umræðan í Noregi, líkt og hér á landi, lengi byggzt á því að einungis séu tveir kostir í boði, áframhaldandi aðild að EES-samningnum eða innganga í Evrópusambandið. Fyrir vikið er líklegt að margir líti svo á að stuðningur við EES-samninginn sé andstaða við inngöngu í sambandið.

Þegar boðið er upp á annan valkost sem gengur alls ekki út á inngöngu í Evrópusambandið, fríverzlunarsamning, er fólki væntanlega ljóst að óhætt sé að tjá andstöðu sína við EES-samninginn án þess að hægt sé að túlka það sem stuðning við það að gengið verði í sambandið. Þetta er eina rökrétta skýringin á muninum á því þegar annars vegar er einungis spurt um EES-samninginn og hins vegar hann og fríverzlunarsamning.

Hefur þegar reynt á það

Hið sama á að öllum líkindum við hér á landi enda hefur umræðan hér lengi verið á sömu nótum. Það er að valið standi aðeins á milli inngöngu í Evrópusambandið eða áframhaldandi aðildar að EES-samningnum. Víðtækir fríverzlunarsamningar, eins og ríki heimsins kjósa allajafna að semja um sín á milli í dag, voru hins vegar ekki komnir til sögunnar þegar samið var um EES-samninginn fyrir rúmum 30 árum síðan.

Við Íslendingar höfum þegar látið á það reyna að skipta EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning. Það er í tilfelli Bretlands, annars stærsta viðskiptalands Íslands á eftir Bandaríkjunum, án þess að neitt færi á hliðina í samskiptum landanna og án þess að þurfa að framselja vald yfir íslenzkum málum í vaxandi mæli í gegnum upptöku á sífellt meira íþyngjandi regluverki líkt og í tilfelli EES-samningsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 20. marz 2024)

(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)


Tengt efni:
Hindrar fríverzlun við Bandaríkin
Verri viðskiptakjör í gegnum EES
Hvað gerir Bjarni við bókun 35?
Gullhúðunin gerir illt verra
Fór Ísland á hliðina?

Vefsíðan er ekki lengur uppfærð og þjónar þess í stað hlutverki gagnasafns um utanríkis- og varnarmál. Hægt er að nota leitarvélina hér fyrir neðan til þess að leita í safninu. Hins vegar er vefurinn Stjórnmálin.is þess í stað uppfærður daglega með nýjum pistlaskrifum.
©2026 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb