Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hvað gerir Bjarni við bókun 35?

Posted on January 28, 2024 by Fullveldi

Viðbúið er að ófáir sjálfstæðismenn velti því fyrir sér eftir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við utanríkisráðuneytinu hvað verði á hans vakt um frumvarp forvera hans sem kennt hefur verið við bókun 35 við EES-samninginn og ætlað er að festa það í lög að regluverk frá Evrópusambandinu, sem innleitt er hér á landi í gegnum samninginn, gangi framar almennri lagasetningu sem smíðuð er innanlands.

Fyrir liggur að frumvarpið er afar umdeilt innan Sjálfstæðisflokksins og víðar sem eðlilegt er. Með því verður til ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar gilda um almenna lagasetningu, þar sem yngri lög hafa forgang gagnvart þeim sem eldri eru og sértækari lög gagnvart almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt að umrædd löggjöf feli í sér innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu.

Með öðrum orðum mun frumvarpið þýða í reynd, nái það fram að ganga, að regluverk frá Evrópusambandinu, sem innleitt hefur verið til þessa og innleitt verður í framtíðinni á meðan Ísland á aðild að EES, verði gert æðra annarri almennri lagasetningu hér á landi af þeirri einu ástæðu að það kemur frá Brussel. Öll önnur almenn lagasetning mun þar með lögum samkvæmt þurfa að taka mið af regluverki sambandsins.

Viðsnúningurinn ekki skýrður

Krafan um forgang regluverks Evrópusambandsins var einnig sett fram af Evrópusambandinu í aðdraganda þess að Ísland gerðist aðili að EES-samningnum fyrir 30 árum síðan. Henni var hins vegar hafnað af íslenzkum stjórnvöldum af bæði pólitískum og lagalegum ástæðum og bókun 35 fyrir vikið innleidd með öðrum hætti. Þetta var öllum ljóst. Annars hefði Ísland að öllum líkindum ekki gerzt aðili að samningnum.

Málið kom fyrst upp árið 2012 þegar Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) fór fram á það að íslenzk stjórnvöld útskýrðu hvernig bókunin hefði verið innleidd. Fimm árum síðar lýsti stofnunin því yfir að ekki hefði verið staðið rétt að þeim málum þrátt fyrir að hafa þá ekki gert nokkra athugasemd við það í tæpa tvo áratugi. Stjórnvöld höfnuðu alfarið kröfu ESA og héldu uppi vörnum allt þar til þau kúventu fyrir um tveimur árum.

Frumvarpið var lagt fram í lok marz á síðasta ári en náði ekki fram að ganga á síðasta þingi. Málið var í kjölfarið sett á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar síðasta haust. Engin skýring hefur verið gefin á þeim viðsnúningi sem felst í frumvarpinu. Fullyrt var að einungis væri um formsatriði að ræða og jafnvel sigur. Hvers vegna stjórnvöld héldu þá uppi vörnum árum saman í stað þess að fallast strax á kröfu ESA er hins vegar ósvarað.

Forsenda aðildarinnar að EES

Fyrir liggur að frumvarpið felur í sér algera uppgjöf í málinu enda efni þess í fullu samræmi við kröfu ESA. Versta mögulega staðan sem gæti komið upp, næði málið ekki fram að ganga og færi í kjölfarið fyrir EFTA-dómstólinn, væri sú að komizt yrði að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri samkvæmt EES-samningnum að verða við kröfu ESA. Með öðrum orðum það sem frumvarpið felur í sér. Gefizt er upp fyrirfram.

Málið minnir fyrir vikið að ýmsu leyti á Icesave-málið á sínum tíma. Þannig hafði ESA til að mynda í því máli líkt og nú ekki gert nokkra athugasemd við innleiðingu á viðkomandi regluverki Evrópusambandsins hér á landi um langt árabil þegar stofnunin ákvað að gera mál út af því. Þá átti líkt og nú að gefast upp fyrirfram í stað þess að láta fyrst reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum þar sem Ísland hafði að lokum sigur.

Vert er að árétta það að lokum að ein af forsendum aðildar Íslands að EES-samningnum á sínum tíma var sú að bókun 35 yrði innleidd með þeim hætti sem gert var og það ekki að ástæðulausu. Að öðrum kosti hefði að öllum líkindum aldrei orðið af aðildinni. Málið er hins vegar í fullu samræmi við þróun samningsins á undanförnum árum þar sem sífellt hefur verið farið fram á meira framsals valds yfir íslenzkum málum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 28. janúar 2024)

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Gullhúðunin gerir illt verra
Fór Ísland á hliðina?
Sjálfstæðið í smápörtum til Brussel
Flóknara en góðu hófi gegnir
Fjarar undan tveggja stoða kerfinu

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb