Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Fór Ísland á hliðina?

Posted on January 23, 2024 by Fullveldi

Fyrir rúmum þremur árum síðan hættu viðskipti og ýmis önnur samskipti á milli Íslands og Bretlands að grundvallast á EES-samningnum í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Frá 1. janúar 2021 hafa umrædd tengsl þess í stað byggzt á víðtækum fríverzlunarsamningum. Fyrst í stað til bráðabirgða en frá því í september 2022 varanlegum fríverzlunarsamningi sem tók endanlega gildi 1. febrúar á síðasta ári.

Með öðrum orðum skipti Ísland EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning við Bretland, annað stærsta viðskiptaland okkar Íslendinga á eftir Bandaríkjunum, án þess að nokkuð færi á hliðina í samskiptum landanna. Hagsmunaaðilar lýstu því enda yfir í kjölfar þess að samningurinn lá fyrir að viðskiptahagsmunir Íslands hefðu verið tryggðir með jafngóðum hætti og áður var með EES-samningnum.

Hitt er svo annað mál að hagsmunir Íslands hafa í reynd verið miklu betur tryggðir með fríverzlunarsamningnum við Bretland en raunin var áður með EES-samningnum. Þannig hafa ekki aðeins viðskiptahagsmunir landsins verið tryggðir heldur felur fríverzlunarsamningurinn ekki í sér vaxandi framsal valds til viðsemjandans líkt og í tilfelli EES-samningsins sem og einhliða upptöku íþyngjandi regluverks frá honum.

Víðtæka fríverzlunarsamninga fremur en EES

Mjög langur vegur er frá því að ríki standi í biðröð eftir því að gera samninga við Evrópusambandið í anda EES-samningsins. Þvert á móti hafa þannig bæði brezk og svissnesk stjórnvöld ítrekað hafnað EES-samningnum og hliðstæðum samningum. Þess í stað kjósa ríki heimsins, þar á meðal og ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni, að semja um víðtæka fríverzlunarsamninga sín á milli.

Helztu rökin fyrir aðild Íslands að EES-samningnum á sínum tíma voru aukið tollfrelsi fyrir útfluttar íslenzkar sjávarafurðir til ríkja Evrópusambandsins. Á undanförnum árum hefur sambandið hins vegar samið við ríki eins og Kanada, Japan og Bretland um víðtæka fríverzlunarsamninga þar sem kveðið er á um fullt tollfrelsi með sjávarafurðir sem við Íslendingar höfum aldrei notið í gegnum EES-samninginn.

Vaxandi upptaka íþyngjandi regluverks í gegnum aðildina að EES-samningnum hefur ekki aðeins leitt til aukins kostnaðar og minni samkeppnishæfni heldur einnig sett íslenzkum stjórnvöldum verulegar skorður varðandi mögulega viðskiptasamninga við önnur ríki í formi tæknilegra viðskiptahindrana sem tekið hafa við af tollum sem helzta verkfærið til þess að viðhalda verndarhyggju í milliríkjaviðskiptum.

Viðskiptahindrun gagnvart öðrum mörkuðum

Með aðildinni að EES-samningnum er Ísland utan tollamúra Evrópusambandsins en hins vegar innan regluverksmúra þess. Formlega hafa íslenzk stjórnvöld fullt frelsi til þess að semja um fríverzlun við önnur ríki en í raun markar samningurinn rammann í þeim efnum. EES-samningurinn, sem greiða átti fyrir viðskiptum við sambandið, er þannig í vaxandi mæli viðskiptahindrun gagnvart öðrum mörkuðum.

Til að mynda bendir flest til þess að fríverzlun við Bandaríkin sé ekki í kortunum á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum. Vandséð er þannig að stjórnvöld í Washington væru reiðubúin til þess að fallast á það að innfluttar bandarískar vörur til Íslands þyrftu að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem oft er mjög ólíkt því sem gerist vestra og gjarnan beinlínis hannað til þess að vernda framleiðslu innan þess.

Með öðrum orðum liggur fyrir að ekki væri einungis hægt að tryggja viðskiptahagsmuni landsins gagnvart Evrópusambandinu með víðtækum fríverzlunarsamningi í stað EES-samningsins, án þess að þurfa að framselja vald yfir íslenzkum málum í vaxandi mæli í gegnum íþyngjandi regluverk, heldur einnig greiðara aðgengi að öðrum mörkuðum sem miklu fremur eru markaðir til framtíðar en sambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður í Morgunblaðinu 23. janúar 2024)

(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
Stjórnsýslan kvartar undan flóknu regluverki
Tveir ójafnir dómstólar
Hagsmunir Íslands miklu betur tryggðir

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb