Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Færeyingar vissulega til fyrirmyndar

Posted on July 27, 2024November 8, 2024 by Fullveldi

Fyrir síðustu helgi kaus Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í grein á Vísir.is að taka Færeyjar sem dæmi um Evrópuland þar sem finna mætti meiri lífsgæði en hér á landi. Tilgangurinn var sem fyrr að reyna að tína til rök fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hins vegar er það val áhugavert í ljósi þess að Færeyjar standa bæði utan sambandsins og Evrópska efnahagssvæðsins. Um leið er það skiljanlegt þar sem lífsgæði hér á landi mælast allajafna meiri en í flestum ef ekki öllum ríkjum Evrópusambandsins.

Færeyingar eru vissulega með gjaldmiðil sem er ígildi dönsku krónunnar sem aftur er tengd gengi evrunnar innan ákveðinna vikmarka. Danir hafa hins vegar í tvígang hafnað evrunni sem slíkri í þjóðaratkvæðagreiðslu, 1992 og 2000, og Svíar höfnuðu henni sömuleiðis í þjóðaratkvæði 2003. Eina norræna ríkið sem tekið hefur upp evruna er Finnland en þó án þess að leggja þá ákvörðun í þjóðaratkvæði. Þá er til dæmis talið líklegt að evrunni hefði að sama skapi verið hafnað í Þýzkalandi hefði almenningur verið inntur álits.

Tenging dönsku krónunnar við gengi evrunnar er einfaldlega ákvörðun Dana sem hægt er að nema úr gildi hvenær sem er en áður en evran kom til sögunnar var danska krónan tengd gengi þýzka marksins sem varð síðar hluti af evrunni. Ástæða þess er aftur fyrst og fremst sú að danska hagsveiflan er mjög í takti við þá þýzku og vaxtaákvarðanir seðlabanka Evrópusambandsins taka einkum mið af stöðu mála í efnahagslífi Þýzkalands. Hins vegar hefur þýzka hagsveiflan engan veginn verið í takt við hagsveifluna hér á landi.

Höfum aldrei notið fulls tollfrelsis

Færeyingar ákváðu að fylgja ekki Dönum inn í forvera Evrópusambandsins, Efnahagsbandalag Evrópu, árið 1973. Færeyjar höfðu fengið heimastjórn í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar og gátu í krafti hennar tekið sjálfstæða ákvörðun í þeim efnum. Færeyingar vilja enn í dag ekki ganga í sambandið frekar en við Íslendingar og af hliðstæðum ástæðum. Þeir hefðu litla möguleika á því að hafa áhrif á ákvarðanir innan Evrópusambandsins vegna fámennis og stjórn sjávarútvegsmála þeirra myndi færast til sambandsins.

Færeyingar eru þess í stað með fríverzlunarsamning við Evrópusambandið hliðstæðan þeim sem Ísland samdi um við forvera þess árið 1972. Fyrir vikið þurfa þeir til dæmis ekki að taka upp vaxandi íþyngjandi regluverk frá sambandinu. Færeysk stjórnvöld eiga nú í viðræðum við Evrópusambandið um mögulega uppfærslu á samningnum og hafa ekki sízt lagt áherzlu á fullt tollfrelsi fyrir sjávarafurðir líkt og sambandið hefur áður samið um í víðtækum fríverzlunarsamningum við til að mynda Kanada, Japan og Bretland.

Hvað okkur Íslendinga varðar höfum við aldrei notið fulls tollfrelsins fyrir sjávarafurðir í gegnum EES-samninginn. Fríverzlunarsamningur okkar við sambandið frá 1972 er enn fremur að mörgu leyti hagstæðari en EES-samningurinn í þeim efnum auk þess að kveða til dæmis á um fullt tollfrelsi með iðnaðarvörur. Fyrir vikið kemur fram í bókun 9 við EES-samninginn að ef aðrir tvíhliða samningar á milli Íslands og Evrópusambandsins fela í sér hagstæðari kjör í viðskiptum með sjávarafurðir skuli taka mið af þeim.

Fæli ekki í sér vaxandi framsal valds

Meðan við Íslendingar erum aðilar að EES-samningnum lítur Evrópusambandið svo á að við stefnum á inngöngu í sambandið enda hafa ráðamenn í Brussel alltaf litið á samninginn sem undirbúning fyrir það. Þannig var hann hannaður og þannig hefur hann virkað frá upphafi. Þá er sjávarútvegur ekki hluti af EES-samningnum þar sem vilji var eðli málsins samkvæmt ekki fyrir því hér á landi að gangast undir vald og löggjöf Evrópusambandsins í þeim efnum. Værum við reiðubúin til þess er líklegt að fullt tollfrelsi yrði í boði.

Hins vegar væri þetta ekki vandamál ef við skiptum EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning líkt og ríki heimsins kjósa að semja um sín á milli í dag og þar á meðal stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Slíkur samningur fæli enda ekki í sér vaxandi framsal valds til viðsemjandans og einhliða upptöku á löggjöf hans eins og EES-samningurinn. Fyrir vikið væri ekkert því til fyrirstöðu að víðtækur fríverzlunarsamningur næði til sjávarafurða með sama hætti og annars varnings.

Við gætum einfaldlega óskað eftir viðræðum við Evrópusambandið um það að uppfæra samninginn frá 1972 í víðtækan fríverzlunarsamning þar sem tekin væru inn í myndina þjónustuviðskipti og annað það sem máli skiptir í milliríkjaviðskiptum í dag. Þetta hafa til dæmis bæði sambandið og EFTA verið að gera á liðnum árum við eldri fríverzlunarsamninga sína. Til þess þyrfti notabene ekki að segja EES-samningnum upp fyrst. Með öðrum orðum er það auðvitað rétt hjá Þorgerði að Færeyingar eru að ýmsu leyti til fyrirmyndar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 27. júlí 2024)

(Ljósmynd: Þinganes í Færeyjum. Eigandi: Stig Nygaard – Attribution 2.0 Generic)


Tengt efni:
Milljarðar fyrir verri viðskiptakjör
„Vitum ekkert hvað við erum að gera“
Vilja ekki þurfa að verja EES
Mótleikur ESB vegna Icesave-málsins
Með of mikil völd

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb