Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki

Posted on December 29, 2024December 29, 2024 by Fullveldi

Fyrir nokkrum árum síðan voru þáverandi regnhlífarsamtök íslenzkra Evrópusambandssinna, Já Ísland, aðili að evrópsku samtökunum European Movement International. Síðarnefndu samtökin hafa frá stofnun þeirra árið 1948 haft það meginmarkmið að til verði evrópskt sambandsríki þó það hafi verið orðað aðeins öðruvísi síðustu árin eða á þá leið að þau vilji stuðla að umræðu um arkitektúr sambandsins. Markmiðið er eftir sem áður hið sama og allt frá upphafi. Að Evrópusambandið verði að lokum að sambandsríki.

Frá upphafi hefur hið sama verið lokamarkmið samrunaþróunarinnar innan Evrópusambandsins og forvera þess. Þannig kom til að mynda fram í Schuman-yfirlýsingunni 1950, sem kom þróuninni af stað, að fyrsta skrefið á þeirri vegferð væri að koma stál- og kolaframleiðslu Evrópuríkja undir eina stjórn en lokamarkmiðið evrópskt sambandsríki. Síðan hefur sambandið jafnt og þétt öðlast fleiri einkenni ríkis. Nú síðast var til að mynda talað um áframhaldandi þróun í þá átt í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar Þýzkalands.

Fyrir um tveimur og hálfu ári síðan var Evrópuhreyfingin, arftaki Já Ísland, sett á laggirnar. Fram kemur á vefsíðu European Movement International að Evrópuhreyfingin sé í aðildarferli að evrópsku samtökunum. Þá kemur fram á vefsíðunni að Jón Steindór Valdimarsson, formaður Evrópuhreyfingarinnar, sitji í tveimur af þremur stjórnmálanefndum þeirra og G. Pétur Matthíasson, stjórnarmaður í hreyfingunni, í þeirri þriðju en aðeins fulltrúar aðildarfélaga geta átt sæti í nefndunum samkvæmt reglum samtakanna.

Til að mynda situr Jón Steindór í nefnd sem hefur meðal annars það markmið að vinna að því að einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins verði með öllu afnumið á vettvangi þess sem stundum hefur einnig verið kallað neitunarvald. Einróma samþykki var áður reglan við töku ákvarðana innan sambandsins en hefur jafnt og þétt heyrt sögunni til á liðnum árum og áratugum og heyrir í raun til algerra undantekninga í dag. Þessi þróun hefur eðli málsins samkvæmt komið sér verst fyrir fámennustu ríkin innan þess.

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið færi formlegt vægi landsins, og þar með möguleikar okkar Íslendinga til þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku í þeim stofnunum sambandsins þar sem ríki þess eiga fulltrúa, í langflestum tilfellum einkum eftir íbúafjölda landsins. Þar á meðal varðandi ákvarðanir um sjávarútvegsmál og orkumál. Um þetta má til dæmis fræðast á vefsíðum Evrópusambandsins. Þannig yrði vægi Íslands í ráðherraráði sambandsins í langflestum tilfellum um 0,08% eða á við 5% hlutdeild í alþingismanni.

Hver þróunin hefur verið innan Evrópusambandsins og hvert hún stefnir er eðli málsins samkvæmt lykilatriði þegar rætt er um sambandið og hvort rétt væri fyrir Ísland að verða hluti þess. Eins er einnig gagnlegt að vita fyrir hvað hérlend samtök Evrópusambandssinna standa í raun í þeim efnum. Þá er ekki síður mikilvægt hver staða landsins yrði innan Evrópusambandsins þegar kæmi að því að hafa áhrif á ákvarðanir. Fyrir utan annað er vitanlega lítið gagn að „sæti við borðið“ þegar ekki er einu sinni setið við sama borð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 29. desember 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hvorugt er né hefur verið raunin
Veruleikinn
Mýtan um sætið við borðið
„Nei“
Hefðu getað minnkað verðbólguna

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb