Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

„Nei“

Posted on December 5, 2024December 5, 2024 by Fullveldi

Fyrir þingkosningarnar sendi Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fyrirspurn á flokkana þar sem spurt var nokkurra spurninga varðandi afstöðu þeirra til Evrópumálanna. Þar á meðal hvort þeir myndu á næsta kjörtímabili styðja það að tekin yrðu skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið. Til að mynda með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sózt yrði á ný eftir því að ganga í sambandið.

Flokkur fólksins svaraði spurningunni mjög afdráttarlaust og fólst svar hans þannig einungis í einu orði: „Nei“. Þetta voru skilaboð hans til kjósenda fyrir kosningarnar. Rétt er að rifja þetta upp í ljósi þess að Flokkur fólksins á nú í stjórnarmyndunarviðræðum við Viðreisn og Samfylkinguna sem báðir eru hlynntir því að Ísland gangi í Evrópusambandið þó þeir hafi forðast að minnast á málið í kosningabaráttunni.

Flokkur fólksins var einnig spurður að því hvort hann myndi á næsta kjörtímabili styðja samþykkt frumvarps um bókun 35 við EES-samninginn um að innleidd lög og reglur frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn gangi framar almennum lögum sem eiga sér innlendan uppruna. Svar flokksins var að sama skapi afgerandi: „Nei“. Hið sama átti við um það hvort hann væri hlynntur því að Ísland gengi í sambandið.

„Ég þóttist bara ekki vera það“

Talsvert annað hljóð virtist vera í Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, í kosningauppgjöri Spursmála á Hilton Reykjavík Nordica daginn eftir kjördag sem fjallað var um í Morgunblaðinu í vikunni. Aðspurð um Evrópumálin sagði hún: „Þetta er náttúrlega bara samningsatriði eins og hvað annað. En það er eins og ég hef alltaf sagt, að það á ekki að taka svona risaákvarðanir nema þjóðin fái að greiða um það atkvæði.“

Hins vegar breytti það engu um afstöðu hennar til inngöngu í Evrópusambandið. Hún væri andvíg inngöngu í sambandið. „En við þurfum að taka samtalið.“ Var Inga þá spurð hvort hún væri öll að mýkjast upp í þessum efnum og svaraði hún: „Ég hef alltaf verið svona mjúk, ég þóttist bara ekki vera það.“ Þóttist Flokkur fólksins þá einnig vera andvígur skrefum í átt að inngöngu í Evrópusambandið og bókun 35?

Verði niðurstaða viðræðna Flokks fólksins við Viðreisn og Samfylkinguna sú að haldið verði þjóðaratkvæði í þessum efnum er ljóst að ekki verður um málamiðlun að ræða enda beinlínis um að ræða stefnu hinna flokkanna. Inga sagðist treysta þjóðinni í Spursmálum en kjósendur Flokks fólksins treysta því væntanlega að flokkurinn standi við það sem lýst var yfir í hans nafni áður en þeir greiddu honum atkvæði sitt.

Minnir á framgöngu VG 2009

Málið minnir þannig á framgöngu Steingríms J. Sigfússonar, þáverandi formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í Evrópumálunum í kringum þingkosningarnar 2009 þegar hann aftók með öllu í aðdraganda þeirra að til þess gæti komið að flokkurinn stæði að umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Tveimur vikum eftir kosningarnar hafði VG hins vegar samþykkt að sótt yrði um inngöngu í sambandið.

Hvað Viðreisn og Samfylkinguna varðar liggur fyrir að fylgisaukning flokkanna var ekki sízt afleiðing þess að flokkarnir lögðu áherzlu á inngöngu í Evrópusambandið til hliðar. Þannig hófst fylgisaukning Samfylkingarinnar fyrir rúmum tveimur árum þegar Kristrún Frostadóttir, formaður flokksins, tók þá ákvörðun og fylgi Viðreisnar fyrir fáeinum vikum þegar forystumenn hans nánast hættu að ræða um málið.

Fyrir kosningarnar sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, aðspurð að forsenda þess að hægt væri að setja málið á dagskrá væri að taka fyrst á efnahagsmálunum. Þá sagði Kristrún, þegar áherzlan á Evrópusambandið var lögð til hliðar í Samfylkingunni, að hún vildi horfa til mála sem sameinuðu og sundruðu ekki. Evrópusambandið væri mál sem sundraði. Þurfum við á slíku að halda?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 5. desember 2024)

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hefðu getað minnkað verðbólguna
Hægt með krónunni?
Forðast að tala um meginstefnuna
Verðbólga í boði Viðreisnar
Frjálslynd Viðreisn?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb