Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Forðast að tala um meginstefnuna

Posted on November 19, 2024November 19, 2024 by Fullveldi

Forystumenn Viðreisnar hafa greinilega áttað sig á þeim veruleika að áherzla á Evrópusambandið skilar ekki mörgum atkvæðum heldur þvert á móti. Það er engin tilviljun að fylgi flokksins hefur aukizt miðað við niðurstöður skoðanakannana að undanförnu samhliða því sem fulltrúar hans hafa nánast hætt að tala um sambandið. Rétt eins og gerðist í tilfelli Samfylkingarinnar fyrir um tveimur árum síðan.

Frambjóðendur Viðreisnar hafa þannig undanfarið ljóslega forðast það nánast eins og heitan eldinn að minnast á Evrópusambandið og varla rætt það nema að frumkvæði annarra. Aðallega fjölmiðla. Fyrir ekki alls löngu og allt frá stofnun flokksins fram að því var varla minnzt til að mynda á efnahagsmál án þess að tengja það við sambandið og evruna sem átti að leysa svo gott sem allt. Ekki aðeins efnahagsmálin.

Hins vegar hefur stefna Viðreisnar vitanlega ekki breytzt enda er ekki einungis um að ræða meginstefnumál flokksins, sem önnur stefnumál hans taka meira eða minna mið af, heldur það mál sem hann var beinlínis stofnaður í kringum. Enda hafa forystumennirnir viðurkennt þegar gengið hefur verið á þá að Viðreisn muni gera inngöngu í Evrópusambandið að skilyrði í mögulegum stjórnarmyndunarviðræðum.

Ófrávíkjanlegt skilyrði

Til að mynda játaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, því aðspurð í Forystusætinu í Ríkisútvarpinu fyrir helgi að skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið yrði úrslitaatriði af hálfu flokksins í hugsanlegum stjórnarmyndunarviðræðum. Það tók þó fréttamanninn nokkrar tilraunir til þess að fá afdráttarlaust svar í þeim efnum eftir að hún hafði ítrekað reynt að koma sér undan því.

Hið sama gerði Guðbrandur Einarsson, oddviti Viðreisnar í Suðurkjördæmi, aðspurður á borgarafundi í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn hvort málið yrði skilyrði fyrir þátttöku flokksins í ríkisstjórn. Staðfesti hann að sú yrði raunin. Sagði Guðbrandur að um yrði þannig að ræða ófrá­víkj­an­legt skil­yrði fyr­ir ríkisstjórnarsamstarfi af hálfu Viðreisnar að stefnt yrði á nýjan leik að því að Ísland gengi í Evrópusambandið.

Vert er að rifja upp að síðasta sumar gerði Maskína skoðanakönnun fyrir Evrópuhreyfinguna, sem Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, fer fyrir, þar sem meðal annars var spurt að því hvort fólk væri líklegt til þess að kjósa flokka hlynnta inngöngu í Evrópusambandið eða þjóðaratkvæði í þeim efnum. Sá hluti könnunarinnar var þó aldrei birtur. Væntanlega ollu niðurstöðurnar miklum vonbrigðum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 19. nóvember 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Verðbólga í boði Viðreisnar
Frjálslynd Viðreisn?
Verður það sama gert aftur?
Vilja miklu stærra bákn
Fámennt ríki á jaðrinum

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb