Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Verðbólga í boði Viðreisnar

Posted on November 15, 2024November 15, 2024 by Fullveldi

Meðal þess sem Viðreisn og Samfylkingin hafa lagt áherzlu á í aðdraganda þingkosninganna er að lækka verði verðbólguna og vextina sem hækkaðir voru sem viðbrögð við henni. Verðbólgu sem er að miklu leyti á ábyrgð flokkanna tveggja. Helzta ástæða verðbólgunnar hefur þannig verið skortur á húsnæði. Einkum og sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu þar sem Reykjavík vegur langþyngst en borgin hefur sem kunnugt er verið um árabil undir stjórn flokkanna. Hefur meirihlutinn í borginni beinlínis beitt sér gegn því að byggt yrði nógu mikið af húsnæði til þess að anna eftirspurn. Mjög mikið hefur vantað upp á í þeim efnum.

Húsnæðisskortinn má þannig ekki sízt rekja til samkomulags sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu frá 2015 um vaxtarmörk svæðisins sem kemur í veg fyrir vöxt þess umfram það sem þar er kveðið á um en forsendur samkomulagsins voru stórlega vanmetnar miðað við fólksfjöldaþróunina síðan. Meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafnað því að hvikað verði frá samkomulaginu og forsendum þess og einungis viljað horfa til þéttingar byggðar sem mun aldrei leysa nema lítinn hluta vandans. Allt of lítið er þannig hægt að byggja á þéttingarreitum og slíkar íbúðir eru iðulega byggðar á svæðum þar sem fasteignaverð er mjög hátt.

Verðbólga frá Evrópusambandinu

Hin helzta ástæðan fyrir verðbólgunni hér á landi hefur verið innflutt verðbólga. Fyrst og fremst frá ríkjum innan Evrópusambandsins enda mest flutt inn af vörum þaðan og hingað til lands. Verðbólga jókst innan sambandsins einkum vegna glórulausra ákvarðana evrópskra ráðamanna í orkumálum sem urðu þess valdandi að ófá ríki þess urðu verulega háð gasi og olíu frá Rússlandi. Þegar loks var brugðist við í þeim efnum leiddi það meðal annars til stóraukins orkukostnaðar í ríkjum Evrópusambandsins, þar með hærri kostnaðar við framleiðslu varnings innan sambandsins og loks hærra vöruverðs sem síðan skilaði sér hingað til lands.

Fyrir vikið er ljóst að verðbólgan hefur að miklu leyti verið annars vegar í boði meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, þar á meðal og ekki sízt Viðreisnar og Samfylkingarinnar, og hins vegar Evrópusambandsins. Flokkarnir hefðu fyrir margt löngu getað gripið til árangursríkra aðgerða til þess að bregðast við verðbólgunni sem við Íslendingar höfum glímt við á undanförnum árum með því einfaldlega að anna eftirspurn eftir húsnæði og jafnvel koma í veg fyrir hana. Þess í stað hafa þeir stuðlað að gríðarlegri hækkun fasteignaverðs og þar með hærri fasteignasköttum en samt tekizt að setja borgina nánast á hausinn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 15. nóvember 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Frjálslynd Viðreisn?
Verður það sama gert aftur?
Vilja miklu stærra bákn
Fámennt ríki á jaðrinum
Hegðaði sér eins og einræðisherra

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb