Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Mýtan um sætið við borðið

Posted on December 6, 2024 by Fullveldi

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.

Hvað þing Evrópusambandsins varðar yrði staða Íslands eilítið skárri þar í þessum efnum þar sem ekki er miðað alfarið við íbúafjölda þar. Allavega ekki enn. Þar yrði vægi Íslands um 0,8% eða sex þingmenn af vel yfir 700 sem samsvaraði um hálfum þingmanni á Alþingi. Hins vegar þarf einungis einfaldan meirihluta í þinginu en allajafna 55% ríkjanna með 65% íbúafjöldans í ráðherraráðinu. Þetta yrði „sætið við borðið“.

Hvað varðar framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eiga ríki þess í raun ekki fulltrúa í henni. Þeir sem þar sitja eru fyrst og síðast embættismenn sambandsins enda óheimilt að draga taum heimalanda sinna. Hliðstætt á til að mynda við um forseta þings Evrópusambandsins. Einstaklingurinn sem vermir það sæti hverju sinni er ekki fulltrúi heimalands síns heldur einungis þingflokksins sem hann tilheyrir innan þingsins.

„Við áttum aldrei möguleika“

Mörg dæmi eru um það að margfalt fjölmennari ríki en Ísland hafi orðið undir í ráðherraráði Evrópusambandsins þegar mikilvægir hagsmunir þeirra hafa verið í húfi. Líkt og þegar Danir urðu að taka þátt í refsiaðgerðum sambandsins gegn Færeyjum, hluta af danska konungdæminu, um árið vegna síldveiða Færeyinga í eigin lögsögu og þegar Írar urðu að sætta sig við makrílsamning við Færeyinga þvert á eigin hagsmuni.

„Ríkisstjórn okkar og [Simon] Coveney sjávarútvegsráðherra börðust af hörku gegn þessu en þetta snýst allt um atkvæði á vettvangi Evrópusambandsins. […] Írland er aðeins lítill fiskur í þessari tjörn. Við áttum aldrei möguleika,“ sagði Martin Howley, formaður Samtaka sjómanna í Killybegs, stærsta útgerðarbæ Írlands, við írska dagblaðið Irish Examiner í kjölfar þess að samningurinn við Færeyinga var undirritaður.

Hitt er svo annað mál að vaxandi áherzla Evrópusambandsins á íbúafjölda, þegar vægi ríkja þess er annars vegar, er afar eðlileg í ljósi lokamarkmiðs samrunaþróunarinnar innan sambandsins að til verði að lokum sambandsríki. Þannig tekur fjöldi þingmanna hvers ríkis Bandaríkjanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings mið af íbúafjölda þeirra og það sama á sem kunnugt er við um fjölda þingmanna hvers kjördæmis hér á landi.

Sætum ekki við sama borð

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrðum við Íslendingar einfaldlega að vona að þær ákvarðanir sem teknar yrðu eftirleiðis á vettvangi þess væru okkur hagfelldar enda ljóst að þær yrðu seint teknar með íslenzka hagsmuni og aðstæður í huga og að við yrðum ekki lengur við stjórnvölinn í þeim efnum. Þó einhverjar þeirra gætu mögulega hentað sæmilega skipti vitanlega mestu þegar sú yrði ekki raunin.

Vægi ríkja Evrópusambandsins verður eðli málsins samkvæmt ekki samið um við einstök umsóknarríki enda um að ræða heildarfyrirkomulag sem nær til allra ríkja þess. Seint yrði samþykkt af ríkjum sambandsins að allt annar mælikvarði gilti um Ísland í þeim efnum en þau sjálf. Hitt er annað mál að jafnvel þó vægi landsins yrði margfalt á við íbúafjöldann dygði það skammt enda yrðum við langfámennsta ríkið innan þess.

Málflutningur talsmanna þess að Ísland gangi í Evrópusambandið breyttist ekki að ástæðulausu fyrir 15-20 árum síðan úr því að landið þyrfti að ganga þar inn til þess að hafa áhrif yfir í tal um sæti við borðið. Það er jú engin trygging fyrir því að hlustað yrði á þann sem þar sæti. Fyrir utan aðrar afleiðingar inngöngu í sambandið er lítið gagn að því að eiga sæti við borðið þegar ekki er einu sinni setið við sama borð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 7. desember 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
„Nei“
Hefðu getað minnkað verðbólguna
Hægt með krónunni?
Forðast að tala um meginstefnuna
Verðbólga í boði Viðreisnar

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb