Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Við erum á allt öðrum stað

Posted on October 10, 2024October 22, 2024 by Fullveldi

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.

Með öðrum orðum er Ísland einfaldlega ekki á sama stað og flest önnur ríki í Evrópu þegar verðbólga er annars vegar. Fyrir vikið skilar það ekki réttri niðurstöðu að bera saman verðbólguna hér á landi við verðbólguna í flestum öðrum Evrópuríkjum á sama tíma. Ástæðan er ekki sízt sú að umtalsverður hluti verðbólgunnar hefur verið fluttur inn frá öðrum Evrópuríkjum enda mest flutt inn þaðan. Meiri framleiðslukostnaður þar, einkum vegna hærra orkuverðs, hefur leitt til hærra verðlags sem síðan hefur skilað sér hingað.

Hærra orkuverð innan Evrópusambandsins hefur fyrst og fremst verið afleiðing þess hversu háð ófá ríki þess voru orðin rússneskri orku vegna dómgreindarleysis forystumanna sambandsins og ríkjanna um langt árabil. Draga þurfti úr því í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu með tilheyrandi afleiðingum fyrir efnahagslíf þeirra. Ekki sízt Þýzkaland. Nokkuð sem snerti Ísland ekki með beinum hætti enda landið ekki háð erlendri raforku og orkukerfi þess ekki tengt öðrum Evrópuríkjum. Hins vegar voru áhrifin hér óbein sem fyrr segir.

Fjármagna enn hernað Rússlands

Forystumenn Evrópusambandsins sáu sér ekki annað fært í kjölfar innrásarinnar en að viðurkenna að sambandið og ríki þess hefðu þannig fjármagnað hernaðaruppbyggingu rússneskra stjórnvalda og síðan hernaðaraðgerðir þeirra í Úkraínu. Til að mynda kom það fram í ræðu sem Joseps Borrell, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, flutti á þingi þess 9. marz 2022. Sagði hann enn fremur að eftir innlimun Rússlands á Krímsskaga árið 2014 hefði innflutningur á rússneskri orku haldið áfram að aukast þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð.

„Við héldum að með þessu yrði komið í veg fyrir stríð,“ sagði Sanna Marin, þáverandi forsætisráðherra Finnlands, á fundi sem skipulagður var af hugveitunni Lowy Institute í Sydney í Ástralíu 2. desember 2022 og vísaði þar til þeirrar stefnu að nánari efnahagsleg tengsl við Rússland væru til þess fallin að varðveita friðinn. Sú stefna hefði hins vegar beðið algert skipbrot. Rússneskum stjórnvöldum væri í raun sama um slíkt. Þýzkir forystumenn hafa að sama skapi gengizt við því að þeim hafi orðið á mjög alvarleg mistök í þeim efnum.

Tveimur og hálfu ári eftir innrásina streyma enn tugir milljarða evra til Rússlands frá ríkjum Evrópusambandsins sem greiðsla fyrir rússneska orku. Þrátt fyrir að dregið hafi verið úr innflutningi á þarlendri orku eru ríkin eftir sem áður stærsti kaupandi hennar. Talsvert af rússneskri orku, ekki sízt gasi, er flutt inn í gegnum önnur ríki og skráð sem framleiðsla í þeim. Þá hefur hækkandi orkuverð orðið til þess að tekjur Rússlands af orkusölu hafa ekki dregizt eins mikið saman og annars hefði orðið þrátt fyrir minni sölu til Evrópuríkja.

Viðvarandi efnahagsleg stöðnun

Viss kaldhæðni felst óneitanlega í því að á sama tíma og talsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið hafa kallað eftir því að tekin verði skref í þá átt vegna verðbólgunnar hér á landi liggur fyrir að umtalsverður hluti hennar hefur verið fluttur inn frá ríkjum sambandsins. Hið sama á við um tal þeirra um aukið efnahagsöryggi með inngöngu í Evrópusambandið í ljósi þeirrar staðreyndar að verðbólgan innan þess hefur einkum verið afleiðing ábyrgðarlausra ákvarðana forystumanna sambandsins og ríkja þess í efnahagsmálum.

Hvað efnahagsmálin annars varðar er langur vegur frá því að ábyrgðarleysi forystumanna Evrópusambandsins og ríkja þess í þeim efnum sé þar með upptalið. Til að mynda hefur þannig ríkt viðvarandi efnahagsleg stöðnun á evrusvæðinu nánast frá því að evran var tekin í notkun fyrir um aldarfjórðungi síðan með tilheyrandi litlum sem engum hagvexti, viðvarandi miklu atvinnuleysi, lítilli framleiðni og takmarkaðri nýsköpun víðast hvar innan þess. Lágir vextir hafa verið ein birtingarmynd þessa ástands sem sumir kalla stöðugleika.

Tilgangurinn með lágum vöxtum er einu sinni iðulega fyrst og fremst sá að reyna að koma hjólum efnahagslífsins aftur af stað. Ekki hefur veitt af því víðast hvar á evrusvæðinu á undanförnum árum og áratugum. Hlutdeild Evrópusambandsins í landsframleiðslu á heimsvísu með tilliti til kaupmáttar hefur þannig til dæmis farið jafnt og þétt lækkandi og nemur nú einungis 14,5% samanborið við 20% við upphaf aldarinnar. Hefur sambandið dregizt aftur úr öðrum mörkuðum í þeim efnum og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 10. október 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Treystandi fyrir stjórn landsins?
Kæra sig ekki um evruna
„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“
„Spilaborgin hrynur einn daginn“
Hverfist allt um lokamarkmiðið

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb