Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“

Posted on September 19, 2024October 26, 2024 by Fullveldi

„Ég hafði rangt fyrir mér,“ sagði Wolfgang Schäuble, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýzkalands, í kjölfar þess að rússneskar hersveitir réðust inn í Úkraínu í lok febrúar árið 2022. „Við höfðum öll rangt fyrir okkur.“ Vísaði hann þar til þeirrar stefnu þýzkra stjórnvalda um áratugaskeið, óháð því hvaða stjórnmálaflokkar voru við völd, að vinna að nánari efnahagslegum tengslum við Rússland. Einkum í orkumálum.

Frá innrásinni í Úkraínu hefur efnahagslíf Þýzkalands verið í uppnámi vegna þess hversu háð landið var orðið rússneskri olíu og gasi og sér ekki fyrir endann á því. Tvö hundruð milljarðar evra hafa runnið til Rússlands sem greiðsla fyrir þarlenda orku frá ríkjum Evrópusambandsins frá innrásinni og margfalt hærri upphæðir fyrir hana. Á sama tíma hefur sambandið og ríki þess stutt Úkraínu um 88 milljarða evra.

Hafa forystumenn Evrópusambandsins eins og Josep Borrell, utanríkismálastjóri þess, ekki séð sér annað fært í kjölfar innrásarinnar en að gangast ítrekað við því opinberlega að ríki sambandsins með Þýzkaland í broddi fylkingar hafi fjármagnað hernaðaruppbyggingu Rússlands og síðan hernað þess í Úkraínu sem stærsti kaupandi rússneskrar orku um áratuga skeið. Enn í dag eru ríkin stærsti kaupandi hennar.

Sögðu áhyggjur NATO óþarfar

Málið teygir sig meira en hálfa öld aftur í tímann. Schäuble var fjármálaráðherra Þýzkalands 2009-2017 og þar áður innanríkisráðherra 2005-2009 í ríkisstjórnum Angelu Merkel, kanzlara landsins og leiðtoga Kristilegra demókrata. Merkel myndaði lengst af stjórnir með Jafnaðarmannaflokknum en flokkarnir tveir hafa sem stærstu flokkar landsins fyrst og fremst borið ábyrgð á málinu. Einkum jafnaðarmenn.

Fyrsti samningurinn um gasleiðslu frá Rússlandi, þá Sovétríkjunum, til Þýzkalands var undirritaður 1. febrúar 1970 en fjallað var ítarlega um málið á fréttavef brezka dagblaðsins Guardian í byrjun júní 2022. Willy Brandt var þá kanzlari landsins fyrir Jafnaðarmannaflokkinn. Ávinningurinn átti að vera gagnkvæmur. Þjóðverjar fengju hráefni og eldsneyti frá Rússum fyrir vélar og hágæða þýzkar iðnaðarvörur.

Fyrir undirritun samningsins hafði NATO óformlega samband við stjórnvöld í Þýzkalandi og spurðist fyrir um áhrif hans á öryggismál landsins. Var bandalagið fullvissað um það að áhyggjur væru óþarfar. Þjóðverjar myndu aldrei treysta á Rússland með svo mikið sem 10% af þörf sinni fyrir gas. Hálfri öld síðar var helmingur innflutts gass, þriðjungur innfluttrar olíu og helmingur innfluttra kola rússneskur.

Varaðir við af Bandaríkjunum

Hver forystumaðurinn í þýzkum stjórnmálum á fætur öðrum tók virkan þátt í því síðustu áratugi að gera Þýzkaland sífellt háðara rússneskri orku. Til að mynda Helmut Kohl og Merkel frá Kristilegum demókrötum og Gerhard Schröder og Frank-Walter Steinmeier, núverandi forseti landsins, frá Jafnaðarmannaflokknum. Eftir að Schröder hætti í stjórnmálum hóf hann störf fyrir rússnesk orkufyrirtæki.

Fram kemur í umfjöllun Guardian að þegar farið sé í gegnum opinber skjöl sjáist vel hversu margítrekað þýzkir ráðamenn hafi verið varaðir við því að það gæti komið í bakið á þeim að reiða sig svo mjög á rússneska orku. Til dæmis af hverjum forseta Bandaríkjanna á fætum öðrum. Þýzkir ráðamenn hafi hins vegar talið Bandaríkjamenn barnalega og að þeir sjálfir væru þeir einu sem skildu stjórnvöld í Moskvu.

„Við héldum áfram að vinnu við brúarsmíði sem rússnesk stjórnvöld höfðu ekki lengur trú á og sem bandamenn okkar vöruðu okkur við,“ sagði Steinmeier við þýzka fjölmiðla í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu og vísaði þar til þeirrar stefnu að byggja brýr yfir til Rússlands. Viðurkenndi hann að stuðningur hans við þá stefnu að stuðla að auknum efnahagslegum tengslum við rússnesk stjórnvöld hefði verið mistök.

Sjálfstæð uppspretta spennu

„Við héldum að með þessu yrði komið í veg fyrir stríð,“ sagði Sanna Marin, þáverandi forsætisráðherra Finnlands, á fundi á vegum hugveitunnar Lowy Institute í Sydney í Ástralíu 2. desember 2022 og vísaði þar til þeirrar stefnu að nánari efnahagsleg tengsl við Rússland væru til þess fallin að varðveita friðinn. Sú stefna hefði hins vegar beðið algert skipbrot. Rússneskum stjórnvöldum væri í raun sama um slíkt.

Málið snýst í raun um þá mýtu sem samrunarþóunin innan Evrópusambandsins og forvera þess hefur einkum verið réttlætt með allt frá upphafi. Að náin pólitísk og efnahagsleg tengsl á milli Evrópuríkja kæmu í veg fyrir átök á milli þeirra og að samruninn hafi tryggt friðinn í álfunni. Hins vegar eru nánari tengsl á milli ríkja innan sambandsins en sátt er um orðin að sjálfstæðri uppsprettu spennu á milli þeirra.

Meðal þess sem stríðið í Úkraínu hefur haft í för með sér er að afhjúpa enn frekar hversu illa Evrópusambandið stendur að vígi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Þar með talið og ekki sízt með tilliti til efnahagsöryggis og skynsamlegra ákvarðana í þeim efnum. Fyrir vikið sætir það vitanlega furðu þegar því er haldið fram að forystumönnum sambandsins væri treystandi fyrir íslenzkum efnahagsmálum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 19. september 2024)

(Ljósmynd: Brandenborgar-hliðið í Berlín. Eigandi: Leonhard Lenz)


Tengt efni:
Fjármagna enn hernað Rússlands
„Kaninn kæmi hvort sem er til bjargar“
Vantreysta ESB í varnarmálum
„Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
Hlutleysi veitir enga vörn

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb