Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hlutleysi veitir enga vörn

Posted on November 28, 2022 by Fullveldi

Fyrir margt löngu er ljóst orðið að hlutleysisstefnan, sem Svíþjóð og Finnland fylgdu allavega í orði kveðnu unz ríkin tvö sóttu um aðild að NATO fyrr á þessu ári, veitir alls enga vörn þegar hernaðarátök eru annars vegar. Þá einkum vegna þess að framkvæmd hennar er í raun alfarið háð því að stríðandi aðilar virði hlutleysi viðkomandi ríkja sem sagan sýnir að hefur því miður sjaldnast, ef nokkurn tímann, verið raunin.

Flest ríki Evrópu lýstu yfir hlutleysi í aðdraganda síðari heimsstyrjaldarinnar. Þar á meðal öll Norðurlöndin. Hlutleysi þeirra var hins vegar í flestum tilfellum haft að engu. Þannig voru Danmörk og Noregur til að mynda hernumin af Þjóðverjum, Ísland var hernumið af Bretum og Sovétríkin réðust á Finnland og síðar Eystrasaltslöndin. Þá hernámu Þjóðverjar einnig til dæmis Holland, Belgíu og Lúxemborg.

Hversu hlutlaus voru hlutlausu ríkin í raun?

Fyrir utan örríkin Mónakó, Andorra, San Marínó, Liechtenstein og Vatíkanið voru einu ríkin, sem tókst að halda í hlutleysi sitt á meðan á heimsstyrjöldinni stóð, Sviss, Svíþjóð, Írland, Spánn, Portúgal og Tyrkland. Í flestum tilfellum er þó deilt um það að hve miklu leyti þau hafi í raun verið hlutlaus, þá meðal annars vegna diplómatískra samskipta, viðskipta við stríðsaðilana og hernaðarlegrar aðstoðar í ýmsum tilfellum.

Til að mynda má nefna að stjórnvöld í Svíþjóð heimiluðu þýzkum hersveitum að fara um sænskt land, og nota til þess lestarkerfi landsins, í tengslum við hernám Þjóðverja á Noregi og hersveit spænskra sjálfboðaliða barðist við hlið þýzkra hermanna á austurvígstöðvunum við Rússa með stuðningi stjórnvalda á Spáni. Þá var ránsfeng ófárra þýzkra nazistaforingja komið fyrir á bankareikningum í svissneskum bönkum.

Mikilvægi landfræðilegrar staðsetningar

Helzta vörn ríkja eins og Svíþjóðar, Sviss og Írlands var í raun landfræðileg staðsetning þeirra. Þannig voru litlar líkur á því að Þjóðverjar reyndu að hernema Írland í ljósi staðsetningar landsins vestur af Bretlandi. Hvort sem það hefði komið til álita eða ekki. Fyrst hefði í öllu falli þurft að sigra Breta sem ekki tókst. Sviss er sem kunnugt er landlukt inni í miðri Evrópu og lítill hernaðarlegur tilgangur með því að hernema landið.

Hvað Svíþjóð varðar höfðu Þjóðverjar þegar nægjanlega sterka stöðu við Eystrasaltið, eftir að hafa hernumið Danmörku, Noreg og Pólland og síðar með Finna sem samherja, og því lítil þörf á því að hernema landið. Ísland var hins vegar, líkt og til að mynda Noregur, í þveröfugri stöðu þar sem hernaðarlega mikilvæg staðsetning landsins í miðju Norður-Atlantshafinu gerði það eftirsóknarvert fyrir stríðsaðilana.

Styrjöldin undirstrikaði skipbrot hlutleysisins

Hlutleysisstefnan beið þannig í raun algert skipbrot í síðari heimsstyrjöldinni enda undirstrikaði styrjöldin þá staðreynd að hlutleysið veitti í reynd enga vörn á ófriðartímum. Fá ríki í Evrópu héldu enda í hlutleysið eftir að styrjöldinni lauk. Fyrst og fremst þau sem hafði tekizt að halda í hlutleysi sitt á meðan á henni stóð þó deilt sé eins og áður segir um það í flestum tilfellum hvort þau hafi raunverulega verið hlutlaus.

Mikilvægi staðsetningar Íslands með tilliti til varnarmála jókst enn frekar með tilkomu kalda stríðsins og hefur, eftir að hafa tímabundið dregizt saman eftir lok þess, aftur aukizt á undanförnum árum. Einkum vegna vaxandi spennu á milli Vesturlanda og Rússlands í kjölfar innlimunar rússneskra stjórnvalda á Krímskaga árið 2014 og síðan stríðsins í Úkraínu sem hófst með innrás þeirra í landið í lok febrúar á þessu ári.

Hryggjarstykkið í vörnum vestrænna ríkja

Hugmyndir um að Ísland gæti verið hlutlaust og staðið utan við ný styrjaldarátök kæmi til þeirra standast þannig enga skoðun. Einkum ef átökin næðu til okkar heimshluta. Rétt eins og raunin varð í síðari heimsstyrjöldinni geta ekki talizt nokkrar líkur á því að stríðandi aðilar myndu horfa framhjá hernaðarlega mikilvægri staðsetningu landsins. Fyrir vikið er nauðsynlegt að sjá til þess að varnir þess séu sem bezt tryggðar.

Fyrir liggur að Bandaríkin verða áfram hryggjarstykkið í vörnum vestrænna ríkja enda eina ríkið í þeim hópi sem hefur í reynd burði til þess að verja bæði sig sjálf og aðra. Flest önnur vestræn ríki hafa um árabil vanrækt eigin varnir og treyst þess í stað á Bandaríkjamenn og gera enn. Þannig er ljóst að varnir Íslands verða sem fyrr bezt tryggðar með aðildinni að NATO en þó einkum varnarsamningnum við Bandaríkin.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 28. nóvember 2022)

(Ljósmynd: Þýzkir hermenn í Osló, höfuðborg Noregs, 9. apríl 1940. Eigandi: Henriksen & Steen)


Tengt efni:
Treysta ekki ESB í varnarmálum
Hverju ætti ESB að bæta við?
Hvers vegna vilja Svíar og Finnar í NATO?
Hornsteinn NATO á norðurslóðum
Vaxandi mikilvægi Íslands í varnarmálum

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb