Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Kæra sig ekki um evruna

Posted on September 26, 2024October 26, 2024 by Fullveldi

Meira en fjórðungur ríkja Evrópusambandsins hefur ekki tekið upp evruna þrátt fyrir að ríkin séu öll fyrir utan eitt lagalega skuldbundin til þess. Í meirihluta tilfella vegna þess að þau hafa einfaldlega ekki viljað það. Vitanlega er áhugavert í ljósi áherzlu hérlendra Evrópusambandsinna á inngöngu í sambandið, einkum og sér í lagi til þess að geta tekið upp evruna, að ríki sem þegar eru innan þess kæri sig ekki um hana.

Tvö norræn ríki eru í þessum hópi, Danmörk og Svíþjóð. Danir eru eina ríkið innan Evrópusambandsins sem hafa undanþágu frá því að taka evruna upp. Hin ríkin eru Pólland, Tékkland, Ungverjaland, Rúmenía og Búlgaría. Svíar hafa verið skuldbundir til þess að taka upp evruna síðan þeir gengu í sambandið 1995, Pólverjar og Tékkar frá inngöngu þeirra 2004 og Rúmenar og Búlgarar frá því að þeir gengu þar inn 2007.

Með öðrum orðum hafa umrædd ríki verið skuldbundin til þess að taka upp evruna árum og áratugum saman án þess að láta verða af því. Fátt ef eitthvað bendir til þess að af því verði að helzt Búlgaríu undanskildri sem hefur síðan árið 2020 haft uppi áform um það að taka evruna upp. Til stóð að Búlgarar tækju evruna upp í byrjun næsta árs en því hefur nú verið frestað. Alls óvíst er hvort og þá hvenær komi til þess.

Danir og Svíar höfnuðu evrunni

Til þess að ríki innan Evrópusambandsins geti tekið evruna upp þurfa þau fyrst að uppfylla ákveðin efnahagsleg skilyrði fyrir því. Áðurnefnd ríki í Austur-Evrópu hafa mörg hver vísvitandi sleppt því að uppfylla þau til þess að þurfa ekki að standa við þá skuldbindingu sína. Svíar höfnuðu hins vegar evrunni í þjóðaratkvæði 2003 og hafa niðurstöður nær allra skoðanakannana síðan sýnt fleiri andvíga upptöku hennar.

Danir fengu undanþágu frá því að taka upp evruna í stað dönsku krónunnar eftir að hafa hafnað Maastricht-sáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæði 1992. Árið eftir voru þeir aftur látnir kjósa um sáttmálann en að þessu sinni með fjórum undanþágum. Þar á meðal frá evrunni, eða réttara sagt myntbandalagi sambandsins, sem fyrr segir. Danir höfnuðu evrunni síðan í annað sinn í þjóðaratkvæði árið 2000.

Fullyrt hefur verið í röðum hérlendra Evrópusambandssinna að vegna gengistengingar sé danska krónan í raun evran. Gengi dönsku krónunnar er vissulega tengt gengi evrunnar með ákveðnum vikmörkum en ástæða þess er fyrst og fremst sú að það var áður tengt þýzka markinu vegna hliðstæðra efnahagslegra aðstæðna og í Þýzkalandi. Danir geta hins vegar hvenær sem er kippt því einhliða úr sambandi.

Mjög ólíkar efnahagsaðstæður

Hafa má einnig í huga að Bretland tók aldrei upp evruna áður en landið gekk úr Evrópusambandinu. Þá eru taldar allar líkur á því miðað við niðurstöður skoðanakannana á sínum tíma að evrunni hefði verið hafnað af kjósendum í Þýzkaland hefðu þeir fengið að segja álit sitt á þeirri ákvörðun að fórna þýzka markinu fyrir hana. Þá má ekki gleyma að Norðmenn hafa tvisvar hafnað inngöngu í sambandið í þjóðaratkvæði.

Helzta ástæða þess að Norðmenn vilja ekki evruna er sú að efnahagslegar aðstæður í Noregi eru mjög ólíkar því sem gerist á evrusvæðinu. Ekki sízt í Þýzkalandi sem Seðlabanki Evrópusambandsins horfir einkum til við vaxtaákvarðanir sínar. Hið sama á við um Ísland. Hagsveiflan hérlendis er til dæmis afar ólík því sem gerist innan evrusvæðisins og peningastefna þess hentaði fyrir vikið seint hagkerfi landsins.

Hefði hagfræði ráðið för en ekki pólitík hefði evrusvæðið líklega aðeins náð til þeirra ríkja Evrópusambandsins sem eiga nægjanlega efnahagslega samleið til þess að deila sama gjaldmiðli. Líkt og Þýzkalands, Frakklands og Benelúx-landanna. Ef svæðið hefði þá orðið til. Hins vegar réð pólitík för. Fyrst og fremst lokamarkmið samrunaþróunarinnar innan sambandsins um að til verði evrópskt sambandsríki.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 26. september 2024)

(Ljósmynd: Frá Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“
Hvaðan kemur verðbólgan?
Tvöfalt fleiri andvígir en hlynntir
„Spilaborgin hrynur einn daginn“
Hverfist allt um lokamarkmiðið

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb