Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hvaðan kemur verðbólgan?

Posted on September 16, 2024October 26, 2024 by Fullveldi

Tveir helztu drifkraftar verðbólgunnar hér á landi undanfarin misseri hafa annars vegar verið kostnaður vegna húsnæðis og hins vegar innflutt verðbólga. Aðallega frá ríkjum Evrópusambandsins enda mest flutt inn þaðan. Verðbólga jókst þar ekki vegna aukinna umsvifa heldur fyrst og fremst vegna glórulausra ákvarðana evrópskra ráðamanna í orkumálum sem varð til þess að ófá ríki sambandsins urðu háð orku frá Rússlandi. Þegar loks var brugðist við í þeim efnum, þó enn sé flutt inn mikið af rússneskri orku, leiddi það til hærra orkuverðs, þar með hærri framleiðslukostnaðar og loks hærra vöruverðs sem síðan skilaði sér hingað.

Hækkandi húsnæðisverð hefur fyrst og fremst verið afleiðing skorts á húsnæði, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en einnig meiri kostnaðar vegna innfluttra byggingavara. Aftur fyrst og fremst frá ríkjum Evrópusambandsins. Skortinn á húsnæði má síðan einkum rekja til samkomulags sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu frá 2015 um vaxtarmörk svæðisins sem kemur í veg fyrir vöxt þess umfram það sem þar er kveðið á um. Líkt og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, benti á í grein nýverið voru forsendur samkomulagsins stórlega vanmetnar miðað við þróun fólksfjöldans. Hins vegar neitar Reykjavíkurborg alfarið að hvika frá þeim.

Húsnæðismarkaðurinn væri ekki vandamál ef eðlilegt framboð á húsnæði hefði verið til staðar. Þess í stað er uppsafnaður vandi orðinn slíkur að byggja þyrfti mörg þúsund nýjar íbúðir á ári til þess að vinna hann niður. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg situr hins vegar við sinn keip og tekur ekki í mál að ræða annað en þéttingu byggðar sem mun aldrei leysa nema lítinn hluta vandans. Allt of lítið er þannig hægt að byggja á þéttingarreitum og slíkar íbúðir eru iðulega byggðar á svæðum þar sem fasteignaverð er hátt. Fyrir vikið er til að mynda allajafna ekki um að ræða íbúðir á færi fyrstu kaupenda heldur fyrst og fremst vel stæðs fólks.

Verðbólga í boði Viðreisnar

Frá því áður en samkomulagið frá 2015 var gert hefur Samfylkingin farið fyrir meirihlutanum í Reykjavík. Píratar hafa að sama skapi verið hluti hans frá 2014 og Viðreisn undanfarin sex ár. Vel áður en verðbólgan fór á skrið. Með öðrum orðum er ljóst að verðbólgan er að miklu leyti annars vegar í boði meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, þar á meðal og ekki sízt Viðreisnar, og Evrópusambandsins. Fyrir vikið er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að flokkurinn skuli kalla eftir því að Ísland gangi í sambandið, með öllu sem því fylgdi, til þess að bregðast við ástandi sem er að miklu leyti afleiðing ákvarðana ráðamanna í Brussel og hans sjálfs.

Málflutningur Viðreisnar snýst um það að ganga þurfi í Evrópusambandið til þess að lækka vexti. Vísað er í því sambandi ítrekað til lægri vaxta á evrusvæðinu. Hins vegar minnast forystumenn Viðreisnar svo gott sem aldrei á aðrar hagstærðir á svæðinu. Til að mynda tala þeir ekki um hagvöxt þar á bæ eða atvinnuleysi einfaldlega vegna þess að hagvöxtur hefur um langt árabil verið lítill eða enginn innan þess og atvinnuleysi allajafna mikið og viðvarandi. Lágu vextirnir eru þannig ekki birtingarmynd heilbrigðs efnahagsástands á evrusvæðinu heldur þvert á móti. Tilgangur lágra vaxta er jú iðulega sá að reyna að koma atvinnulífinu af stað.

Vandamálið var með öðrum orðum fyrst búið til og síðan er kallað eftir því að það verði leyst með því að fara úr öskunni í eldinn. Um leið er krónunni kennt um allt en evrunni ekkert. Við slíkar aðstæður þykir iðulega nauðsyn að finna blóraböggul. Ekki verra ef það er einhver sem ekki getur varið sig sjálfur. Hins vegar stenzt einfaldlega ekki skoðun að krónan sé vandamálið eins og meðal annars Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur bent á og fært gild rök fyrir. Á sama tíma hvílir evran á efnahagslegum brauðfótum eins og til að mynda Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópusambandsins, hefur varað við.

Vissulega ákveðinn stöðugleiki

Hafa má þetta í huga þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og aðrir forystumenn flokksins halda því fram að krónan sé vandamálið án haldbærra raka og að smjör drjúpi af hverju strái innan Evrópusambandsins. Ekki þarf annað en að lesa skýrslur sem unnar hafa verið fyrir sambandið sjálft til þess að sjá í hversu hörmulegum aðstæðum það er efnahagslega. Nú síðast skýrsla sem samin var af Mario Draghi, fyrrverandi bankastjóra Seðlabanka Evrópusambandsins, og birt var nýverið þar sem dregin er upp vægast sagt kolsvört mynd í þeim efnum. Mögulega les Þorgerður þó ekki gögn frá sambandinu.

Fyrir vikið er ef til vill ekki að furða að fylgi Viðreisnar standi í bezta falli í stað í skoðanakönnunum miðað við síðustu þingkosningar og fari helzt ekki yfir 10%. Þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu og þrátt fyrir hvatningu Þorgerðar til Evrópusambandssinna að ganga til liðs við flokkinn þar sem hann einn legði áherzlu á inngöngu í Evrópusambandið. Vissulega má segja að ákveðinni stöðugleiki felist í fylgi Viðreisnar, sami stöðugleiki og hefur undanfarna áratugi, nokkurn veginn frá því að evran kom til sögunnar, einkennt efnahagslíf evrusvæðisins líkt og lesa má til dæmis um í skýrslu Draghis og heitir réttu nafni efnahagsleg stöðnun.

Hins vegar kemur sú örvænting sem í vaxandi mæli einkennir málflutning Evrópusambandssinna, ekki sízt forystumanna Viðreisnar, ekki á óvart í ljósi þess að verðbólgan, sem líkt og fjallað er um hér að framan er að miklu leyti á ábyrgð flokksins og Evrópusambandsins, er smám saman á niðurleið. Sem væntanlega eru afar jákvæðar fréttir að mati flestra en sennilega ekki allra enda ljóst að ekki hefur tekizt nógu vel að hagnýta sér erfiðleika fólks vegna verðbólgunnar í þágu inngöngu í sambandið. Það er ástæða fyrir því að Viðreisn vill kosningar sem allra fyrst þrátt fyrir að fylgið sé ekki til þess að hrópa húrra yfir.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 16. september 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið og Dómkirkjan. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
„Spilaborgin hrynur einn daginn“
Hverfist allt um lokamarkmiðið
Telja Brussel vera langt í burtu
Tala eingöngu um vextina
Fjármagna enn hernað Rússlands

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb