Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hverfist allt um lokamarkmiðið

Posted on September 2, 2024October 29, 2024 by Fullveldi

Mjög langur vegur er frá því að Evrópusambandið snúist einungis um markaðs- og gjaldmiðilsmál líkt og gjarnan mætti halda miðað við málflutning ófárra talsmanna inngöngu Íslands í sambandið. Jafnvel mætti stundum ætla að Evrópusambandið væri ekki annað en gjaldmiðill miðað við þann málflutning. Raunin er hins vegar sú að evran og flest eða allt annað sem viðkemur sambandinu er fyrst og fremst liður í lokamarkmiði samrunaþróunarinnar innan þess og forvera þess frá upphafi. Að til verði að lokum evrópskt sambandsríki.

Til að mynda kom fram í Schuman-ávarpinu 1950, sem markaði upphaf samrunaþróunarinnar, að fyrsta skrefið væri að koma kola- og stálframleiðslu Evrópuríkja undir eina stjórn en lokaskrefið evrópskt sambandsríki (e. the federation of Europe). Síðan þá hafa jafnt og þétt verið tekin fleiri skref í þá átt. Nú síðast var meðal annars lögð áherzla á áframhaldandi þróun í þá átt í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Þýzkalands. Lykilatriðið er vitanlega orðið áframhaldandi sem vísar til þess að þessi þróun hefur verið í gangi áratugum saman.

Hreinlega hefur verið leitun að pólitískum forystumönnum í ríkjum Evrópusambandsins og stofnunum þess á undanförnum áratugum, og ekki sízt hin síðari ár, sem ekki hafa lýst yfir stuðningi við lokamarkmiðið um eitt ríki. Þar á meðal allir forsetar framkvæmdastjórnar þess undanfarna áratugi og þar með talinn núverandi forseti hennar, Ursula von der Leyen. Samhliða því hefur Evrópusambandið jafnt og þétt öðlast fleiri einkenni ríkis og er fyrir vikið þegar orðið federalískt að stóru leyti. Þar á meðal helztu stofnanir þess.

Hugsaður sem innanlandsmarkaður

Til að mynda hefur innri markaður Evrópusambandsins alltaf verið hugsaður sem innanlandsmarkaður hins fyrirhugaða sambandsríkis og evran gjaldmiðill þess. Þrátt fyrir fullyrðingar um annað snýst sambandið ekki um frjáls milliríkjaviðskipti enda í grunninn tollabandalag en slík bandalög snúast fyrst og fremst um það að vernda framleiðslu innan þeirra fyrir utanaðkomandi samkeppni og eru þannig í eðli sínu andstæðan við frjáls viðskipti á milli ríkja. Hins vegar eru jú allajafna ekki tollar í viðskiptum innan sama ríkisins.

Meint neytendavernd innan Evrópusambandsins snýst gjarnan fyrst og fremst um að vernda hagsmuni innlendra framleiðenda en ekki almennings. Hins vegar hljómar vitanlega mun betur að bera fyrir sig neytendavernd. Þannig kveður regluverk sambandsins um viðskipti við ríki utan þess iðulega á um kostnaðarsamar kröfur til innflutts varnings sem hefur hliðstæð áhrif og tollar enda hafa tæknilegar viðskiptahindranir í formi regluverks að miklu leyti tekið við af þeim í dag sem helzta hindrunin í milliríkjaviðskiptum.

Til að mynda er velþekkt að ákveðnar innfluttar vörur séu bannaðar innan Evrópusambandsins vegna ákveðins innihaldsefnis á sama tíma og aðrar vörur sem innihalda nákvæmlega sama efni eru leyfðar. Skýringin á þessu er allajafna sú að bannaða varan er í beinni samkeppni við framleiðslu innan sambandsins en hin ekki. Hins vegar er það vitanlega ekki gefið upp sem opinber ástæða heldur sagt að með þessu sé verið að standa vörð um hagsmuni neytenda. Innihaldsefnið er auðvitað stórhættulegt í annarri vörunni en ekki hinni.

Stórt skref í átt að lokamarkmiðinu

Hvað evruna varðar hefur margoft verið bent á það að hefði hagfræði ráðið för hefði hún einungis náð til þeirra ríkja Evrópusambandsins sem ættu næga efnahagslega samleið til þess að deila einum og sama gjaldmiðlinum. Ríki eins og Þýzkaland, Frakkland og Benelúx-löndin þar sem hagsveiflan er til að mynda svipuð. Mögulega hefði evran reyndar aldrei orðið til ef tekið hefði verið mið af hagfræðinni. Hins vegar réði pólitík ferðinni. Það er að segja sú pólitík að evran væri stórt skref í áttina að lokamarkmiði samrunans.

Margoft hefur að sama skapi verið bent á þá staðreynd að ekkert myntbandalag í sögunni hafi lifað af til lengri tíma án þess að vera tengt við eitt ríki. Innan evrusvæðisins í dag er ein peningastefna en tuttugu oft á tíðum afar ólíkar efnahagsstefnur sem er ekki sérlega sjálfbær staða. Ófáir virtir hagfræðingar hafa lýst þeirri skoðun sinni að eina leiðin til þess að evran eigi einhverja möguleika til framtíðar sé að Evrópusambandið verði endanlega að einu ríki. Án þess sé einungis tímaspursmál hvenær evrusvæðið liðist í sundur.

Til dæmis hefur evrusvæðið aldrei uppfyllt þau fjögur skilyrði sem lögð eru til grundvallar kenningar kanadíska hagfræðingsins og nóbelsverðlaunahafans Roberts Mundell um hið hagkvæma myntsvæði sem það er þó sagt reist á. Skilyrðin eru hliðstæð hagsveifla, mikill hreyfanleiki vinnuafls, sveigjanleg laun og sameiginlegt kerfi til þess að flytja fé þangað sem þess er þörf. Yfirleitt í formi skattheimtu. Mundell hefur sagt nægjanlegt að uppfylla einungis eitt af skilyrðunum en evrusvæðið hefur til þessa ekki einu sinni gert það.

Fjölmörg einkenni ríkis þegar í höfn

Margt af því sem talið er Evrópusambandinu til tekna og er gjarnan jákvætt í eðli sínu er í raun liður í því að vinna að framgangi lokamarksmiðsins. Ekki sízt til þess að tryggja stuðning við sambandið og um leið lokamarkmiðið. Til að mynda raunveruleg neytendavernd, nemaskipti, sjúkrakort og símareiki. Hæglega væri hægt að semja um slíkt til að mynda sem hluta af víðtækum fríverzlunarsamningum. Til þess þyrfti ekki umfangsmikið, yfirþjóðlegt og miðstýrt skriffinskubákn sem stefnir að því leynt og ljóst að verða að einu ríki.

Mörg einkenni ríkis eru þegar í höfn í samrunaþróuninni innan Evrópusambandsins. Þar á meðal ytri landamæri, ríkisborgararéttur, hæstiréttur, seðlabanki, gjaldmiðill, ökuskírteini, utanríkisþjónusta, alríkislög, sambandsþing sem og ígildi ríkisstjórnar. Það er framkvæmdastjórn sambandsins, handhafi framkvæmdavalds þess. Meira að segja býr það yfir eigin herráði. Evrópusambandið er þegar orðið miðstýrðara en Sviss og jafnvel að ýmsu leyti Bandaríkin. Til dæmis þegar kemur að samspili löggjafar sambandsins og ríkja þess.

Hluti af þróun Evrópusambandsins í átt að lokamarkmiðinu um eitt ríki hefur verið aukin áherzla á það að vægi ríkja innan þess fari fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru. Líkt og fjöldi þingmanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fer eftir íbúafjölda ríkja Bandaríkjanna. Milliríkjasamstarf byggist á hinn bóginn allajafna á því að ríki standi jafnfætis í þeim efnum; eitt ríki, eitt atkvæði. Væri Ísland í sambandinu yrði til að mynda vægi landsins í ráðherraráði þess á við það að hafa einungis 5% af þingmanni á Alþingi.

Samvinna eitt en samruni allt annað

Vegna aðildar Íslands að EES-samningnum hefur samrunaþróun Evrópusambandsins einnig áhrif hér á landi enda fylgir samningurinn henni á því sviði sem hann nær til. Það er innri markaði sambandsins sem síðan er sífellt að teygja sig til fleiri málaflokka með tilheyrandi auknu íþyngjandi regluverki og kröfum um framsal valds yfir íslenzkum málum. Hemillinn sem Ísland ætti að hafa í þeim efnum, svonefnt neitunarvald, virkar hins vegar ekki. Fyrst og fremst vegna þess að íslenzk stjórnvöld leggja ekki í það að beita honum.

Hlutdeild Evrópusambandsins í landsframleiðslu á heimsvísu hefur dregizt jafnt og þétt saman á liðnum árum og var á síðasta ári einungis um 14,5% en var í upphafi aldarinnar rúmlega 20% þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að snúa þeirri þróun við. Fyrir utan annað kemur því vart á óvart að einu ríkin sem sækist eftir inngöngu í Evrópusambandið séu í Austur-Evrópu og þá ekki sízt af ótta við Rússland í ljósi landfræðilegrar legu þeirra þó sambandið hafi raunar sýnt að því sé ekki treystandi í öryggis- og varnarmálum.

Hið sama á við eftirspurnina eftir EES-samningnum. Engin röð ríkja er þannig eftir því að gerast aðili að honum eða semja um hliðstæðan samning við Evrópusambandið. Þvert á móti hafa bæði Bretland og Sviss ítrekað afþakkað slíkt. Þess í stað kjósa ríki heimsins að semja um víðtæka fríverzlunarsamninga varðandi viðskipti sín á milli sem fela ekki í sér vaxandi kröfur um einhliða upptöku íþyngjandi regluverks og framsal valds. Samvinna er jú eitt en samruni allt annað. Þetta er einfaldlega sannleikurinn um sambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 2. september 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Telja Brussel vera langt í burtu
Tala eingöngu um vextina
Fjármagna enn hernað Rússlands
Hættu að spyrja um spillinguna
Hvar er restin af könnuninni?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb