Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hvorugt er né hefur verið raunin

Posted on December 17, 2024 by Fullveldi

Hér á landi hafa ýmsir stuðningsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið fullyrt að sótt verði um inngöngu í sambandið í Noregi eftir næstu þingkosningar þar í landi sem fram fara að óbreyttu eftir rúmt ár án þess þó að færa nokkur haldbær rök fyrir þeirri fullyrðingu. Væntanlega hafa þeir þá eitthvað meiri upplýsingar um það en leiðtogi hreyfingar norskra stuðningsmanna inngöngu í Evrópusambandið.

Haft er þannig eftir Heidi Nordby Lunde, leiðtoga norsku Evrópuhreyfingarinnar, í dagblaðinu Nettavisen í gær að hún teldi ekki að Norðmenn myndu kjósa um inngöngu í Evrópusambandið á næsta kjörtímabili, sem verður frá 2025-2029, aðspurð hvort hún héldi að til þess kæmi í fyrirsjáanlegri framtíð. Hins vegar gæti það mögulega að hennar mati orðið í kringum 2030. Það er að segja á þarnæsta kjörtímabili.

Tilefni fréttarinnar var niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið InFact vann fyrir blaðið og sýnir meirihluta Norðmanna sem fyrr andvígan inngöngu í Evrópusambandið, eða 55,7% á móti 28,3% en meirihluti hefur verið á móti því að Noregur gengi í sambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið frá því í byrjun árs 2005. Til að mynda er meirihluti andvígur inngöngu í öllum aldurshópum.

Fremur bjartsýnt mat frekar en hitt

Viðbúið er að fremur sé um bjartsýnt mat af hálfu Lunde, jafnvel óskhyggju, að ræða fremur en hitt. Hún hefur þannig án efa reynt að vera eins bjartsýn og hún hefur talið unnt og líklega rúmlega það. Fátt ef eitthvað bendir einfaldlega til þess að tekin verði skref í Noregi í átt að inngöngu í Evrópusambandið í fyrirsjáanlegri framtíð ef einhvern tímann hvað sem líður innistæðulausum fullyrðingum hér á landi.

Fyrir utan niðurstöður kannana í Noregi eru flestir stjórnmálaflokkar landsins andvígir inngöngu landsins í Evrópusambandið. Sömu þrír flokkar og lengi hafa verið hlynntir inngöngu eru það enn. Fyrir vikið er enginn meirihluti á norska Stórþinginu fyrir málinu. Þá eru ríkisstjórnir yfirleitt myndaðar til hægri eða vinstri sem þýðir að ekki verða myndaðar ríkisstjórnir einhuga um inngöngu í sambandið.

Hitt er svo annað mál að um gamlan leik er að ræða. Þannig hefur ítrekað verið fullyrt af norskum Evrópusambandssinnum á liðnum áratugum að við Íslendingar værum á leið í Evrópusambandið á sama tíma og hérlendir stuðningsmenn inngöngu í sambandið hafa reglulega fullyrt að það sama ætti við um Norðmenn. Án alls haldbærs rökstuðnings. Hvorugt er hins vegar né hefur verið raunin.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 17. desember 2024)

(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)


Tengt efni:
Veruleikinn
Mýtan um sætið við borðið
„Nei“
Hefðu getað minnkað verðbólguna
Hægt með krónunni?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb