Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Dýrmætt veganesti í forsetaembættið

Posted on May 26, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Víða í lýðveldum Evrópu er fyrir að fara einhvers konar neitunarvaldi forseta. Að sama skapi er velþekkt víða í álfunni að háttsettir ráðherrar, þar á meðal forsætisráðherrar, séu kosnir forsetar og segi þá ekki af sér fyrr en þeir hafa verið kjörnir. Þar á meðal í hinu norræna lýðveldinu, Finnlandi. Hvað hin norrænu ríkin varðar er þjóðhöfðinginn ekki einu sinni kjörinn heldur gengur staðan sem kunnugt er í erfðir.

Varla dettur þó nokkrum í hug að halda því fram að fyrir vikið séu hin Norðurlöndin ekki lýðræðisríki eða að lýðræði þeirra sé á einhvern hátt stefnt í voða. Líkt og einhverjir hafa fullyrt að yrði raunin hér á landi verði Katrín Jakobsdóttir kjörin forseti Íslands. Flestir telja þvert á móti að norrænu ríkin séu fyrirmynd í þeim efnum. Evrópskir forsetar eru þess utan gjarnan þingkjörnir en ekki þjóðkjörnir líkt og hér.

Tal um að Katrínu sé ekki treystandi fyrir málskotsrétti forseta lýðveldisins þar sem hún hafi verið í stjórnmálum stenzt að sama skapi ekki skoðun. Hið sama hefði þá átt við Ólaf Ragnar Grímsson. Þá hafa forsetar Evrópuríkja, sem koma sem fyrr segir iðulega úr stjórnmálum, gjarnan vald til þess að stöðva beinlínis löggjöf frá viðkomandi þjóðþingum en ekki einungis vísa henni í dóm kjósenda líkt og í tilfelli forseta Íslands.

Valdapólitíkus sem sækist eftir minni völdum?

Tveir forsetar Íslands voru þingmenn þegar þeir buðu sig fram til að gegna embættinu og höfðu auk þess báðir verið ráðherrar áður, þeir Ólafur Ragnar og Ásgeir Ásgeirsson. Meðal annars hafði Ásgeir gegnt embætti forsætisráðherra. Hvorugur sagði af sér þingmennsku fyrr en fyrir lá að þeir hefðu náð kjöri. Væntanlega hafa þeir viljað hafa vaðið fyrir neðan sig og geta haldið áfram á þingi næðu þeir ekki kjöri.

Hins vegar sagði Katrín ekki einungis af sér sem forsætisráðherra í kjölfar þess að hún tilkynnti um framboð sitt til embættis forseta Íslands heldur einnig sem þingmaður mörgum vikum fyrir kjördag. Þá afsalaði hún sér enn fremur biðlaunum í kosningabaráttunni. Katrín hefði hæglega getað verið áfram þingmaður og ekki sagt af sér nema hún næði kjöri eins og Ólafur og Ásgeir en kaus þess í stað að setja nýtt fordæmi.

Með öðrum orðum sagði Katrín af sér valdamesta embætti landsins til þess að eiga einungis möguleika á að vera kosin í líklega valdaminnsta embættið í lýðræðislegum kosningum. Þá sagði hún enn fremur af sér þingmennsku sem fyrr segir án þess að þurfa þess auk flokksformennsku. Engu að síður hefur Katrín meðal annars verið sökuð um það að vera „valdapólitíkus“. Hvaða valdapólitíkus hefði staðið þannig að málum?

Hefði ekki sett Icesave-málið í þjóðaratkvæði

Hvað reynslu af stjórnmálum annars varðar, svo ekki sé talað um mikla reynsla í þeim efnum líkt og Katrín býr yfir, getur hún reynzt afar dýrmætt veganesti í forsetaembættið. Forsetinn þarf þannig eðli málsins samkvæmt að eiga í ýmsum samskiptum við stjórnmálamenn og getur jafnvel staðið frammi fyrir mjög erfiðum áskorunum í þeim efnum. Við þær aðstæður getur komið sér afar vel að vita hvernig kaupin gerast þar.

Fullyrða má að Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti lýðveldisins, hefði ekki vísað Icesave-samningunum í þjóðaratkvæði ef ekki hefði verið fyrir mikla reynslu hans úr heimi stjórnmálanna. Það skiptir máli að kunna mannganginn í þeim efnum, vera með þykkan pólitískan skráp og kippa sér ekki upp við það þó stjórnmálamenn láti glitta í tennurnar. Forsetinn þarf þá einfaldlega að geta sýnt þeim tennurnar á móti.

Katrín er vitanlega umdeild vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum. Eðli málsins samkvæmt. Það verða alltaf einhverjir bæði sammála og ósammála þeim sem gefa sig að stjórnmálum. Hins vegar er það í hennar tilfelli fyrst og fremst afleiðing þess að hafa staðið í stafni og þurft að taka ýmsar erfiðar ákvarðanir. Það er enda það sem forystumenn þurfa að geta gert. Þar með talinn og ekki sízt forseti lýðveldisins.

Kjósendur fá það bezta úr báðum hópunum

Hins vegar hefur Katrín sýnt einstakan hæfileika í gegnum tíðina til þess að virkja fólk úr ólíkum áttum til þess að vinna saman að því að finna lausn á erfiðum viðfangsefnum. Hæfileiki sem á góða samleið með embætti forseta lýðveldisins. Sá hæfileiki sýndi sig ekki hvað sízt í tengslum við kjaraviðræður sem skilað hefur til að mynda þeirri viðurkenningu sem felst í stuðningi ófárra verkalýðsforingja við framboð hennar.

Forsetum lýðveldisins hefur annars gjarnan verið skipt í tvo hópa. Þá sem komið hafa úr stjórnmálum og hina sem komið hafa úr fræða- og menningarheiminum. Með Katrínu fengi þjóðin í raun tvo fyrir einn í þeim efnum. Forseta með bæði mikla reynslu úr heimi stjórnmálanna, sem reynzt hefur þeim forsetum afar vel sem búið hafa að henni, og sem látið hefur sér annt um menningu þjóðarinnar og ekki sízt tungumálið.

Vegna veru sinnar í sviðsljósi stjórnmálanna um árabil og undir smásjá fjölmiðla og annarra býr Katrín enn fremur yfir öðrum ótvíræðum kosti. Kjósendur vita fyrir vikið í raun nákvæmlega hvað felst í því að greiða henni atkvæði sitt. Kosti þess og galla. Þar hefur í raun öllum steinum verið velt við. Fólk sér ekki einungis einhverjar vel hannaðar umbúðir heldur fylgir með ítarleg innihaldslýsing. Fólk veit hvað það fær.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 26. maí 2024)

(Ljósmynd: Alexander Stubb, forseti Finnlands og fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Eigandi: NN – norden.org)


Tengt efni:
Hvaðan kemur fylgi Katrínar?
Mesti stjórnmálamaðurinn?
Vill ekki lengur íslenzkan her?
Hvers vegna þurfti að farga bókinni?
Mynda þurfti ríkisstjórn

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb