Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Drögumst aftur úr vegna EES

Posted on April 8, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Haft var eftir Sigríði Mogensen, nýjum formanni ráðgjafarnefndar EFTA, í Viðskiptablaðinu fyrr á árinu að íþyngjandi regluverk innan Evrópu hefði haft neikvæð áhrif á ríki álfunnar. Evrópa væri fyrir vikið að dragast aftur úr öðrum efnahagssvæðum í heiminum í iðnaði sem gæti haft slæm áhrif á lífskjör. Þar væri Ísland ekki undanskilið. Sérstök áherzla yrði lögð á samkeppnishæfni í formennsku hennar.

„Það sem er að gerast er að Evrópa er að dragast aftur úr öðrum efnahagssvæðum í verðmætasköpun eða í landframsleiðslu á mann og þar með lífskjörum. Þetta er áhyggjuefni sem er mikið í umræðunni núna innan ESB og Ísland er þar ekki undanskilið. Við eigum alltaf að vera hugsa um hvernig regluverk, reglur og lög, sem er sett hefur áhrif á verðmætasköpun og samkeppnishæfni,“ sagði Sigríður enn fremur.

Mestu skipti að auka samkeppnishæfni EFTA/EES-ríkjanna og innri markaðar Evrópusambandsins. „Af því við höfum í raun áhyggjur af skertri samkeppnishæfni og áhrifum íþyngjandi löggjafar á samkeppnishæfni ríkjanna.“ Þá væri enn fremur mikilvægt að taka á svonefndri gullhúðun. Það er þegar regluverk frá sambandinu í gegnum EES-samninginn er innleitt meira íþyngjandi hér á landi en það kemur þaðan.

Endalok dýrðardaga Evrópusambandsins

Forystumenn Evrópusambandsins hafa ekki séð sér annað fært á undanförnum árum en að gangast við þeim veruleika að sambandið sé hnignandi markaður miðað við það sem er að gerast víðast hvar annars staðar og að regluverk þess sé iðulega afar íþyngjandi. Lausn þeirra hefur hins vegar allajafna verið meiri samruni innan Evrópusambandsins, meira framsal valds, meiri miðstýring – og meira regluverk.

„Frá efnahagslegum sjónarhóli horfum við fram á endalok dýrðardaga Evrópusambandsins í samanburði við það sem aðrir eru að gera,“ sagði til að mynda Jean-Claude Juncker, þáverandi forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, í ræðu í Madrid, höfuðborg Spánar, í október 2015. „Evrópusambandinu gengur ekki mjög vel,“ sagði hann enn fremur. Þannig stæði sambandið frammi fyrir efnahagslegri hnignun.

Vakti Juncker þannig athygli á því í ræðu sinni að hlutdeild Evrópusambandsins í hagvexti á heimsvísu færi minnkandi og yrði innan skamms einungis 15% á meðan 80% af hagvextinum yrði til í ríkjum utan þess. Hlutdeild sambandsins er í dag komin niður fyrir 15% en til samanburðar var hún tvöfalt meiri fyrir aldarfjórðungi síðan. Þá er gert ráð fyrir því að hlutdeild þess verði komin undir 10% fyrir árið 2050.

Stærsta vandamálið er sjálft regluverkið

Vaxandi umræða hefur farið fram hér á landi undanfarin ár um þau neikvæðu áhrif sem íþyngjandi regluverk hefur á atvinnulífið og lífskjör fólks. Bæði íþyngjandi regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og þegar illt er gert verra með gullhúðun þess. Hins vegar er ljóst að stærsta vandamálið er ekki gullhúðunin, þó taka þurfi hana föstum tökum, heldur sjálft regluverkið úr smiðju sambandsins.

Til að mynda kemur fram í skýrslu ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur frá árinu 2016 að mikill meirihluti íþyngjandi löggjafar fyrir atvinnulífið kæmi frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og að dræman árangur í einföldun íþyngjandi regluverks hér á landi mætti einkum rekja til þess að slíkt regluverk kæmi aðallega þaðan. Þá hefði gullhúðun á regluverki frá sambandinu átt sér stað í þriðjungi tilvika.

„Það er ekki um það að ræða að við getum einfaldað regluverkið upp á okkar eindæmi nema að litlu leyti meðan við erum aðili að EES-samningnum,“ hafði ViðskiptaMogginn eftir Guðrúnu Þorleifsdóttur, skrifstofustjóra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. nóvember síðastliðinn. Við getum þannig tekið á gullhúðuninni en ekki breytt innleiddri löggjöf frá Evrópusambandinu á meðan Ísland er aðili að samningnum.

Regluverkið í gegnum EES orðið of flókið

Fyrir vikið hafa þær aðgerðir, sem stjórnvöld hafa gripið til á liðnum árum til þess að einfalda regluverk, eingöngu snúið að regluverki sem heyrir ekki undir EES-samninginn. Til að mynda regluverk um sjávarútveg. Eins var að sama skapi tekið sérstaklega fram í samkeppnismati OECD fyrir ríkisstjórnina á regluverki um ferðaþjónustu og byggingariðnað árið 2020 að matið næði ekki til regluverks frá Evrópusambandinu.

„Ég held að það sé ógerningur fyrir fólk sem vinnur ekki við þetta að gera sér í hugarlund hversu umfangsmikið og flókið regluverkið er orðið,“ sagði Unnur Gunnarsdóttir, þáverandi varaseðlabankastjóri Fjármálaeftirlits Seðlabankans, við Innherja í lok árs 2021 um regluverk frá Evrópusambandinu um fjármálamarkaðinn. Tók hún þar undir orð kollega sinna frá Danmörku og Noregi um að regluverkið væri of flókið.

Hliðstæð gagnrýni kom fram í máli Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, í Dagmálum í ágúst 2022 þar sem hún sagði að eftirlitskröfur, sem rekja mætti til regluverks frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn, þýddu að sífellt meiri vinna færi í skriffinsku. Virkt eftirlit væri mikilvægt en að það mætti hins vegar ekki verða svo íþyngjandi að starfsfólk væri aðallega að horfa í baksýnisspegilinn.

Minna íþyngjandi reglur eða alls engar

Við erum í raun þannig í verstu mögulegu stöðu í þessum efnum fyrir utan inngöngu í Evrópusambandið þar sem allt regluverk þess væri undir og vægi Íslands færi aðallega eftir íbúafjölda landsins. Á sama tíma og óheimilt er þannig að innleiða regluverk frá sambandinu minna íþyngjandi en það kemur í gegnum EES-samninginn hefur hérlend stjórnsýsla í reynd fullt svigrúm til þess að innleiða það meira íþyngjandi.

Talað er gjarnan um að EES-samningurinn þýði að íslenzkt atvinnulíf sé samkeppnishæft á við atvinnulíf annarra ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins en nær er að segja að vegna hans sé hérlent atvinnulíf jafn ósamkeppnishæft og það. Markmiðið hlýtur að vera að hérlent atvinnulíf verði sem samkeppnishæfast og þar með til að mynda samkeppnishæfara en atvinnulíf annarra ríkja innan svæðisins.

Með aðildinni að EES-samningnum erum við Íslendingar þannig í vaxandi mæli bundnir á regluverksklafa hnignandi markaðar. Væri samningnum hins vegar skipt út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning, líkt og flest ríki heimsins kjósa að semja um í dag, þar á meðal stærstu efnahagsveldin með sína miklu hagsmuni, væri mögulegt að setja minna íþyngjandi reglur í stað regluverks frá Evrópusambandinu eða alls engar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 8. apríl 2024)

(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)


Tengt efni:
Höfum aldrei notið fulls tollfrelsis
Með of mikil völd
Vilja fríverzlunarsamning í stað EES
Hindrar fríverzlun við Bandaríkin
Hvað gerir Bjarni við bókun 35?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb