Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Þegar þú vilt miklu meira bákn

Posted on April 27, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Meðal þess sem fram kemur í gögnum Evrópusambandsins vegna misheppnaðrar umsóknar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um inngöngu í sambandið á árunum 2009-2013 er að inngangan hefði kallað á mjög umfangsmikla stofnanauppbyggingu, eins og útþensla hins opinbera kallast á stjórnsýslumáli, til þess að Ísland gæti staðið undir þeim skuldbindingum sem fylgdu henni. Komið hefur þannig beinlínis fram í gögnum Evrópusambandsins að stjórnsýslan hér á landi sé allt of lítil að mati þess.

Mjög sérstakt er fyrir vikið þegar forystumenn Viðreisnar gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumáls hans taka mið af og hann var beinlínis stofnaður í kringum, er að Ísland gangi í Evrópusambandið. Nú síðast Gabríel Ingimarsson, forseti ungliðahreyfingar flokksins, í grein á Vísir.is fyrir helgi. Full ástæða er til þess að veita umsvifum hins opinbera öflugt aðhald en gagnrýni í þeim efnum úr röðum Viðreisnar er hins vegar fullkomlega ótrúverðug.

„Stjórnsýsla Íslands er lítil“

Til að mynda er fjallað um smæð íslenzku stjórnsýslunnar að mati Evrópusambandsins í skjali frá árinu 2011 á vegum framkvæmdastjórnar sambandsins sem nefnist „Commission decision of 08.04.2011 on a Multi-annual Indicative Planning Document (MIPD) 2011-2013 for Iceland“ og unnið var í tengslum við umsókn vinstristjórnarinnar um inngöngu í það. Þar leynir sér ekki það álit Evrópusambandsins að hérlend stjórnsýsla sé vegna smæðar engan veginn í stakk búin til þess að ráða við inngöngu í sambandið:

„Heilt á litið er stjórnsýslan lítil og býr við takmarkaðar fjárveitingar. […] Ísland mun þurfa að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf Evrópusambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan sambandsins krefst. […] Stjórnsýsla Íslands er lítil. Hjá stjórnarráðinu starfa um 700 opinberir starfsmenn og það samanstendur af tíu ráðuneytum. Undir hvert þeirra heyrir nokkur fjöldi opinberra stofnana. Ráðuneytin eru lítil og hafa á bilinu 26 til 214 starfsmenn.“

Miðast við tugmilljónaþjóðir

Með öðrum orðum er deginum ljósara að farið yrði úr öskunni í eldinn og vel rúmlega það þegar kemur að umfangi hins opinbera hér á landi ef til þess kæmi að Ísland gengi í Evrópusambandið. Það sem sambandið telur allt of lítið vilja forystumenn Viðreisnar telja kjósendum trú um að þeir telji þvert á móti allt of stórt. Sú afstaða Evrópusambandsins þarf þó ekki að koma mjög á óvart enda miðast regluverk þess við stjórnsýslu milljóna- og tugmilljónaþjóðir sem þó þykir mörgum nóg um regluverksframleiðslu sambandsins.

Til að mynda er ekki langt síðan Jesper Berg, forstjóri danska fjármálaeftirlitsins, sagði við Financial Times að regluverk Evrópusambandsins um fjármálamarkaði væri orðið of umfangsmikið og fyrir vikið væri hætta á því að týnast í smáatriðum í stað þess að leggja áherzlu á mögulegar áhættur. Þrátt fyrir hundruð starfsmanna gæti stofnunin ekki bæði haft umsjón með innleiðingu á flóknu regluverki og staðið fullnægjandi vörð um fjármálakerfið. Tók Morten Baltzersen, forstjóri norska fjármálaeftirlitsins, í sama streng.

Krafizt vaxandi framsals valds

Við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af þessari þróun vegna aðildarinnar að EES-samningnum enda fylgir samningurinn samrunaþróuninni innan Evrópusambandsins á því sviði sem hann nær til, innri markaði þess, með tilheyrandi vaxandi kröfum um meira framsal valds og upptöku íþyngjandi regluverks sem gjarnan kallar á aukið umfang hins opinbera. Rannsóknir benda til þess að stærstur hluti íþyngjandi löggjafar á Íslandi komi frá sambandinu í gegnum saminginn og að svonefnd gullhúðun eigi sér stað í minnihluta tilfella.

Hvernig sem á málið er litið er þannig ljóst að gagnrýni á umfang stjórnsýslunnar á enga samleið með þeirri stefnu að ganga í Evrópusambandið. Sama gildir um áframhaldandi aðild að EES-samningnum. Sé raunverulegur vilji til þess að draga úr yfirbyggingunni hér á landi er ekki aðeins mikilvægt að standa áfram utan sambandsins heldur einnig að skipta EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning sem er sú leið sem allajafna er farin í dag þegar samið er um milliríkjaviðskipti. Þar á meðal af hálfu Evrópusambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 27. apríl 2024)

(Ljósmynd: Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: gov.si)


Tengt efni:
Hvatt til pólitískrar tvöfeldni
Hvað eru mikilvægir hagsmunir?
Væri ekki hægt að ljúka ferlinu
Hvar er stóraukna fylgið?
„Við áttum aldrei möguleika“

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb