Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Væri ekki hægt að ljúka ferlinu

Posted on April 3, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Kæmi til þess að Ísland sæktist eftir inngöngu í Evrópusambandið yrði ekki hægt að ljúka umsóknarferlinu nema allir stjórnarflokkarnir styddu heilshugar þá ákvörðun að ganga í sambandið og hefðu þingmeirihluta að baki sér fyrir henni. Ekki einungis í upphafi heldur allt til loka ferlisins enda þyrfti að taka ákvarðanir tengdar umsókninni jafnt og þétt á meðan á því stæði. Án þess yrði auk þess farið í bága við þingræðisregluna.

Textinn hér að ofan er óbein tilvitnun í skrif Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi sendiherra, í Fréttablaðinu þegar misheppnuð umsókn ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var í gangi. Þorsteinn fjallaði ítrekað í pistlum sínum í blaðinu um það að ríkisstjórn, sem ekki væri samstíga um inngöngu í Evrópusambandið, gæti ekki staðið að slíkri umsókn ef hún ætti að skila tilætluðum árangri.

Tilefni skrifa Þorsteins, sem óhætt er að kalla guðföður Viðreisnar, var sú staðreynd að á meðan Samfylkingin var hlynnt inngöngu í Evrópusambandið var VG það ekki. Fyrir vikið var engin samstaða í stjórninni þegar til dæmis þurfti að samþykkja lokun einstakra kafla umsóknarferlisins að sambandinu á fundum hennar. Þannig voru til að mynda ítrekað gerðir hinir ýmsu fyrirvarar í þeim efnum af hálfu tiltekinna ráðherra.

Færi gegn þingræðisreglunni

„Frá upphafi hefur verið ljóst að andstaða VG við aðild að ESB myndi veikja samningsstöðu Íslands. Eftir því sem nær dregur efnislegum viðræðum verður þetta vandamál skýrara,“ ritaði Þorsteinn til dæmis í Fréttablaðið 23. október 2010 og enn fremur: „Viðræður af þessu tagi lúta sömu lögmálum og aðrir samningar. Ákvarðanir þarf að taka jafnt og þétt eftir því sem þeim vindur fram.“ Þann 20. nóvember sama ár ritaði hann:

„Sú pólitíska tvöfeldni VG að greiða atkvæði með aðildarumsókn en vera jafnframt á móti aðild veikir stöðu Íslands í samningaviðræðum. Hún útilokar jafnframt að unnt verði að ljúka samningnum nema fleiri flokkar verði þá tilbúnir til að axla ábyrgð á niðurstöðunni. Ástæðan er sú að það er andstætt þingræðisreglunni að utanríkisráðherra undirriti samning ef meirihluti þingmanna styður ekki efni hans.“

Enn fremur ritaði Þorsteinn til að mynda í blaðið 15. janúar 2011 að án þingmeirihluta sem ábyrgðist undirritun slíks samnings yrði hann ekki að veruleika: „Veruleikinn er sá að báðir stjórnarflokkarnir þurfa að gangast undir sameiginlega ábyrgð á samningaferlinu öllu. Aðrir kostir eru að hætta við eða slíta samstarfinu.“ Með öðrum orðum að flokkar andvígir inngöngu í Evrópusambandið gætu ekki staðið að slíkri umsókn.

Kvartað yfir klofinni ríkisstjórn

Fulltrúar Evrópusambandsins, sem höfðu það verkefni með höndum að hafa eftirlit með framgangi umsóknar ríkisstjórnar vinstriflokkanna lýstu því ítrekað yfir á meðan umsóknarferlið var í gangi að það ylli verulegum áhyggjum að ríkisstjórnin væri ekki samstíga í afstöðu sinni til þess hvort ganga ætti í sambandið. Einnig að innan stjórnarflokkanna væri ekki einhugur um málið. Voru með öðrum orðum sammála Þorsteini.

Til að mynda segir þannig í þingsályktunartillögu dagsettri 13. nóvember 2012 sem þingmaðurinn Cristian Dan Preda ritaði sem fulltrúi utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins um framvindu umsóknarinnar og samþykkt var með 56 atkvæðum gegn tveimur: „Þing Evrópusambandsins ítrekar áhyggjur sínar af pólitískum ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar og stjórnmálaflokkanna varðandi inngönguna í það“.

Talsvert nýr tónn hefur hins vegar verið sleginn af hálfu Þorsteins í seinni tíð. Þannig kallaði hann um páskana eftir þjóðaratkvæði fyrir lok ársins um það hvort stefna ætti á nýjan leik að inngöngu í Evrópusambandið í grein á Dv.is líkt og Viðreisn hefur gert. Með öðrum orðum er nú í góðu lagi að hans mati að ríkisstjórn sem er alfarið andvíg inngöngu standi að því að taka skref í þá átt. Hvað ætli sambandinu þætti um það?

Forsendan samstíga ríkisstjórn

Forsenda þess að tekin verði skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið er þingmeirihluti fyrir málinu, kjörinn af íslenzkum kjósendum, og ríkisstjórn samstíga um það eins og Þorsteinn benti réttilega á í umræddum skrifum sínum í Fréttablaðinu. Annars verða engar slíkar ákvarðanir teknar. Flokkar andvígir inngöngu í sambandið geta ekki staðið að slíku nema með því að hafa að engu það sem þeir sögðu við kjósendur.

Vitanlega er öllum frjálst að skipta um skoðun. Hins vegar er ljóst að áðurnefnd skrif Þorsteins í Fréttablaðinu eru í fullu samræmi við reynsluna af umsókn vinstristjórnarinnar, fyrirkomulag umsóknarferlisins, íslenzka stjórnskipun og afstöðu Evrópusambandsins. Ný afstaða hans er á hinn bóginn í fullkomnu ósamræmi við reynslu vinstristjórnarinnar, fyrirkomulag ferlisins, stjórnskipun landsins sem og afstöðu sambandsins.

Viðreisn, eini flokkurinn sem leggur áherzlu á inngöngu í Evrópusambandið, ber vitanlega ein ábyrgð á því að vinna að stefnumálum flokksins, afla honum fylgis út á þau og hrinda þeim í framkvæmd en ekki aðrir. Hins vegar er skiljanlegt að forystumenn Viðreisnar, Þorsteinn þar með talinn, leiti logandi ljósi að leiðum til þess að komast í kringum þann veruleika í ljósi fylgisleysis flokksins bæði í kosningum og könnunum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 3. apríl 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hvar er stóraukna fylgið?
Óáreiðanleg Evrópuríki
„Við áttum aldrei möguleika“
Fimm prósent af þingmanni
Viðreisn hætt við ESB

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb