Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Stefnt að einu ríki frá upphafi

Posted on April 7, 2022 by Fullveldi

Fyrir síðustu jól tók ný ríkisstjórn við völdum í Þýzkalandi undir forystu þýzka Jafnaðarmannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar. Um samsteypustjórn er að ræða og eiga Frjálslyndir demókratar, systurflokkur Viðreisnar, einnig aðild að ríkisstjórninni auk Græningja. Á meðal þess sem fram kemur í stjórnarsáttmála flokkanna er að áfram skuli unnið að því að Evrópusambandið verði endanlega að sambandsríki eða eins og það er orðað á þýzku: „föderalen europäischen Bundesstaat“. Hefur Olaf Scholz, kanzlari Þýzkalands og leiðtogi jafnaðarmanna, lýst því yfir að um sé að ræða eitt helzta markmið stjórnarinnar.

Stefna þýzku ríkisstjórnarinnar þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess að lokamarkmið samrunaþróunarinnar innan Evrópusambandsins og forvera þess hefur frá upphafi verið að til yrði að á endanum eitt sambandsríki. Líkt og til dæmis má lesa um í endurminningum franska diplómatans Jeans Monnet sem gjarnan hefur verið nefndur faðir samrunaþróunarinnar, þá einkum af Evrópusambandssinnum, vegna lykilhlutverks hans við að koma þróuninni af stað og fylgja henni eftir fyrstu áratugina. Stefna þýzku ríkisstjórnarinnar er þannig í fullu samræmi við lokamarkmið samrunans en lykilatriðið í stefnunni er einmitt orðið „áfram“.

Fyrsta skrefið í að breyta Evrópu í sambandsríki

Til að mynda segir þannig í Schuman-yfirlýsingunni frá 1950, sem markaði upphaf forvera Evrópusambandsins, að þar með væri lagður grunnur að efnahagsþróun sem væri fyrsta skrefið á þeirri vegferð að breyta Evrópu í sambandsríki. Monnet lýsir því í endurminningum sínum hvernig unnið hafi verið markvisst, leynt og ljóst, skref fyrir skref, að lokamarkmiðinu um eitt ríki en til þess að styðja við þá vinnu setti hann meðal annars á laggirnar nefnd sem hann kallaði Aðgerðanefnd um Bandaríki Evrópu (e. Action Committee for the United States of Europe) sem í sátu fulltrúar helztu stjórnmálaflokka og verkalýðsfélaga í Vestur-Evrópu.

Hreinlega er leitun að pólitískum forystumönnum í ríkjum Evrópusambandsins á undanförnum áratugum, og ekki sízt hin síðari ár, sem ekki hafa lýst yfir stuðningi við lokamarkmiðið um eitt ríki. Þar á meðal allir forsetar framkvæmdastjórnar þess undanfarna áratugi og þar með talinn núverandi forseti hennar, Ursula von der Leyen. Þetta á ekki sízt við um forystumenn í þýzkum stjórnmálum en lokamarkmiðið hefur hins vegar ekki áður ratað í þarlendan stjórnarsáttmála. Samhliða því hefur Evrópusambandið jafnt og þétt öðlast fleiri einkenni ríkis og er fyrir vikið þegar orðið federalískt að stóru leyti. Þar á meðal helztu stofnanir þess.

Vilja ekki ræða um lokamarkmið samrunans

Fjallað var um stefnu þýzku stjórnarinnar í fjölmiðlum í kringum áramótin og tók Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, málið upp á Alþingi í kjölfarið í umræðum um störf þingsins. Kallaði hún þar eftir viðbrögðum þingmanna Samfylkingarinnar og Viðreisnar vegna stefnu ríkisstjórnar systurflokka þeirra í Þýzkalandi. Skemmzt er hins vegar frá því að segja að viðbrögðin voru sama og engin og hafa verið það síðan. Viðbrögðin, eða öllu heldur tilfinnanlegur skortur á þeim, koma þó ekki beinlínis á óvart enda hefur lengi legið fyrir að um væri að ræða afar viðkvæmt mál í röðum Evrópusambandssinna.

Vert er að hafa í huga að hér eru á ferðinni sömu aðilar sem farið hafa nokkuð mikinn að undanförnu og viljað ræða Evrópusambandið. Sem er vitanlega alveg sjálfsagt. En þar hlýtur lokamarkmið samrunans innan sambandsins að vera algert lykilatriði. Hver þróunin til þessa hefur verið og hvert hún stefni. Þetta og margt fleira, eins og það að vægi ríkja innan Evrópusambandsins fari fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru samkvæmt reglum sambandsins sem auðvitað er einnig algert lykilatriði sem og skref í átt að lokamarkmiðinu, vill það hins vegar alls ekki ræða. Skiljanlega. Það hentar ekki málstaðnum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 7. apríl 2022)

(Ljósmynd: Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Vægi ríkja ESB fer eftir íbúafjölda
Ríkisstjórn Þýzkalands vill evrópskt sambandsríki
Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
Flýti fyrir Bandaríkjum Evrópu

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb