Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Heim
  • Fréttir
  • Greinar
  • Skýrslur
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Fullkominn aðstöðumunur

Posted on 31/05/202222/10/2022 by Fullveldi

Hver sem ástæðan kann að vera fyrir því að dómstóll Evrópusambandsins hefur hætt réttarfarslegu samtali við EFTA-dómstólinn við framkvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES), og hvort sem það getur talizt skiljanlegt eður ei, þá breytir það vitanlega engu um það grundvallaratriði að dómstóll sambandsins getur hvenær sem er hætt umræddu samtali einhliða án þess að tilgreina nokkra ástæðu fyrir því.

Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Carl Baudenbacher, segir í annarri svargrein til mín í Morgunblaðinu 19. maí að dómstóll Evrópusambandsins hafi að líkindum látið af réttarfarslega samtalinu við EFTA-dómstólinn vegna þess að dregið hafi að hans mati úr gæðum dóma síðarnefnda dómstólsins. Ekki ætti að koma á óvart að dómstóli Evrópusambandsins hafi ekki líkað vinnubrögð hans og fyrir vikið hætt samtalinu.

Vel kann að vera að þarna sé skýringin á ákvörðun dómstóls Evrópusambandsins. Hins vegar kristallast í því eins og öðru, líkt og ég hef rakið í fyrri greinum mínum, fullkominn aðstöðumunur dómstólanna tveggja samkvæmt EES-samningnum. Þannig getur EFTA-dómstóllinn ekki leyft sér að sama skapi að hunza dómaframkvæmd dómstóls sambandsins sama hvað honum annars kann að þykja um gæði niðurstaðna hans.

Þarf ekki að stóla á gagnkvæma virðingu

Dómsforsetinn fyrrverandi segir enn fremur að lagaskylda tryggi ekki jafnræði eða gagnkvæma virðingu og vísar þar til þess að EFTA-dómstólnum ber lögum samkvæmt skylda til þess að taka mið af dómaframkvæmd dómstóls Evrópusambandsins en ekki á hinn veginn. Hins vegar tryggir lögbinding vitanlega jafnræði að lögum þegar henni er fyrir að fara og eins ójafnræði þegar sú er raunin líkt og í tilfelli dómstólanna tveggja.

Hitt er svo annað mál að réttarfarslegt samtal á milli EFTA-dómstólsins og dómstóls Evrópusambandsins, sem líkt og Baudenbacher viðurkennir er hvergi skráð með bindandi hætti og alls ekki lögformlega, getur á engan hátt tryggt jafnræði þegar EES-samningurinn segir annað, líkt og ég hef bent á í fyrri greinum mínum, enda einungis um verklag að ræða. Eins og hefur nú verið áréttað með ákvörðun dómstóls sambandsins.

Hvað gagnkvæma virðingu varðar á það sama við í þeim efnum. EFTA-dómstólnum ber þannig lagaleg skylda til þess að fylgja dómaframkvæmd dómstóls Evrópusambandsins algerlega óháð því hvort gagnkvæmri virðingu er fyrir að fara á milli dómstólanna eða ekki. Dómstóll sambandsins þarf fyrir vikið ekki að leggja traust sitt á það að slíkt sé fyrir hendi enda eru lagalegir yfirburðir hans einfaldlega tryggðir í EES-samningnum.

Regluverk sem við getum ekki breytt

Deginum ljósara er þannig, sama hvernig á málið er litið, að dómstólarnir tveir sitja alls ekki við sama borð. Um það er EES-samningurinn mjög skýr og framganga dómstóls Evrópusambandsins hefur áréttað þá staðreynd enn frekar. Valkvætt er fyrir hann hvort og þá að hve miklu leyti hann horfir til dómaframkvæmdar EFTA-dómstólsins sem sjálfur hefur ekki val um það hvort hann taki mið af dómum dómstóls sambandsins.

Það eitt að dómstóll Evrópusambandsins hafi í sumum tilfellum kosið að vísa í dóma EFTA-dómstólsins er engin sönnun fyrir því að það sé ekki valkvætt þegar bæði EES-samningurinn og framganga dómstóls sambandsins segja allt annað. Þá má árétta að Koen Lenaerts, forseti dómstóls Evrópusambandsins, deilir ljóslega ekki skoðun Baudenbachers og getur ólíkt honum, líkt og ég, vísað í samninginn máli sínu til stuðnings.

Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum. Leið sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara í dag þegar þau semja um milliríkjaviðskipti. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum og í enn ríkari mæli inngöngu í Evrópusambandið, felur ekki í sér vaxandi framsal valds yfir eigin málum og vaxandi hindranir í vegi viðskipta við aðra heimshluta í formi regluverks sem er ekki okkar og við getum ekki breytt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður í Morgunblaðinu 31. maí 2022)

(Ljósmynd: Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins. Eigandi: EFTA Secretariat)


Tengt efni:
Hefur augljósa yfirburðastöðu
Tveir ójafnir dómstólar
Stjórnsýslan ekki nógu stór
Dýr aðgöngumiði að EES-samningnum
Meira regluverk og minna svigrúm

HELZTU GREINAR


Meginvandinn er sjálft regluverkið

Talsvert hefur verið rætt á undanförnum árum um svonefnda gullhúðun við innleiðingu á lagagerðum frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum. Er þar vísað til þess þegar gerðir eru innleiddar hér á landi meira íþyngjandi en þær koma frá sambandinu. Um er að ræða mál sem full ástæða er til þess að taka föstum tökum en á sama tíma er ljóst að ekki er um að ræða meginvandann í þeim efnum.



Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi

Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast frá þingkosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári síðan samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana í kjölfar þess að nýr formaður, Kristrún Frostadóttir, tók við flokknum. Fylgið hefur þannig farið úr tæpum 10% í kosningunum í um 20%. Kannanir benda til þess að þar vegi þungt ákvörðun formannsins um það að setja stefnu flokksins um inngöngu í Evrópusambandið á ís.



Með hálfan þingmann á Alþingi

Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif innan sambandsins, fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana Evrópusambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Kæmi til þess að Ísland gengi í sambandið yrði landið fámennasta ríki þess og með vægi í samræmi við það.


Færslur

  • Minna svigrúm til viðskiptasamninga
  • Dvínandi eða vaxandi?
  • Dvínandi stuðningur við inngöngu í ESB
  • Flotið vakandi að feigðarósi
  • Tvennt hægt að gera við tillögurnar
  • Meginvandinn er sjálft regluverkið
  • Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi
  • „Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
  • Með hálfan þingmann á Alþingi
  • Frelsið til þess að ráða eigin málum
  • Hlutleysi veitir enga vörn
  • Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
  • Viðreisn og báknið
  • Setur Viðreisn í vanda
  • Treysta ekki ESB í varnarmálum
  • Dönsk stjórnarskrá?
  • Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
  • Hverju ætti ESB að bæta við?
  • Pólitíski ómöguleikinn
  • Að virða niðurstöður kosninga
©2023 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb