Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Fordæmi Katrínar

Posted on April 15, 2024December 3, 2024 by Fullveldi

Tveir forsetar lýðveldisins voru þingmenn þegar þeir buðu sig fram til að gegna embættinu og höfðu auk þess báðir verið ráðherrar áður, þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Ásgeir Ásgeirsson. Hvorugur þeirra sagði af sér þingmennsku fyrr en fyrir lá að þeir hefðu náð kjöri. Ásgeir var auk þess bankastjóri Útvegsbankans og sagði að sama skapi ekki af sér þeirri stöðu fyrr en ljóst var að hann hefði landað forsetaembættinu.

Hins vegar hefur Katrín Jakobsdóttir sagt sig frá öllum pólitískum trúnaðarstörfum í kjölfar þess að hún tilkynnti framboð sitt til embættis forseta Íslands. Ekki einungis sem formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og forsætisráðherra heldur einnig sem þingmaður mörgum vikum áður en úrslit kosninganna liggja fyrir. Með því hefur hún með afgerandi hætti undirstrikað það að hún sé hætt þátttöku í stjórnmálum.

Katrín hefði hæglega getað verið áfram þingmaður, og lagalega séð forsætisráðherra líka eins og Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti, hefur bent á, og ekki sagt af sér nema hún næði kjöri. Katrín kaus hins vegar að segja strax af sér og setja þar með nýtt fordæmi. Þá hefur hún afsalað sér biðlaunum, sem hún á fullan rétt til, á meðan á kosningabaráttunni stendur.

Finnland ekki þroskað lýðræðisríki?

Fullyrðingar um að ekkert dæmi sé um það að sitjandi forsætisráðherra hafi farið í forsetaframboð í þroskuðu lýðræðisríki í Evrópu standast ekki skoðun. Enginn skortur er á dæmum um það að háttsettir ráðherrar í álfunni, til að mynda forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar og fjármálaráðherrar, sem og þingmenn og flokksformenn hafi farið í forsetaframboð og þá iðulega ekki sagt af sér embætti nema þeir hafi náð kjöri.

Til að mynda má nefna í þeim efnum Mauno Koivisto, fyrrverandi forseta Finnlands, líkt og Stefán Pálsson sagnfræðingur gerði í samtali við mbl.is á dögunum. Koivisto lét ekki af embætti forsætisráðherra fyrr en daginn áður en hann tók við forsetaembættinu 1982. Stefán nefndi einnig Törju Halonen til sögunnar sem sagði ekki af embætti utanríkisráðherra Finnlands fyrr en eftir að hafa verið kjörin forseti árið 2000.

Enn fremur má til dæmis nefna þá Carlo Azeglio Ciampi sem var kosinn forseti Ítalíu 1999 og fór beint í embætti forseta úr stóli fjármálaráðherra landsins, Edgars Rinkēvičs sem var kjörinn forseti Eistlands á síðasta ári og sagði af sér embætti utanríkisráðherra sama dag og hann tók við forsetaembættinu og Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýzkalands, sem var enn utanríkisráðherra landsins þegar hann var tilnefndur.

Fordæmi bæði innan lands og utan

Hvernig sem á málið er annars litið er vægast sagt vandséð hvernig hægt er að fá það út að í því felist valdasækni að segja af sér valdamesta embætti landsins auk þingmennsku og formennsku í stjórnmálaflokki til þess að bjóða sig fram í embætti sem ekki sízt í samanburði hefur sáralítil völd og það löngu áður en nokkuð liggur fyrir um það hvernig kosningarnar fara. Þvert á móti er ljóslega verið að sækjast eftir miklu minni völdum.

Hvað varðar tal um það að framboð Katrínar sé orðið að einhvers konar álitshnekki á alþjóðavísu heldur slíkt að sama skapi engu vatni. Þó ekki nema fyrir þá staðreynd að velþekkt er erlendis að bæði þingmenn og ráðherrar fari í forsetaframboð og segi einungis af sér nái þeir kjöri. Miklu fremur er Katrín ekki síður að setja fordæmi alþjóðlega en innanlands um að þingmenn og ráðherrar segi af sér fari þeir í slíkt framboð.

Kosningabaráttan fram að forsetakosningunum 1. júní verður vonandi málefnalegri en þau dæmi sem fjallað hefur verið um hér að framan. Með því að beita slíkum meðölum er eðli málsins samkvæmt verið að lýsa því yfir að málefnalegum rökum sé ekki fyrir að fara. Annars væri jú ekki þörf á því að grípa til slíkra óyndisúrræða. Slíkt dæmir sig vitanlega sjálft en stundum er framgangan slík að illa verður orða bundizt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 15. apríl 2024)

(Ljósmynd: Bessastaðir. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb