Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

„Mikill sigur fyrir unnendur vína“

Posted on August 18, 2021 by Fullveldi

„Þetta er mikill sigur fyrir unnendur vína og brezka vínframleiðendur. Ég er viss um að korktöppum verður skotið úr flöskum um allan heim til þess að fagna þessum ánægjulegu fréttum,“ segir Miles Beale, framkvæmdastjóri samtaka brezkra vínframleiðenda, í samtali við dagblaðið Daily Telegraph.

Fram kemur í fréttinni að unnendur vína í Bretlandi muni spara 130 milljónir punda á ári (tæpa 23 milljarða króna) vegna áforma brezkra stjórnvalda um að skera niður íþyngjandi regluverk frá Evrópusambandinu um innflutning á vínum sem mögulegt sé vegna útgöngu Breta úr sambandinu.

Þannig hafa brezk stjórnvöld í hyggju að fella niður þá kröfu að uppfylla þurfi regluverk í tengslum við innflutning á vínum sem kveður meðal annars á um mælingu á sýrustigi vínsins en sú krafa er ekki gerð vegna innflutnings á öðrum áfengum drykkjum eins og til að mynda á bjór og sterkum vínum.

Samhliða útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu sagði landið einnig skilið við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og samdi þess í stað um víðtækan fríverzlunarsamning við sambandið. Sama regluverk um víninnflutning er í gildi hér á landi vegna aðildar Íslands að EES-samningnum.

Til marks um ávinninginn af útgöngunni úr ESB

Mat brezkra stjórnvalda er að neytendur muni spara sér 130 milljónir punda árlega en brezkir vínframleiðendur telja töluna mun hærri. Þannig muni sparast 100 milljónir punda vegna innflutnings frá ríkjum utan Evrópusambandsins og 70 milljónir vegna innflutnings frá sambandinu.

Hins vegar munu brezkir vínframleiðendur þurfa að uppfylla kröfuna vegna útflutnings til Evrópusambandsins vegna regluverks þess. Fram kemur að þeir hafi lengi bent á að regluverkið snúist um tæknilegar viðskiptahindranir til þess að vernda vínframleiðendur innan sambandsins.

Haft er eftir Ranil Jayawardena, ráðherra alþjóðaviðskipta í brezku ríkisstjórninni, að fyrirhuguð breyting sé til marks um ávinninginn af útgöngunni úr Evrópusambandinu sem geri stjórnvöldum kleift að fella niður íþyngjandi regluverk sem feli í sér kostnað fyrir almenning og brezkt efnahagslíf í heild.

„Það er frábært að brezkur almenningur þurfi ekki lengur að greiða fyrir óþarfa skriffinsku þegar hann verzlar sér flösku af víni,“ segir ráðherrann einnig í fréttinni. „Með viðskiptasamningum okkar erum við að greiða fyrir aðgengi brezkra neytenda að gæðavörum hvaðanæva að úr heiminum.“

HJG

(Ljósmynd: Rauðvínflaska og glas með rauðvíni. Eigandi: Congerdesign – Wikimedia Commons)


Tengt efni:
Hægt að draga verulega úr regluverki
Mjótt á mununum eða ekki?
Vilja ekki ganga aftur í ESB

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb