Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Heim
  • Fréttir
  • Greinar
  • Skýrslur
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

„Þetta er búið og gert“

Posted on 02/07/202222/10/2022 by Fullveldi

„Hversu innilega sem ég kann að vera andvígur Brexit þá geri ég mér grein fyrir því að þetta er búið og gert,“ sagði Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og einn helzti andstæðingur útgöngu landsins úr Evrópusambandinu, á ráðstefnu á vegum Tony Blair Institute for Global Change á dögunum.

Fram kemur á fréttavef brezka dagblaðsins Daily Telegraph að Blair hafi sagt á ráðstefnunni að málið væri þannig í raun útrætt. „Við höfum afgreitt málið lagalega séð, við höfum afgreitt það pólitískt og þessu verður ekki snúið við í fyrirsjáanlegri framtíð. Við getum sagt ekki á meðan núverandi kynslóðir verða við líði.“

Hins vegar sagði Blair að eftir sem áður yrði að taka á málum sem tengdust útgöngunni úr Evrópusambandinu og væru óleyst. Þar á meðal deiluna um Norður-Írland en samið var um það að kröfu sambandsins að Norður-Írar fylgdu áfram reglum innri markaðar þess á meðan það á ekki við um afganginn af Bretlandi.

Forsætisráðherrann fyrrverandi var í fremstu víglínu þeirra sem börðust gegn útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu um árabil þar til útgangan varð loks að veruleika. Á síðasta ári lýsti hann því hins vegar yfir að þó hann væri enn andvígur útgöngunni yrðu Bretar nú að reyna að gera það bezta út henni.

HJG

(Ljósmynd: Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)


Tengt efni:
Hindri að fleiri ríki gangi úr ESB
Hagstæðara að sigla undir brezkum fána
Fjármagn streymir til Bretlands
Höfuðstöðvar Shell til Bretlands
Vilja refsa Bretum fyrir Brexit

HELZTU GREINAR


Meginvandinn er sjálft regluverkið

Talsvert hefur verið rætt á undanförnum árum um svonefnda gullhúðun við innleiðingu á lagagerðum frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum. Er þar vísað til þess þegar gerðir eru innleiddar hér á landi meira íþyngjandi en þær koma frá sambandinu. Um er að ræða mál sem full ástæða er til þess að taka föstum tökum en á sama tíma er ljóst að ekki er um að ræða meginvandann í þeim efnum.



Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi

Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast frá þingkosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári síðan samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana í kjölfar þess að nýr formaður, Kristrún Frostadóttir, tók við flokknum. Fylgið hefur þannig farið úr tæpum 10% í kosningunum í um 20%. Kannanir benda til þess að þar vegi þungt ákvörðun formannsins um það að setja stefnu flokksins um inngöngu í Evrópusambandið á ís.



Með hálfan þingmann á Alþingi

Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif innan sambandsins, fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana Evrópusambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Kæmi til þess að Ísland gengi í sambandið yrði landið fámennasta ríki þess og með vægi í samræmi við það.


Færslur

  • Minna svigrúm til viðskiptasamninga
  • Dvínandi eða vaxandi?
  • Dvínandi stuðningur við inngöngu í ESB
  • Flotið vakandi að feigðarósi
  • Tvennt hægt að gera við tillögurnar
  • Meginvandinn er sjálft regluverkið
  • Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi
  • „Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
  • Með hálfan þingmann á Alþingi
  • Frelsið til þess að ráða eigin málum
  • Hlutleysi veitir enga vörn
  • Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
  • Viðreisn og báknið
  • Setur Viðreisn í vanda
  • Treysta ekki ESB í varnarmálum
  • Dönsk stjórnarskrá?
  • Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
  • Hverju ætti ESB að bæta við?
  • Pólitíski ómöguleikinn
  • Að virða niðurstöður kosninga
©2023 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb