Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Kuldinn sem fyrr bandamaður Rússlands

Posted on July 4, 2022 by Fullveldi

Kuldinn hefur lengi verið bandamaður Rússlands þegar komið hefur að því að bera að lokum sigur úr býtum á öðrum Evrópuríkjum. Veturinn 1812 setti hernað Napóleons úr skorðum og hersveitir Hitlers frusu í hel við borgarhliðin að Moskvu í desember 1941. Vladimír Pútín hefur það nú á valdi sínu að skrúfa fyrir flæði gass til Evrópu. Útspil sem Þýzkaland virðist vera algerlega varnarlaust gagnvart.

Fróðleg grein eftir þýzka viðskiptablaðamanninn Wolfgang Münchau birtist í brezka blaðinu Spectator í fyrradag og hefst hún efnislega á ofangreindum orðum. Þýzkaland hafi fengið smjörþefinn nýverið af því sem gæti verið í vændum þegar rússneska ríkiseinokunarfyrirtækið Gazprom hafi helmingað flæði gass um Nord Stream 1-gasleiðsluna og borið við tæknilegum ástæðum sem standist ekki skoðun.

Münchau rifjar upp þá staðreynd að meira en þriðjungur af því gasi sem notað sé í Þýzkalandi komi frá Rússlandi. Þjóðverjar standi nú frammi fyrri því að hugsanlega verði skrúfað alfarið fyrir rússneskt gas og að framundan sé fyrir vikið kaldur vetur. Af þeim sökum hafi verið lýst yfir hættustigi í landinu í síðustu viku. Þýzkaland sé í gríðarlega alvarlegri stöðu og mun alvarlegri en margir geri sér grein fyrir.

Hliðstæð áhrif og efnahagskrísan 2008

Fjölmörg heimili í Þýzkalandi séu þannig kynt með rússnesku gasi. Þungaiðnaður landsins sé að sama skapi háður því að gas flæði áfram frá Rússlandi. Vitnar Münchau í Robert Habeck, efnahagsmálaráðherra Þýzkalands, þess efnis að kæmi skyndilega til þess að skrúfað yrði fyrir rússneskt gas myndi það hafa keðjuverkandi áhrif í þýzku efnahagslífi og hafa hliðstæð eyðileggjandi áhrif og efnahagskrísan 2008.

„Fyrirtæki yrðu að hætta framleiðslu og segja upp starfsfólki sínu, aðfangakeðjur myndu hrynja, almenningur myndi safna skuldum til þess að greiða fyrir hitunarkostnað sinn og verða fátækari,“ sagði Halbeck í síðustu viku. Varaði hann enn fremur við því að þessar aðstæður væru kjörinn jarðvegur fyrir lýðskrumara sem vildu grafa undan lýðræðinu. Málið snerist því ekki einungis um gas heldur þýzkt lýðræði.

Kynntar hafa verið sjö hugsanlegar sviðsmyndir í þessum efnum af hálfu þýzkra stjórnvalda vegna næsta veturs og vors að sögn Münchaus. Sex feli í sér mikinn skort á gasi. Einungis ein sviðsmyndin geri ráð fyrir því að Þjóðverjar sleppi nokkuð sæmilega frá vetrinum og vorinu en þá sé líka gert ráð fyrir því að Rússland standi við allar skuldbindingar sínar. Með öðrum orðum megi þá alls ekkert út af bregða.

Verður Pútín fyrri til að skrúfa fyrir gasið?

Münchau bendir á það að jafnvel þó Pútín skrúfi ekki alfarið fyrir gasið til Þýzkalands, og haldi þess í stað áfram að heimila takmarkað flæði gass til landsins, geti það eftir sem áður leitt til gríðarlegs gasskorts í landinu næsta vetur. Það gæti hentað honum bezt. Hann geti þannig valdið Þjóðverjum miklum efnahagslegum skaða en á sama tíma haldið áfram að hagnast gríðarlega á uppsprengdu verði fyrir gasið.

Habeck hafi sett sér það markmið að gera Þýzkaland óháð innflutningi á gasi frá Rússlandi innan tveggja ára. Hins vegar séu litlar líkur á því að það takist þar sem enginn geti í raun hlaupið í skarðið. Pútín gæti hæglega litið svo á að réttast væri að skrúfa sjálfur fyrir gasið og valda Evrópuríkjum hámarksskaða í stað þess að leyfa þeim að ákveða hvenær og með hvaða hætti þau hætti viðskiptum við hann.

Münchau segir að þó það yrði gríðarlega kostnaðarsamt fyrir Rússland að skrúfa alfarið fyrir gasið hafi hagnaður af gassölunni til Evrópuríkja á liðnum árum, ekki sízt vegna hækkandi verðlags, skilað rússneskum stjórnvöldum slíkum fjárhæðum að þau gætu staðið það af sér á meðan Þýzkaland gæti það hins vegar ekki. Pútín sé hreinlega syndandi í seðlum vegna viðskiptanna við Evrópuríki með olíu og gas.

Veiki hlekkurinn í bandalagi vestrænna ríkja

Münchau segir stóru spurninguna vera þá hvort stuðningur Þýzkalands við Úkraínumenn lifi af ískaldan vetur. Pútín hafi gert mörg mistök á hernaðarsviðinu en hins vegar hafi honum gengið miklu betur í hernaðaraðgerðum sínum á efnahagssviðinu. Til dæmis hafi honum tekizt að fá ríkisstjórnir Evrópusambandsríkja til þess að greiða fyrir gasið í rúblum þrátt fyrir að þau láti eins og þau hafi ekki gert það.

Með tíð og tíma muni Evrópuríki finna leiðir til þess að verða sér úti um gas eftir öðrum leiðum en þar til það gerist muni Pútín notfæra sér það kverkatak sem hann hafi á þeim til þess að ná sínu fram. Hann hafi þegar tekið hveitiútflutning frá Úkraínu í gíslingu og hann muni reyna að nýta sér stöðu Rússlands sem mesta útflutningsríki á hveiti og áburði til þess að þvinga fram samninga á eigin forsendum.

Varað hefur verið lengi við því hversu háð Evrópuríki væru Rússlandi í orkumálum. Ekki sízt Þýzkaland en grein Münchaus lýkur á eftirfarandi orðum: „Pútín veit að Þýzkaland er veiki hlekkurinn í bandalagi vestrænna ríkja og að orkuöryggi er mesti akkilesarhæll þess. Skrúfi hann alfarið fyrir gasið felst í því ákveðin áhætta fyrir hann. Hann hefur hins vegar sterk spil á hendi og gæti ákveðið að beita þeim.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 4. júlí 2022)

(Ljósmynd: Napóleon Bónaparte Frakklandskeisari hörfar frá Moskvu 1812. Málverk eftir Adolf Northen)


Tengt efni:
Hornsteinn NATO á norðurslóðum
Milljarður evra til Pútíns á hverjum degi
Vaxandi mikilvægi Íslands í varnarmálum
Sjálfskaparvíti og dómgreindarleysi
Hernaður Pútíns fjármagnaður af ESB

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb