Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hálfur þingmaður á Alþingi

Posted on January 11, 2024 by Fullveldi

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið færi formlegt vægi landsins, og þar með möguleikar Íslendinga til þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku í þeim stofnunum sambandsins þar sem ríki þess eiga fulltrúa, í langflestum tilfellum fyrst og fremst eftir íbúafjölda landsins. Þar á meðal og ekki sízt þegar ákvarðanir væru teknar um mjög mikilvæg íslenzk hagsmunamál eins og til að mynda sjávarútvegsmál og orkumál.

Hið ágætasta tilefni til þess að rifja þessa staðreynd upp, sem eðli málsins samkvæmt er algert grundvallaratriði þegar kemur að umræðu um það hvort innganga í Evrópusambandið telst fýsileg eða ekki, kom með skrifum Róberts Spanó lagaprófessors í Morgunblaðið á dögunum þar sem hann talaði meðal annars fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið í þeim tilgangi að hafa áhrif á lagasetningu sambandsins.

Formlegt vægi ríkja innan Evrópusambandsins fer þannig fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana sambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Kæmi til þess á einhverjum tímapunkti að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið fámennasta ríki þess og með vægi í samræmi við það sem allajafna yrði aðeins 0,08%.

Fjölmennustu ríkin með tögl og hagldir

Langflestar ákvarðanir í ráðherraráði Evrópusambandsins eru háðar því að 55% ríkjanna standi að baki þeim með 65% íbúa sambandsins en fjögur stærstu ríki Evrópusambandsins, Þýzkaland, Frakkland, Ítalía og Spánn, hafa 58% íbúanna á bak við sig. Jafnvel þó öll hin ríkin 23 tækju sig saman þyrftu þau engu að síður að minnsta kosti eitt af stærstu ríkjunum fjórum í lið með sér til þess að hægt væri að taka ákvarðanir.

Viðmiðið er að sama skapi fyrst og fremst íbúafjöldi ríkjanna í tilfelli þings Evrópusambandsins. Þannig hefur Þýzkaland til að mynda 96 þingmenn af yfir 700 en til samanburðar hefði Ísland sex þingmenn innan þess sem væri á við einungis hálfan þingmann á Alþingi. Í atkvæðagreiðslum í þinginu gildir einfaldlega meirihlutinn. Ljóst er að vægi fulltrúa Íslands yrði aðeins dropi í hafið við slíkar aðstæður.

Hvað framkvæmdastjórn Evrópusambandsins varðar eiga ríki ekki eiginlega fulltrúa í henni eins og stundum hefur verið haldið fram. Hið rétta er að þó ríkin tilnefni einn fulltrúa hvert er tekið skýrt fram í Lissabon-sáttmála sambandsins að þeim sé óheimilt að draga taum heimaríkja sinna. Með öðrum orðum gæti Íslendingur sem sæti ætti í framkvæmdastjórninni ljóslega engan veginn talizt málsvari íslenzkra hagsmuna.

Versnandi staða fámennustu ríkjanna

Vaxandi áherzla á það að vægi ríkja Evrópusambandsins taki mið af íbúafjölda þeirra hefur eðli málsins samkvæmt komið sér verst fyrir fámennustu ríkin. Eldra fyrirkomulag í ráðherraráðinu fól í sér mun meira vægi þeirra en nú er þó það hafi engu að síður verið hverfandi. Þá var einróma samþykki áður almenna reglan innan ráðsins en heyrir nú í raun til undantekninga og nær hvorki til sjávarútvegs- né orkumála.

Fram kemur í grein Róberts að Ísland sé þiggjandi regluverks í gegnum EES-samningnum án þess að taka beinan þátt í mótun þess. Spyr hann hvort við Íslendingar stjórnum „í reynd vegferð okkar við þessar aðstæður?“ Værum við hins vegar í raun við stjórnvölinn í þeim efnum innan Evrópusambandsins þar sem svo gott sem öll okkar mál væru undir, þar á meðal sjávarútvegurinn, og vægi okkar tæki almennt mið af íbúafjölda landsins?

Með inngöngu í Evrópusambandið væri einfaldlega farið úr öskunni í eldinn. Á hinn bóginn væri um að ræða stórt skref í rétta átt í þessu sambandi að skipta EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning eins og ríki heimsins kjósa allajafna að semja um í dag. Líkt og við gerðum í tilfelli Bretlands, annars stærsta viðskiptalands okkar, án þess að nokkuð færi á hliðina og án þess að vera þiggjendur regluverks.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður í Morgunblaðinu 11. janúar 2024)

(Ljósmynd: Austurvöllur í Reykjavík. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hvað er þá að Viðreisn?
„Stjórnsýsla Íslands er lítil“
Vantreysta ESB í varnarmálum
„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“
Minnast ekki á lokamarkmiðið

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb