Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Versnandi staða fámennari ríkja ESB

Posted on March 25, 2023 by Fullveldi

Meðal þeirra breytinga sem orðið hafa á Evrópusambandinu á undanförnum árum er að vægi fámennari ríkja sambandsins við ákvarðanatökur í ráðherraráði þess hefur minnkað stórlega. Einkum þeirra fámennustu. Krafa um einróma samþykki í ráðinu heyrir þannig í raun til algerra undantekninga í dag ólíkt því sem áður var og þess í stað er miðað við meirihlutasamþykki þar sem vægi ríkjanna fer fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru. Hvort tveggja hefur eðli málsins samkvæmt komið sér verst fyrir fámennustu ríkin.

Formaður Viðreisnar í Reykjavík, Natan Kolbeinsson, lét þau orð falla í grein á Vísir.is á dögunum að miklar breytingar hefðu orðið á Evrópusambandinu á síðustu árum og fyrir vikið ætti gömul orðræða gegn inngöngu í það ekki lengur við. Mjög margt þar er þó sígilt. Sjálfir hafa harðir Evrópusambandssinnar uppfært sumt í sinni orðræðu. Þannig töluðu þeir hér áður iðulega um það að Ísland þyrfti að ganga í Evrópusambandið til þess að hafa þar áhrif en hafa í seinni tíð yfirleitt kosið að tala þess í stað um „sæti við borðið“.

Vægi Íslands yrði einungis 0,08%

Flestar ákvarðanir í ráðherraráði Evrópusambandsins krefjast í dag einungis samþykkis 55% ríkjanna með 65% íbúa sambandsins í stað einróma samþykkis í flestum tilfellum áður. Fjögur stærstu ríkin, Þýzkaland, Frakkland, Ítalía og Spánn, hafa saman 57,7% íbúanna á bak við sig og þarf að minnsta kosti stuðning eins þeirra til þess að samþykkja mál. Til þess að hafa sama vægi og Þýzkaland eitt þarf 17 fámennari ríki sambandsins af 27. Þá geta stærstu ríkin saman stöðvað öll mál en til þess þarf fjögur ríki með 35% íbúafjöldans.

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði það fámennasta ríkið innan sambandsins með einungis 0,08% íbúafjölda þess. Miðað við fyrra fyrirkomulag í ráðherraráðinu, sem aflagt var 2014, hefði vægi Íslands innan ráðsins verið næstum níu sinnum meira eða í kringum 0,7% sem þó hefði vitanlega ekki verið mikið. Ástæðan er sú að þá var gert ráð fyrir ákveðnu lágmarki. Nú yrði vægið hins vegar 0,08% við ákvarðanatöku í ráðinu. Til að mynda um bæði sjávarútvegs- og orkumál. Þetta er sætið við borðið.

Með hálfan þingmann á Alþingi

Hvað Evrópusambandsþingið varðar er enn við lýði fyrirkomulag þar á bæ þar sem gert er ráð fyrir ákveðnum lágmarksfjölda þingmanna. Þar fengi Ísland sex þingmenn af 705 eins og staðan er í dag sem væri sambærilegt við hálfan þingmann á Alþingi. Tal um vægi langt umfram íbúafjölda kann ef til vill að hljóma ágætlega en þegar málið er sett í samhengi er ljóst að það yrði sáralítið. Þá er ólíklegt að þingmennirnir myndu starfa saman að hagsmunum Íslands þar sem þeir myndu dreifast á ólíka þingflokka innan þingsins.

Formaðurinn talar um stór og valdamikil embætti sem einstaklingar frá fámennum ríkjum hafi gegnt á vegum Evrópusambandsins. Umrædd embætti eiga það hins vegar sameiginlegt að snúast ekki um það að standa vörð um hagsmuni heimalanda þeirra sem þar sitja. Þetta á til að mynda við um framkvæmdastjórn sambandsins. Þó ríkin tilnefni vissulega einn einstakling í hana hvert geta þeir sem þar sitja seint talizt fulltrúar heimalanda sinna enda er þeim beinlínis óheimilt að draga taum þeirra í embættisverkum sínum.

Markmiðið með ESB frá upphafi

Hvað varðar þá stefnu ríkisstjórnar Þýzkalands að Evrópusambandið verði að lokum að sambandsríki er langur vegur frá því að þar sé um einangrað tilfelli að ræða. Þvert á móti hefur verið nánast leitun að forystumönnum á vettvangi sambandsins og í ríkjum þess á liðnum árum sem ekki hafa lýst sig opinberlega hlynnta þessu markmiði samrunaþróunarinnar frá upphafi. Í stefnu þýzku ríkisstjórnarinnar, sem systurflokkur Viðreisnar Freie Demokratische Partei á aðild að, er einmitt talað um áframhaldandi þróun í þessa átt.

Til að mynda má lesa um markmiðið um að Evrópusambandið verði að sambandsríki í endurminningum franska diplómatans Jeans Monnet sem gjarnan hefur verið nefndur faðir samrunaþróunarinnar innan þess og þá einkum í röðum Evrópusambandssinna. Á liðnum árum hefur sambandið í samræmi við það smám saman öðlast fleiri einkenni ríkis og er fyrir vikið orðið að verulegu leyti federalískt í dag. Áherzla á það að vægi ríkjanna miðist við íbúafjölda, í stað þess að þau sitja við sama borð, er einmitt eitt þessara einkenna.

Þarf lýðræðislega kjörinn meirihluta

Formaðurinn segir að þingkosningarnar 2021 hafi ekki snúizt um Evrópusambandið og fyrir vikið séu þær ekki mælikvarði á afstöðu fólks til inngöngu í það. Hins vegar töluðu bæði Viðreisn og Samfylkingin fyrir inngöngu í sambandið í kosningabaráttunni, sem og fyrir fyrri kosningar, og hefði málið raunverulega skipt kjósendur máli hefði það væntanlega haft áhrif á það með hvaða hætti þeir vörðu atkvæði sínu. Þess í stað hafa flokkarnir tveir fengið mun færri atkvæði upp úr kjörkössunum samanlagt en Sjálfstæðisflokkurinn einn.

Forsenda þess að tekin verði skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið er eðli málsins samkvæmt þingmeirihluti fyrir málinu, kjörinn af íslenzkum kjósendum, og ríkisstjórn hlynnt því að það verði gert. Án þess verða vitanlega ekki teknar neinar ákvarðanir í þá veru. Deginum ljósara er að stjórnmálaflokkar, sem boðið hafa sig fram á grundvelli þeirrar stefnu að taka ekki slík skref og kosnir á þeim forsendum, munu ekki geta staðið að slíku nema þá með því að hafa það að engu sem þeir sögðu við kjósendur sína fyrir kosningarnar.

„Þið vitið hvað þið væruð að fara út í“

Formaðurinn lýkur grein sinni á þeirri gömlu orðræðu úr röðum Evrópusambandssinna að ekkert sé í raun hægt að vita um það hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér fyrir Ísland án þess að sækja um inngöngu og fá samning á borðið. Á sama tíma er til dæmis stefna Viðreisnar einfaldlega innganga í Evrópusambandið án nokkurs fyrirvara um það hvað slíkt kunni að þýða fyrir land og þjóð. Það sama á við um Samfylkinguna, fyrra pólitískt heimili formannsins, sem og ófá samtök Evrópusambandssinna í gegnum tíðina.

Fyrir liggur enda í öllum meginatriðum hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér líkt og til að mynda pólitískir áhrifamenn innan þess hafa ítrekað vakið máls á undanfarin ár. Til dæmis Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og leiðtogi Venstre, systurflokks Viðreisnar, árið 2017: „Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það bezta sem þið getið gert.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 25. marz 2023)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi
Með hálfan þingmann á Alþingi
Viðreisn og báknið
Hverju ætti ESB að bæta við?
Pólitíski ómöguleikinn

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb