Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Heim
  • Fréttir
  • Greinar
  • Skýrslur
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Minna svigrúm til viðskiptasamninga

Posted on 06/03/202306/03/2023 by Fullveldi

Með aðild Íslands að EES-samningnum hefur regluverk frá Evrópusambandinu, sem tekið hefur verið upp í gegnum samninginn, skapað viðskiptahindranir gagnvart nánustu viðskiptalöndum landsins utan Evrópskra efnahagssvæðisins (EES) og stuðlað að minna svigrúmi EFTA-ríkjanna sem aðild eiga að samningnum, Íslands, Noregs og Liechtensteins, til þess að semja um viðskipti við ríki utan svæðisins.

Þetta kemur efnislega fram í greinargerð matvælaráðuneytisins sem fylgdi drögum að reglugerð sem breyta átti reglum um matvælamerkingar í frjálsræðisátt en náðu hins vegar ekki fram að ganga vegna EES-samningsins. Þar segir að umrætt regluverk hafi „skapað viðskiptahindrun við nánustu viðskiptalönd Íslands utan EES og minnkað svigrúm EFTA-EES ríkjanna til að gera viðskiptasamninga við ríki utan EES.“

Ég hef í skrifum mínum í gegnum tíðina vakið athygli á þeim neikvæðu áhrifum sem aðildin að EES-samningnum hefur haft á svigrúm Íslands til milliríkjaviðskipta og gerðar fríverzlunarsamninga. Nú síðast í október í aðsendri grein í Morgunblaðinu þar sem ég benti á það að á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum geti íslenzk stjórnvöld til að mynda að öllum líkindum ekki samið um fríverzlun við Bandaríkin.

Hannað sem viðskiptahindranir

Kæmi til þess að hafnar yrðu viðræður á milli Íslands og Bandaríkjanna um fríverzlunarsamning yrðu stjórnvöld í Washington þannig að fallast á það að bandarískar vörur, sem fluttar væru hingað til lands, þyrftu að uppfylla regluverk frá Evrópusambandinu sem gildir hér á landi vegna EES-samningsins og við getum ekki breytt. Meðal annars um vörumerkingar sem yfirleitt er afar ólíkt því sem gerist í Bandaríkjunum.

Vert er að hafa í huga að Evrópusambandið er í grunninn tollabandalag en slík bandalög eru í eðli sínu andstaðan við frjáls milliríkjaviðskipti enda markmiðið með þeim að vernda framleiðslu innan þeirra fyrir utanaðkomandi samkeppni. Í seinni tíð, samhliða lækkun tolla á heimsvísu, hafa tæknilegar viðskiptahindranir í formi regluverks tekið við sem helzta verkfærið til þess að viðhalda verndarhyggju í milliríkjaviðskiptum.

Verulegur hluti regluverks Evrópusambandsins á sviði viðskipta er hannaður sem tæknilegar viðskiptahindranir til þess að vernda framleiðslu í ríkjum þess. Þar er allajafna um að ræða framleiðslu sem tengist á engan hátt íslenzkum hagsmunum. Misheppnaðar fríverzlunarviðræður Bandaríkjanna og sambandsins, sem náðu í raun aldrei flugi, snerust enda fyrst og fremst um slíkar tæknilegar viðskiptahindranir.

Viðskiptahindrun í vaxandi mæli

Með öðrum orðum er EES-samningurinn, sem greiða átti fyrir viðskiptum við Evrópusambandið, í vaxandi mæli viðskiptahindrun gagnvart öðrum mörkuðum. Ísland er utan tollamúra sambandsins en vegna aðildarinnar að samningnum innan regluverksmúra þess. Formlega séð hefur Ísland fullt frelsi til þess að semja um fríverzlun við önnur ríki en í raun markar EES-samningurinn rammann sem hægt er að semja innan.

Við þetta bætist að regluverkið í gegnum EES-samninginn er oftar en ekki afar íþyngjandi fyrir íslenzkt atvinnulíf og meira íþyngjandi en innlend lagasetning. Raunar svo íþyngjandi að stjórnsýslan hefur kvartað undan því. Talað er gjarnan um að samningurinn þýði að íslenzkt atvinnulíf sé samkeppnishæft á við atvinnulíf annarra ríkja innan EES en nær er að segja að vegna hans sé hérlent atvinnulíf jafn ósamkeppnishæft og það.

Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum. Leið sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara þegar þau semja um milliríkjaviðskipti og þar á meðal stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Þar með talið Evrópusambandið. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum, felur ekki meðal annars í sér einhliða upptöku íþyngjandi regluverks og vaxandi framsal valds yfir eigin málum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Innherja 6. marz 2023)

(Ljósmynd: Þinghús Bandaríkjanna í Washington. Eigandi: Þjóðvarðlið Georgíu-ríkis)


Tengt efni:
Meginvandinn er sjálft regluverkið
Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
Stjórnsýslan kvartar undan flóknu regluverki
Vilja frekar fríverzlunarsamning en EES

HELZTU GREINAR


Meginvandinn er sjálft regluverkið

Talsvert hefur verið rætt á undanförnum árum um svonefnda gullhúðun við innleiðingu á lagagerðum frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum. Er þar vísað til þess þegar gerðir eru innleiddar hér á landi meira íþyngjandi en þær koma frá sambandinu. Um er að ræða mál sem full ástæða er til þess að taka föstum tökum en á sama tíma er ljóst að ekki er um að ræða meginvandann í þeim efnum.



Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi

Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast frá þingkosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári síðan samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana í kjölfar þess að nýr formaður, Kristrún Frostadóttir, tók við flokknum. Fylgið hefur þannig farið úr tæpum 10% í kosningunum í um 20%. Kannanir benda til þess að þar vegi þungt ákvörðun formannsins um það að setja stefnu flokksins um inngöngu í Evrópusambandið á ís.



Með hálfan þingmann á Alþingi

Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif innan sambandsins, fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana Evrópusambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Kæmi til þess að Ísland gengi í sambandið yrði landið fámennasta ríki þess og með vægi í samræmi við það.


Færslur

  • Minna svigrúm til viðskiptasamninga
  • Dvínandi eða vaxandi?
  • Dvínandi stuðningur við inngöngu í ESB
  • Flotið vakandi að feigðarósi
  • Tvennt hægt að gera við tillögurnar
  • Meginvandinn er sjálft regluverkið
  • Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi
  • „Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
  • Með hálfan þingmann á Alþingi
  • Frelsið til þess að ráða eigin málum
  • Hlutleysi veitir enga vörn
  • Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
  • Viðreisn og báknið
  • Setur Viðreisn í vanda
  • Treysta ekki ESB í varnarmálum
  • Dönsk stjórnarskrá?
  • Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
  • Hverju ætti ESB að bæta við?
  • Pólitíski ómöguleikinn
  • Að virða niðurstöður kosninga
©2023 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb