Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Meira en heildartekjur ríkissjóðs

Posted on April 17, 2023 by Fullveldi

Tryggðar innistæður í fjármálastofnunum á Íslandi námu 1.228 milljörðum króna um síðustu áramót samkvæmt upplýsingum frá Tryggingasjóði vegna fjármálafyrirtækja (TVF) og jukust þær um eitt hundrað milljarða króna á síðasta ári. Í byrjun 2021 voru tryggðar innistæður hins vegar um 1.000 milljarðar. Tryggðar innistæður á Íslandi hafa þannig aukizt um í kringum 100 milljarða króna á ári á undanförnum árum.

Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða ríkisábyrgð á tryggðum innistæðum. Hérlend stjórnvöld hafa lagt áherzlu á mikilvægi þess að Ísland fái undanþágu frá ákvæðum tilskipunarinnar um ríkisábyrgð en um leið viðurkennt að ólíklegt sé að slík undanþága verði veitt.

Til samanburðar voru heildartekjur ríkissjóðs á síðasta ári rúmir 1.142 milljarðar króna eða hátt í 86 milljörðum minni en tryggðar innistæður um síðustu áramót. Tryggðar innistæður miðast við 100 þúsund evra hámark, eða um 15 milljónir króna, samkvæmt gildandi lögum hér á landi en í tilskipun Evrópusambandsins segir að miða skuli við 100 þúsund evrur að lágmarki og hærri upphæðir í ákveðnum tilfellum.

Ríkisábyrgð ljóslega fyrir að fara

Með hliðsjón af efni tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar er ljóst að um ríkisábyrgð er að ræða. Það er að auki skilningur sambandsins. Þannig segir í 10. grein hennar að ríki skuli sjá til þess að innistæðutryggingasjóðir séu í stakk búnir til þess að standa við skuldbindingar sínar og tryggja enn fremur aðgengi þeirra að skammtímafjármögnun til þess að mæta kröfum á hendur þeim.

Málið varðar þannig kjarna Icesave-málsins sem eins og kunnugt er snerist fyrst og fremst um það hvort íslenzk ríkisábyrgð væri á innistæðum Icesave-netbankans, sem rekinn var í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt þágildandi tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar. Svo fór að lokum að EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í lok janúar 2013 að henni hefði ekki verið fyrir að fara.

Tekið var fram í eldri tilskipuninni að óheimilt væri að veita innistæðutryggingasjóðum opinberan stuðning. Hugsunin var sú að bankar á Evrópska efnahagssvæðinu stæðu jafnfætis í þessum efnum óháð því hvar höfuðstöðvar þeirra væru staðsettar. Með öðrum orðum er þessu algerlega snúið á haus í nýrri tilskipuninni. Þá má geta þess að samkvæmt eldri tilskipuninni var tryggingin 20 þúsund evrur.

Viðbrögð ESB við Icesave-deilunni

Markmiðið með nýrri tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar er ljóslega ekki sízt að bregðast við Icesave-málinu og dómi EFTA-dómstólsins. Hafa má í huga í því sambandi að Evrópusambandið stefndi sér inn í málið gegn Íslandi fyrir dómstólnum og tók þannig formlega afstöðu gegn landinu. Með tilskipuninni er afstaða sambandsins í málinu, að ríkisábyrgð sé á innistæðum, niður negld lagalega.

Tilskipun Evrópusambandsins hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn sem fyrr segir en viðbúið er að þess verði krafizt fyrr en síðar. Haustið 2019 sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, á Alþingi að yrði tilskipunin innleidd með ríkisábyrgð myndi Ísland tapa Icesave-málum framtíðarinnar. Réttara er að slíkt mál muni væntanlega ekki koma upp enda ríkisábyrgð þá staðreynd.

Fleiri hafa séð ástæðu til þess að vara við umræddri tilskipun Evrópusambandsins. Þar á meðal Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi fulltrúi í málflutningsteymi Íslands sem rak og flutti Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólnum, sem varaði við því fyrr á þessu ári að um væri að ræða hættulega löggjöf fyrir hagsmuni Íslands. Full ástæða er til þess að taka undir þau varnaðarorð hans.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 17. apríl 2023)

(Ljósmynd: Vefsíða Icesave-netbankans. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Minna svigrúm til viðskiptasamninga
Meginvandinn er sjálft regluverkið
Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
Stjórnsýslan kvartar undan flóknu regluverki

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb