Fyrirkomulag dómstólamála við framvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) var viðfangsefni greinar eftir mig sem birtist í Morgunblaðinu 26. apríl síðastliðinn. Tilefni hennar var athyglisverð grein sem birzt hafði í blaðinu í júlí á síðasta ári eftir Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, þar sem hann vakti meðal annars athygli á því að dómstóll Evrópusambandsins væri…
Category: Evrópumál
Tveir ójafnir dómstólar
Mjög athyglisverð grein birtist í Morgunblaðinu síðasta sumar eftir dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, en þar kom meðal annars fram að dómstóll Evrópusambandsins hefði nánast hætt réttarfarslegu samtali við EFTA-dómstólinn við framkvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Þetta áréttaði hann síðan í annarri grein sem birtist í blaðinu 15. marz síðastliðinn. Vísaði Baudenbacher þar…
Milljarður evra til Pútíns á hverjum degi
„Við höfum bráðum styrkt Úkraínu um tæplega einn milljarð evra. Þetta kann að hljóma mikið en einn milljarður evra er það sem við greiðum Pútín á hverjum einasta degi fyrir orkuna sem hann útvegar okkur. Frá því að stríðið hófst höfum við greitt honum 35 milljarða evra. Berið þetta saman við þann eina milljarð evra…
Sjálfskaparvíti og dómgreindarleysi
Fyrir mánuði síðan flutti Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, ræðu á þingi þess þar sem hann sagði að sambandið hefði í raun gert hernaðaruppbyggingu Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, mögulega sem og hernað hans í Úkraínu með kaupum á rússnesku gasi og olíu um langt árabil. Evrópusambandið hefði þannig einfaldlega sofið á verðinum og tekið allt of…
Stefnt að einu ríki frá upphafi
Fyrir síðustu jól tók ný ríkisstjórn við völdum í Þýzkalandi undir forystu þýzka Jafnaðarmannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar. Um samsteypustjórn er að ræða og eiga Frjálslyndir demókratar, systurflokkur Viðreisnar, einnig aðild að ríkisstjórninni auk Græningja. Á meðal þess sem fram kemur í stjórnarsáttmála flokkanna er að áfram skuli unnið að því að Evrópusambandið verði endanlega að sambandsríki…
Vægi ríkja ESB fer eftir íbúafjölda
Krafa um einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins, þegar teknar eru ákvarðanir á vettvangi þess, heyrir í raun til algerra undantekninga í dag enda má nánast telja á fingrum annarra handar þá málaflokka sem það á enn við um. Þar á meðal eru hvorki sjávarútvegsmál né orkumál sem flestir eru væntanlega sammála um að skipta okkur Íslendinga…
Stjórnsýslan ekki nógu stór
Full ástæða er til þess að fagna því þegar vakin er athygli á umfangi stjórnsýslunnar hér á landi og hvatt til umbóta í þeim efnum líkt og Thomas Möller, varaþingmaður Viðreisnar, gerði í ræðu á Alþingi fyrir ekki alls löngu. Því miður kemur það þó óhjákvæmilega mjög niður á trúverðugleika slíkrar gagnrýni þegar talað er á…
Meiri áherzla á Evrópusambandsher
Viðbúið er að innrás rússneska hersins í Úkraínu verði meðal annars til þess að pólitískir forystumenn innan Evrópusambandsins, sem og aðrir, sem kallað hafa eftir því að sambandið komi sér upp eigin her muni leggja aukna áherzlu á þann málflutning. Þá verður væntanlega einnig lögð aukin áherzla á þann málstað að gengið verði skrefinu lengra…