Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Dönsk stjórnarskrá?

Posted on October 24, 2022 by Fullveldi

Helztu rökin, sem sett hafa verið fram því til stuðnings að skipta þurfi um stjórnarskrá, eru þau að stjórnarskrá lýðveldisins sé erlend að uppruna. Nánar tiltekið að hún eigi sér danskar rætur. Er óhætt að segja að þetta hafi verið ákveðinn rauður þráður í gegnum málflutning þeirra sem talað hafa fyrir umræddum málstað. Hefur jafnvel verið gengið svo langt í þeim efnum að gera lítið úr Danmörku og ýmsu því sem danskt er.

Varla þarf að fara mörgum orðum um þá staðreynd að margt af því sem íslenzkt er á sér einhvern uppruna utan landsteinanna og er ekkert minna þjóðlegt fyrir vikið. Það sama á við um lýðveldisstjórnarskrána og allar aðrar stjórnarskrár. Engin þeirra varð til úr engu. Allar hafa þær verið byggðar á fyrirmyndum eða grunni annars staðar frá. Sjálf hugmyndin um stjórnarskrá er erlend að uppruna svo ekki sé talað um lýðræðið.

Fullyrt hefur verið að fyrir vikið sé stjórnarskrá lýðveldisins úreld og alls ónothæf. Hins vegar hefur á sama tíma komið fram í málflutningi fulltrúa þessa málstaðar, þar á meðal á vettvangi Stjórnarskrárfélagsins sem verið hefur þar fremst í flokki, að um það bil 80% af lýðveldisstjórnarskránni sé að finna í tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem þeir vilja í stað hennar. Er tillaga ráðsins þá ekki að stóru leyti dönsk?

Felur ekki í sér valdaframsal úr landi

Með öðrum orðum er stjórnarskrá lýðveldisins ekki úreldari en svo að mikill meirihluti hennar er ljóslega í góðu lagi að mati hörðustu gagnrýnenda hennar. Vert er þó að hafa í huga að stjórnlagaráði var aldrei falið að semja nýja stjórnarskrá heldur einungis að „gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“ eins og segir í þingsályktun Alþingis um skipun ráðsins. Til annars hafði ráðið einfaldlega ekki umboð.

Hafa má einnig í huga að margir af þeim, sem fundið hafa lýðveldisstjórnarskránni það einkum til foráttu að eiga sér erlendar rætur, sjá á sama tíma alls ekkert athugavert við það að Ísland taki í vaxandi mæli upp regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og vilja í mörgum tilfellum einnig að landið gangi í sambandið hvar löggjöf þess er álitin æðri lagasetningu ríkjanna og þar með töldum stjórnarskrám þeirra.

Dönsk stjórnvöld hafa ekkert yfir Íslandi að segja þó stjórnarskrá lýðveldisins eigi sér ákveðnar danskar rætur. Þvert á móti hefur tilgangur hennar ekki sízt verið sá að tryggja að valdið yfir íslenzkum málum væri innanlands. Regluverkið frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn snýst hins vegar í vaxandi mæli um það að færa vald yfir íslenzkum málum úr landi og svo yrði í enn ríkari mæli ef gengið yrði í sambandið.

Frumkvæði Alþingis forsenda breytinga

Málflutningur stuðningsmanna þess að skipta um stjórnarskrá, um það að lýðveldisstjórnarskráin sé dönsk, stenzt þannig einfaldlega enga skoðun. Vonandi eru enn fremur flestir sammála um það að sú orðræða, að eitthvað sé slæmt vegna þess að það sé af erlendum uppruna, geti engan veginn talizt boðleg. Það geta vart talizt meðmæli með viðkomandi málstað að þörf sé talin á því að reisa hann á slíkum málflutningi.

Fátt bendir annars til þess að Íslendingar hafi einhvern sérstakan áhuga á því að skipta um stjórnarskrá þrátt fyrir fullyrðingar stuðningsmanna þess um annað. Það hefur til dæmis sést vel á dræmum árangri framboða hlynntum þeim málstað í þingkosningum undanfarinn áratug en hvort sem horft er til lýðveldisstjórnarskrárinnar eða tillagna stjórnlagaráðs er ljóst að frumkvæði Alþingis er forsenda stjórnarskrárbreytinga.

Hins vegar er ljóst að flestir eru sammála um það að gera þurfi ákveðnar breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins en stjórnlagaráði var einmitt sem fyrr segir falið það verkefni að leggja fram ráðgefandi tillögur í þeim efnum en ekki að semja nýja stjórnarskrá. Miklu líklegra er að um slíkt geti náðst samstaða en það að skipta út stjórnarskrá sem fyrir liggur að jafnvel hörðustu andstæðingar hennar telja að langmestu leyti í góðu lagi.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 24. október 2022)

(Ljósmynd: Frá Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Að virða niðurstöður kosninga
„Þetta vill meirihluti þjóðarinnar!“
„Skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands“
Var aldrei falið að semja nýja stjórnarskrá

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb