Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hljómar kunnuglega ekki satt?

Posted on October 1, 2024October 26, 2024 by Fullveldi

Mjög langur vegur er frá því að helztu lögspekingar landsins séu einróma í þeirri afstöðu að rétt sé að frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem kennt hefur verið við bókun 35 við EES-samninginn, verði að lögum þrátt fyrir fullyrðingar stjórnvalda um annað. Frumvarpið felur sem kunnugt er í sér að bundið verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt er hér á landi í gegnum samninginn hafi forgang gagnvart innlendri lagasetningu.

Við Íslendingar fengum síðast að heyra fullyrðingar um meinta einróma afstöðu hérlendra lögspekinga þegar þáverandi vinstristjórn reyndi ásamt stjórnvöldum í Hollandi og Bretlandi auk ráðamanna Evrópusambandsins að koma Icesave-skuldaklafa Landsbanka Íslands á herðar okkar. Þá var málflutningur stjórnvalda sá að við yrðum að sætta okkur við það, við hefðum ekkert val, ekki væri hættandi á það að fara dómstólaleiðina og að um þjóðréttarlega skuldbindingu væri að ræða. Hljómar kunnuglega ekki satt?

Málið varðandi frumvarp Þórdísar er fyrir vikið í raun miklu stærra en til að mynda bæði Icesave-málið og þriðji orkupakki Evrópusambandsins hér um árið. Frumvarpið nær þannig ekki einungis til tilskipunar sambandsins um innistæðutryggingar eins og í Icesave-málinu eða þeirra lagagerða sem tilheyra þriðja orkupakkanum heldur allra lagagerða tengdum bæði fjármálageiranum sem komið hafa og munu koma í gegnum EES-samninginn, allra lagagerða að sama skapi varðandi orkumálin og alls annars í gegnum hann.

Óútskýrður viðsnúningur

Verði frumvarp Þórdísar að lögum verður til ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar gilda um almenna lagasetningu, þar sem yngri lög ganga fyrir eldri og sértækari fyrir almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt að um sé að ræða innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Ástæðan er einkum sú að löggjöf sambandsins nýtur forgangs gagnvart löggjöf ríkja þess og krafa gerð um að hið sama gildi um Ísland vegna aðildar landsins að samningnum.

Málið hófst árið 2012 þegar Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) óskaði eftir upplýsingum um það hvernig bókun 35 hefði verið innleidd hér á landi. Tæpum tuttugu árum eftir að EES-samningurinn tók gildi. Fram að því höfðu engar athugasemdir verið gerðar í þeim efnum. Mikil samskipti áttu sér stað við ESA í rúman áratug þar sem stjórnvöld vörðu þá leið sem farin var og höfnuðu kröfu stofnunarinnar. Frumvarp Þórdísar var síðan lagt fram í marz 2023 þvert á fyrri málflutning stjórnvalda. Viðsnúningur sem enn er óútskýrður.

Viðsnúningurinn er raunar enn undarlegri í ljósi minnisblaðs utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar Alþingis árið 2020 þar sem reifuð voru í átta liðum helztu mótrök Íslands gegn kröfu ESA eins og fjallað var um í Morgunblaðinu 26. apríl 2023. Þar var meðal annars bent á tómlæti ESA í áratugi og að lagabreyting, líkt og frumvarp Þórdísar kveður á um, væri tæplega möguleg án veigamikillar stjórnarskrárbreytingar sem óvíst væri að þjóðin yrði reiðubúin að sætta sig við. Ófáir lögspekingar eru sama sinnis.

„Framtíð lýðræðis á Íslandi“

Tveir fyrrverandi hæstaréttardómarar hafa til að mynda lýst þeirri afstöðu sinni að bókun 35 samrýmist ekki stjórnarskrá lýðveldisins, þeir Markús Sigurbjörnsson og Jón Steinar Gunnlaugsson. Alvarleg varnaðarorð hafa eins verið viðruð af Stefáni Má Stefánssyni, lagaprófessor og helzta sérfræðingi landsins í Evrópurétti, sem sat í upphaflegri nefnd stjórnvalda sem taldi EES-samninginn standast stjórnarskrána. Hins vegar var það mat byggt á afgreiðslu bókunar 35 á þann hátt sem gert var og ætlunin er nú að breyta.

Fram kom enn fremur í umsögn um frumvarp Þórdísar sem Stefán Már sendi til utanríkisráðuneytisins í byrjun marz 2023 ásamt Arnaldi Hjartarsyni, aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, að sú breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið sem frumvarpið myndi hafa í för með sér vekti ekki aðeins upp áleitin stjórnskipuleg álitamál „heldur einnig almennar spurningar um hlutverk Alþingis og framtíð lýðræðis á Íslandi.“ Færa þeir þar haldbær rök fyrir því að efni frumvarpsins standist í reynd ekki lögfræðilega skoðun.

Fullyrða má þannig svo gott sem að Ísland hefði ekki orðið aðili að EES-samningnum fyrir 30 árum ef litið hefði verið svo á að innleiða þyrfti bókun 35 við samninginn eins og reynt hefur verið af hálfu stjórnvalda og enn á að reyna. Bæði sé horft til umræðna á vettvangi stjórnmálanna á þeim tíma og í röðum lögspekinga. Hvernig staðið var að málum í upphafi var í raun ein helzta forsenda þess að af aðildinni varð. Krafan um forgang regluverks Evrópusambandsins felur því í raun í sér algeran forsendubrest í þeim efnum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 1. október 2024)

(Ljósmynd: Vefsíða Icesave-netbankans. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hvað segir það um málstaðinn?
Fást engin svör
Tvöfalt fleiri andvígir en hlynntir
Milljarðatugir Jóns Baldvins
Hengd á klafa hnignandi markaðar

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb