Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Heim
  • Fréttir
  • Greinar
  • Skýrslur
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Flotið vakandi að feigðarósi

Posted on 25/01/202326/01/2023 by Fullveldi

Meðal þess sem stríðið í Úkraínu hefur leitt af sér er að varpa enn betra ljósi en áður á það hversu illa að vígi Evrópusambandið stendur í öryggis- og varnarmálum. Ekki sízt þegar kemur að efnahagsöryggi. Viðbúið er að stríðið leiði til þess að Evrópuríki verði enn háðari Bandaríkjunum en áður í þeim efnum, í það minnsta um fyrirsjáanlega framtíð. Þá er ljóst að án stuðnings Bandaríkjamanna væri Úkraína fallin.

Fyrir liggur að Evrópuríki, þá ekki sízt þau sem tilheyra Evrópusambandinu, hafa sofið á verðinum um langt árabil þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Í stað þess að taka þau mál föstum tökum hafa þau ekki sinnt þeim sem skyldi og þess í stað útvistað þeim að mestu leyti til Bandaríkjanna. Raunar er það þó ekki rétt lýsing að ríkin hafi sofið á verðinum. Nærtækara er að segja að þau hafi flotið vakandi að feigðarósi.

Hafði ekki burði til þess að bregðast við innrásinni

Forystumenn innan Evrópusambandsins hafa ekki séð sér annað fært en að gangast við þessum hrópandi veruleika á undanförnum mánuðum, jafn óþægilegt og það hefur verið fyrir þá. Nú síðast í desember lýsti til að mynda Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, því yfir að sambandið hefði ekki haft burði til þess að bregðast sem skyldi við innrás rússneska hersins í Úkraínu og því orðið að treysta á Bandaríkjamenn.

Fram kom í ræðu sem Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, flutti 10. október á fundi með sendiherrum sambandsins að ríki þess hefðu útvistað öryggis- og varnarmálum sínum til Bandaríkjanna og reist efnahagslega velsæld sína á viðskiptum við Rússland og Kína. Áður hafði hann lýst því yfir í byrjun marz að ríkin hefðu fjármagnað hernað Rússa með áralöngum kaupum á rússneskri olíu og gasi.

Gætu ekki treyst á ESB í öryggis- og varnarmálum

Fögur fyrirheit forystumanna ríkja Evrópusambandsins frá því að innrásin í Úkraínu hófst fyrir tæpu ári síðan, um það að þau myndu nú loksins taka sig taki í öryggis- og varnarmálum og standa við skuldbindingar sínar gagnvart NATO, hafa til þessa litlu skilað. Hins vegar er ljóst að taka mun einhver ár fyrir ríkin að vinna upp vanrækslu liðinna ára og áratuga að því gefnu að gerðir muni í reynd fylgja orðum.

Helztu skrefin í þá átt til þessa hafa verið umsóknir Svíþjóðar og Finnlands um aðild að NATO en yfirlýst markmið þeirra með umsóknunum hefur verið að komast með afgerandi hætti undir verndarvæng Bandaríkjanna þar sem þau geti ekki treyst á Evrópusambandið, sem þau tilheyra bæði, þegar öryggis- og varnarmál eru annars vegar. Með öðrum orðum að útvista öryggis- og varnarmálum sínum til Bandaríkjamanna.

Verða væntanlega enn háðari Bandaríkjunum en áður

Himinn og haf er enda á milli þess sem Bandaríkin hafa lagt Úkraínumönnum til og Evrópusambandið og ríki þess. Fyrir vikið er ljóst að án stuðnings Bandaríkjamanna væri Úkraína fallin. Það sem ríki sambandsins hafa þó lagt Úkraínumönnum til hefur gengið verulega á vopnabúr þeirra sem mörg voru ekki beysin fyrir. Fyrir vikið er viðbúið að stríðið í Úkraínu muni gera þau enn háðari Bandaríkjunum en áður.

Vopnabúr hers Þýzkalands, forysturíkis Evrópusambandsins, er sérstaklega bágborið vegna mikils niðurskurðar á liðnum árum og áratugum. Þetta má lesa um í skýrslum hersins um ástand hans. Fjallað hefur verið um það í þýzkum fjölmiðlum að niðurskurðurinn hafi einkum verið réttlættur með því að engin þörf væri í raun fyrir eiginlegar varnir. Þýzka hernum hafi nánast verið haldið úti til málamynda.

Tal um inngöngu í ESB vegna öryggismála stenzt ekki

Tal um að Ísland þurfi að ganga í Evrópusambandið vegna öryggis- og varnarmála stenzt þannig alls enga skoðun fyrir utan annað sem innganga í það hefði í för með sér. Ekki sízt með tilliti til efnahagsöryggis samanber það uppnám sem orkuöryggi sambandsins hefur verið sett í með miklum kaupum á rússnesku gasi og olíu á liðnum árum. Lágmarkskrafan hlýtur að vera sú að það geti fyrst tryggt eigið öryggi.

Vert er að hafa í huga í þessum efnum að Ísland á þegar í varnarsamstarfi við nær öll ríki Evrópusambandsins í gegnum NATO. Hvernig sem á málið er litið er ljóst að öryggis- og varnarmál Íslands verða líkt og hingað til bezt tryggð með áframhaldandi aðild að NATO en þó einkum og sér í lagi varnarsamningnum við Bandaríkin enda eina vestræna ríkið sem hefur í reynd burði til þess að verja bæði sig sjálft og aðra.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 25. janúar 2023)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Ráðherraráð Evrópusambandsins)


Tengt efni:
„Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
Hlutleysi veitir enga vörn
Treysta ekki ESB í varnarmálum
Hverju ætti ESB að bæta við?
Háð bæði Kína og Rússlandi

HELZTU GREINAR


Meginvandinn er sjálft regluverkið

Talsvert hefur verið rætt á undanförnum árum um svonefnda gullhúðun við innleiðingu á lagagerðum frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum. Er þar vísað til þess þegar gerðir eru innleiddar hér á landi meira íþyngjandi en þær koma frá sambandinu. Um er að ræða mál sem full ástæða er til þess að taka föstum tökum en á sama tíma er ljóst að ekki er um að ræða meginvandann í þeim efnum.



Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi

Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast frá þingkosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári síðan samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana í kjölfar þess að nýr formaður, Kristrún Frostadóttir, tók við flokknum. Fylgið hefur þannig farið úr tæpum 10% í kosningunum í um 20%. Kannanir benda til þess að þar vegi þungt ákvörðun formannsins um það að setja stefnu flokksins um inngöngu í Evrópusambandið á ís.



Með hálfan þingmann á Alþingi

Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif innan sambandsins, fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana Evrópusambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Kæmi til þess að Ísland gengi í sambandið yrði landið fámennasta ríki þess og með vægi í samræmi við það.


Færslur

  • Minna svigrúm til viðskiptasamninga
  • Dvínandi eða vaxandi?
  • Dvínandi stuðningur við inngöngu í ESB
  • Flotið vakandi að feigðarósi
  • Tvennt hægt að gera við tillögurnar
  • Meginvandinn er sjálft regluverkið
  • Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi
  • „Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“
  • Með hálfan þingmann á Alþingi
  • Frelsið til þess að ráða eigin málum
  • Hlutleysi veitir enga vörn
  • Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
  • Viðreisn og báknið
  • Setur Viðreisn í vanda
  • Treysta ekki ESB í varnarmálum
  • Dönsk stjórnarskrá?
  • Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
  • Hverju ætti ESB að bæta við?
  • Pólitíski ómöguleikinn
  • Að virða niðurstöður kosninga
©2023 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb