Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Málið sem þolir ekki ljósið

Posted on September 5, 2024October 29, 2024 by Fullveldi

Fyrir einu og hálfu ári var reynt að keyra lagafrumvarp um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum gagnvart innlendri lagasetningu í gegnum Alþingi undir forystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Vonazt var til þess að málið vekti sem minnsta athygli. Það mistókst. Til stendur nú að reyna það aftur.

Verði frumvarpið, sem kennt er við bókun 35 við EES-samninginn, að lögum mun það leiða til þess að til verði ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem fyrir eru vegna almennrar lagasetningar, þar sem yngri lög ganga fyrir eldri og sértækari fyrir almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt að umrædd löggjöf feli í sér innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn.

Með öðrum orðum mun frumvarpið þýða í reynd, nái það fram að ganga, að regluverk frá Evrópusambandinu, sem innleitt hefur verið og verður innleitt í framtíðinni á meðan Ísland á aðild að EES, verði gert æðra annarri almennri lagasetningu hér á landi af þeirri einu ástæðu að það kemur frá Brussel. Öll önnur almenn lagasetning mun þar með lögum samkvæmt þurfa að taka mið af regluverki sambandsins.

Hvers vegna varð alger viðsnúningur?

Málið kom upp árið 2012 þegar Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) fór fram á það að íslenzk stjórnvöld útskýrðu hvernig bókun 35 hefði verið innleidd á Íslandi. Fimm árum síðar lýsti stofnunin yfir þeirri afstöðu sinni að ekki hefði verið staðið rétt að þeim málum við lögtekningu EES-samningsins 1993 þrátt fyrir að hafa ekki gert athugasemd við það í tæpa tvo áratugi en hún á að hafa eftirlit með framkvæmd samningsins.

Mikil samskipti áttu sér stað við ESA á þeim rúma áratug sem liðinn er síðan málið kom upp þar sem stjórnvöld vörðu þá leið sem farin var við innleiðingu bókunar 35 og höfnuðu alfarið og ítrekað kröfu ESA þegar hún kom fram. Meðal annars með þeim rökum að stofnunin hefði ekki gert nokkra athugasemd við innleiðinguna í tvo áratugi og að óásættanlegt hefði verið að standa að henni með öðrum hætti.

Frumvarp utanríkisráðherra var síðan lagt fram í lok marz 2023 þvert á fyrri málflutning stjórnvalda. Enn hefur engin skýring hefur verið gefin á þeim algera viðsnúningi þrátt fyrir að ítrekað hafi verið kallað eftir henni. Skilaboðin voru einungis þau að um formsatriði væri að ræða og jafnvel sigur. Hvers vegna haldið var þá uppi vörnum í málinu árum saman í stað þess að fallast strax á kröfu ESA er óútskýrt.

Hvað er það versta sem gæti gerzt?

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp, næði frumvarp utanríkisráðherra ekki fram að ganga og málið færi í kjölfarið fyrir EFTA-dómstólinn, væri sú að komizt yrði að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri samkvæmt EES-samningnum að verða við kröfu ESA. Með öðrum orðum það sem frumvarpið felur í sér! Um fyrirfram uppgjöf er að ræða án þess að látið sé allavega reyna á málið fyrst fyrir dómi.

Málið minnir fyrir vikið að ýmsu leyti á Icesave-málið á sínum tíma. Þannig hafði ESA til að mynda í því máli líkt og nú ekki gert nokkra athugasemd við innleiðingu á viðkomandi regluverki Evrópusambandsins hér á landi um langt árabil þegar stofnunin ákvað að gera mál út af því. Þá átti líkt og nú að gefast upp fyrirfram í stað þess að láta fyrst reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum þar sem Ísland hafði loks sigur.

Miklir fjárhagslegir hagsmunir voru í húfi í Icesave-málinu en málið snerist þó einungis um eina tiltekna löggjöf frá Evrópusambandinu. Tilskipun þess um innistæðutryggingar. Frumvarp utanríkisráðherra varðar hins vegar alla löggjöf sem hefur verið og mun verða tekin upp í gegnum EES-samninginn og gerir hana í reynd æðri annarri almennri lagasetningu af þeirri einu ástæðu að hún kemur frá sambandinu.

Má Sjálfstæðisflokkurinn við meiru?

Fullyrða má svo gott sem að Ísland hefði ekki orðið aðili að EES-samningnum fyrir 30 árum síðan ef litið hefði verið svo á að innleiða þyrfti bókun 35 við samninginn eins og reynt hefur verið af hálfu stjórnvalda og enn á að reyna. Bæði sé horft til umræðna á vettvangi stjórnmálanna á þeim tíma og á meðal lögspekinga. Hvernig staðið var að innleiðingunni var í raun ein helzta forsenda þess að af aðildinni varð.

Hugmyndir hafa verið uppi um að frumvarpið verði mögulega lagt fram að frumkvæði utanríkismálanefndar Alþingis sem þýddi að ráðherrann þyrfti ekki að gera það. Vafalaust yrði Þórdís Kolbrún fegin að vera laus við að leggja frumvarpið fram aftur þó málið heyrði eftir sem áður undir hana. Ekki sízt þar sem það er afar umdeilt á meðal okkar sjálfstæðismanna. Má Sjálfstæðisflokkurinn virkilega við meiru?

Hins vegar er leið út úr öllum þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara þegar þau semja um milliríkjaviðskipti og ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína umfangsmiklu viðskiptahagsmuni. Þar með talið Evrópusambandið. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum, felur hvorki í sér upptöku íþyngjandi regluverks né vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 5. september 2024)

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Milljarðar fyrir verri viðskiptakjör
„Vitum ekkert hvað við erum að gera“
Vilja ekki þurfa að verja EES
Mótleikur ESB vegna Icesave-málsins
Drögumst aftur úr vegna EES

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb