Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Farþegalistarnir duga skammt

Posted on March 14, 2024 by Fullveldi

Kallað hefur verið eftir því að öll flugfélög sem fljúgi til Íslands afhendi hérlendum yfirvöldum farþegalista í þágu bættrar löggæzlu á Keflavíkurflugvelli en nokkuð hefur vantað upp á afhendingu þeirra. Hins vegar má ljóst vera að takmarkað gagn sé í reynd að slíkum farþegalistum þegar flogið er til landsins frá öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins. Farþegalistar innihalda upplýsingar úr bókunarkerfum flugfélaga sem farþegar hafa látið þeim í té en innan svæðisins er ekki um að ræða upplýsingar staðfestar með vegabréfum.

„Farþegaupplýsingar (PNR) úr flugum innan Schengen innihalda ekki upplýsingar úr vegabréfum heldur aðeins bókunarkerfum flugfélaga. Það eru aðeins upplýsingar frá flugum utan Schengen (API) sem innihalda upplýsingar úr vegabréfum,“ segir í svari dómsmálaráðuneytisins við þeirri spurningu hvort þess sé krafizt að farþegalistar byggi á upplýsingum úr vegabréfum þegar flogið er til landsins frá öðrum ríkjum innan Schengen-svæðisins. Þess má geta að Evrópusambandið skilgreinir umrædda farþegalista sem „óstaðfestar upplýsingar“.

Með öðrum orðum er mögulegt að koma hingað til lands frá öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins án þess að gefa upp réttar upplýsingar. Þar á meðal nöfn enda hafa slík mál ítrekað komið upp hér á landi. Þeir, sem komizt hafa í kast við lögin og/eða hafa lögbrot í hyggju, eru eðli málsins samkvæmt líklegri en aðrir til þess að gefa upp rangar upplýsingar. Þá er ekki að ástæðulausu að brotamenn koma allajafna hingað til lands frá eða í gegnum önnur ríki innan svæðisins. Hefðbundið landamæraeftirlit er hér gagnvart ríkjum utan þess.

Hending að brotamenn séu stöðvaðir

Forsenda þess að Ísland gerðist aðili að Schengen-svæðinu fyrir tæpum aldarfjórðungi síðan, og felldi þar með niður hefðbundið landamæraeftirlit gagnvart öðrum aðildarríkjum þess, var sú að á móti yrði landamæraöryggi á ytri mörkum svæðisins tryggt. Hins vegar hefur sú aldrei verið raunin. Þetta á einkum við um suður- og austurhluta svæðisins þar sem víða hefur gengið illa að halda uppi viðunandi landamæragæzlu. Þegar einu sinni er komið inn á svæðið, löglega eða ólöglega, er hægt að ferðast skilríkjalaust innan þess.

Fram kom í viðtali Morgunblaðsins við Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóra á Suðurnesjum, 24. janúar að hending ein réði því hvort brotamenn væru stöðvaðir á landamærum Íslands að öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins þar sem hefðbundnu landamæraeftirliti væri ekki fyrir að fara gagnvart þeim eins og í tilfelli ríkja utan svæðisins þar sem farþegar þyrftu að framvísa vegabréfum. Þá ítrekaði hann fyrri ummæli sín í fjölmiðlum þar sem hann benti á það að ytri landamæri Schengen-svæðisins væru lek víða annars staðar en hér.

Vaxandi umræða hefur átt sér stað í aðildarríkjum Schengen-svæðisins um öryggi á ytri mörkum þess allt frá því að það kom til sögunnar. Hans Leijtens, nýr yfirmaður Frontex, landamærastofnunar Evrópusambandsins, lýsti því yfir nýverið að ómögulegt væri að koma í veg fyrir það að hægt væri að komast með ólögmætum hætti inn á svæðið. Hafa ófá ríki innan Schengen-svæðisins brugðist við þessari stöðu á undanförnum árum með því að grípa til tímabundins hefðbundins landamæraeftirlits gagnvart öðrum aðildarríkjum þess.

Sækjast eftir því að koma til landsins

„Færa má gild rök fyrir því að Ísland ætti að standa fyrir utan Schengen en landfræðileg staða landsins er með öðrum hætti en hjá öðrum Schengen-ríkjum þar sem landið er fjarri meginlandi Evrópu,“ sagði Úlfar í öðru viðtali við Morgunblaðið sem birtist í blaðinu 11. janúar. Sagðist hann hafa verulegar áhyggjur af umferð um innri landamæri Schengen-svæðisins hér á landi sem væru að hans sögn vegna fyrirkomulagsins innan svæðisins tiltölulega greiðfær fyrir brotamenn sem sæktust mjög eftir því að komast til landsins.

„Starf lögreglu og tollgæzlu á Keflavíkurflugvelli er gríðarlega mikilvægt en eins og kunnugt er höfum við ekki fullkomna stjórn á því hverjir koma til landsins vegna fyrirkomulags á innri landamærum Íslands [gagnvart öðrum aðildarríkjum Schengen] þar sem heimilt er að fara yfir landamæri Schengen-svæðisins án þess að landamæraeftirlit fari fram, án tillits til ríkisfangs einstaklings,“ sagði Úlfar einnig í viðtalinu við Morgunblaðið. Fyrir vikið væru helztu áskoranir lögreglunnar og tollgæzlunnar á innri landamærunum.

„Þannig að ég get auðvitað velt fyrir mér öryggi á ytri landamærum Schengen-ríkja annarra en okkar hér á Íslandi,“ sagði Úlfar við Ríkisútvarpið 26. október varðandi lek ytri landamæri Schengen-svæðisins. Fyrst og fremst mætti þakka frumkvæðis- og greiningarvinnu lögreglunnar og tollsins þann árangur sem eftir sem áður hefði náðst við að stöðva brotamenn á innri landamærunum. Minnst af upplýsingunum kæmi hins vegar úr upplýsingakerfi Schengen sem hefur verið sagt helzti kosturinn við aðildina að svæðinu.

Meginforsendan fyrir löngu brostin

Heyrzt hefur í umræðunni að auðvelt ætti að vera að hafa eftirlit með komum til landsins í ljósi þess að þær séu langflestar í gegnum eitt hlið, Keflavíkurflugvöll. Hins vegar er eðli málsins samkvæmt takmarkað gagn að einu hliði gagnvart öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins þegar lítið sem ekkert eftirlit er með því. Varðandi mögulegar betrumbætur á eftirliti með ytri mörkum svæðisins hafa hugmyndir Evrópusambandsins í þeim efnum aðallega snúizt um það að sambandið taki yfir eftirlitið. Þar á meðal hér á landi.

Vert er að hafa í huga í þessu sambandi að viðurkenningu á því að hefðbundið landamæraeftirlit sé ávísun á öruggari landamæri er beinlínis að finna í sjálfu Schengen-fyrirkomulaginu. Þannig er heimilt samkvæmt fyrirkomulaginu að taka tímabundið upp hefðbundið eftirlit gagnvart öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins þegar hætta er talin á ferðum. Þá var forsenda þess að talið var óhætt að fella slíkt eftirlit niður innan svæðisins sú að það yrði tryggt á ytri landamærunum. Þó að sú hafi að vísu aldrei verið raunin.

Meginforsendan fyrir aðild Íslands að Schengen-svæðinu hefur þannig í raun aldrei verið uppfyllt á þeim tæpa aldarfjórðungi sem landið hefur verið aðili að svæðinu og bendir fátt ef eitthvað til þess að breyting eigi eftir að verða á í þeim efnum. Hafa má í huga í þessu sambandi að bæði Bretar og Írar kusu að standa utan svæðisins af þeirri meginástæðu að um eyþjóðir er að ræða líkt og okkur Íslendinga. Með aðildinni að Schengen-svæðinu var því öryggi sem felst í náttúrulegum landamærum Íslands að verulegu leyti fórnað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 14. marz 2024)

(Ljósmynd: Farþegaþotur þýzka flugfélagsins Lufthansa. Eigandi: Kasevutzki)


Tengt efni:
Vanræktar varnir Evrópuríkja
Minnast ekki á lokamarkmiðið
Flotið vakandi að feigðarósi
Hornsteinn NATO á norðurslóðum
Vaxandi mikilvægi Íslands í varnarmálum

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb