Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Stenzt ekki stjórnarskrána

Posted on October 7, 2024October 22, 2024 by Fullveldi

Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem kennt er við bókun 35 við EES-samninginn og snýst um það að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn gangi framar innlendri löggjöf, stenzt ekki stjórnarskrá lýðveldisins. Deginum ljósara er að svo er ekki þó reynt hafi verið að þyrla upp lögfræðilegu ryki og halda öðru fram.

Verði frumvarp Þórdísar að lögum verður til ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar eru fyrir hendi hér á landi þegar almenn lagasetning er annars vegar, þar sem yngri lög ganga fyrir þeim sem eldri eru og sértækari lög fyrir almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt og aðeins eitt að um sé að ræða innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn.

Með frumvarpinu stendur til að breyta því fyrirkomulagi sem notazt var við varðandi innleiðingu bókunar 35 þegar EES-samningurinn var lögfestur fyrir rúmum 30 árum síðan sem var ætlað að sjá til þess að málið bryti ekki í bága við stjórnarskrána. Ófáir lögspekingar hafa bent á það að bókunin standist ekki stjórnarskrána þar sem hún kveði á um framsal löggjafarvalds sem sé ekki heimilt samkvæmt henni.

Var ekki mögulegt að ganga lengra

Til að mynda má nefna skrif Markúsar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, í afmælisriti EFTA-dómstólsins árið 2014 þar sem hann benti á að einföld ástæða væri fyrir því að bókun 35 hefði verið innleidd með þeim hætti sem raunin varð, með 3. grein laga um Evrópska efnahagssvæðið, þó hvergi væri þar minnst á forgang regluverks. Bókun 35 sem slík bryti einfaldlega í bága við stjórnarskrána.

„Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf,“ segir þannig.

„Með öðrum orðum gerir stjórnarskráin ekki ráð fyrir því að árekstur á milli ákvæða almennra laga verði leystur með öðrum hætti en beitingu viðurkenndra lögskýringarreglna og veitir löggjafanum hvorki vald né svigrúm til þess að veita tilteknum almennum lögum alfarið forgang gagnvart öðrum.“ Ólíkt gildandi forgangsreglum myndi nýja reglan ná til tiltekinna laga en ekki einungis aldurs og eðlis þeirra óháð uppruna.

Telur nú farið gegn stjórnarskránni

Margir aðrir lögspekingar hafa sem fyrr segir lýst sömu eða hliðstæðum sjónarmiðum í gegnum tíðina. Þar á meðal Stefán Már Stefánsson lagaprófessor sem var einn þeirra sem sátu í nefnd lögspekinga sem falið var að leggja mat á það hvort EES-samningurinn stæðist stjórnarskrána áður en hann var lögfestur. Taldi nefndin svo vera en með þeirri leið sem farin var við innleiðingu bókunar 35 við samninginn.

Fyrrgreind nefnd var skipuð af þáverandi utanríkisráðherra, Jóni Baldvini Hannibalssyni, og var skipunin gagnrýnd fyrir það að nefndin hefði verið handvalin af ráðherranum með tilliti til afstöðu nefndarmanna til málsins. Ýmsir aðrir lögspekingar voru á öndverðum meiði líkt og Björn Þ. Guðmundsson, lagaprófessor og sérfræðingur í stjórnsýslurétti, og Guðmundur Alfreðsson, sérfræðingur í þjóðarétti.

Hins vegar hefur Stefán Már lýst því yfir að EES-samningurinn hafi i upphafi verið talinn á mörkum þess að standast stjórnarskrána. Til dæmis í samtali við mbl.is 23. september 2016. Síðan hefði sífellt fleira bætzt við. Hefur hann ítrekað lýst því yfir að framsal valds í gegnum samninginn rúmaðist fyrir vikið ekki lengur innan stjórnarskrárinnar. Sama á við um Björgu Thorarensen, núverandi hæstaréttardómara.

Viðsnúningur með nýjum ráðherra?

Farin hefur verið sama leið hjá stjórnvöldum í dag í tengslum við bókun 35. Vitnað er einungis til handvalinna lögspekinga sem hliðhollir eru málstað Þórdísar og því síðan haldið fram að helztu lögspekingar landsins séu einróma í afstöðu sinni til málsins. Þó langur vegur sé frá því. Síðast heyrðum við slíkt frá þáverandi vinstristjórn vegna Icesave-málsins. Slík framganga er ekki beinlínis til marks um góðan málstað.

Við þetta má bæta að fram kom meðal annars í minnisblaði utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar Alþingis árið 2020 að lagabreyting, líkt og frumvarpið kveður á um, væri tæplega möguleg án veigamikillar stjórnarskrárbreytingar. Þórdís varð utanríkisráðherra eftir þingkosningarnar árið eftir sem virðist vera ástæðan fyrir þeim óútskýrða viðsnúningi sem varð í kjölfarið í afstöðu stjórnvalda til málsins.

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp næði frumvarpið ekki fram að ganga og málið færi í kjölfarið mögulega fyrir EFTA-dómstólinn er sú að verða yrði við kröfunni um forgang löggjafar frá Evrópusambandinu. Sama og frumvarp Þórdísar felur í sér! Fremur en að fórna stjórnarflokknum á altari þessa máls á kosningavetri er eina vitið að láta reyna á það fyrir dómstólnum í stað þess að gefast upp fyrirfram.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 7. október 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Stærra mál en Icesave og þriðji orkupakkinn
Hljómar kunnuglega ekki satt?
Hvað segir það um málstaðinn?
Fást engin svör
Tvöfalt fleiri andvígir en hlynntir

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb