Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Skrópað á Alþingi

Posted on November 30, 2024 by Fullveldi

Tveir þingflokkar skera sig úr þegar kemur að fjarveru þingmanna í atkvæðagreiðslum á yfirstandandi þingi. Þegar teknar eru mikilvægustu ákvarðanirnar á vettvangi þess. Þingflokkar Miðflokksins og Viðreisnar. Þannig var fjarvera þingmanna Miðflokksins í atkvæðagreiðslum að meðaltali í 68,7% tilfella og Viðreisnar í rúmlega 51%. Þingmenn annarra flokka hafa að meðaltali mætt í meirihluta atkvæðagreiðslna.

Miðflokksmenn hafa vísað til smæðar þingflokks þeirra sem skýringar á dræmri mætingu þingmanna þeirra en lengst af taldi hann einungis tvo þingmenn þar til Jakob Frímann Magnússon yfirgaf Flokk fólksins á dögunum og gekk til liðs við þá. Vafalaust skýrir það eitthvað en vitanlega alls ekki alla þá fjarveru sem um er að ræða. Hins vegar er þingflokkur Viðreisnar talsvert fjölmennari og telur þannig fimm þingmenn.

Forysta Viðreisnar hefur einnig borið við fámenni sem stenzt hins vegar enga skoðun. Þingflokkur Pírata með sex þingmenn hefur þannig til dæmis mætt miklu betur. Hvers vegna hefur þingflokkur Viðreisnar, sem allur sækist notabene eftir endurkjöri, ekki getað gert betur? Hvað hefur hann verið að gera mikilvægara í öllum þessum tilfellum en að taka þátt í atkvæðagreiðslum um það hvaða lög eigi að gilda í landinu?

Mættu í eitt skipti og alls ekki

Formenn Miðflokksins og Viðreisnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, skera sig einnig úr þegar kemur að persónulegri mætingu þeirra í atkvæðagreiðslur. Þannig var Sigmundur fjarverandi í öllum þeim 162 atkvæðagreiðslum sem fram hafa farið á yfirstandandi þingi og Þorgerður Katrín í öllum nema einni. Hlutfallslega var Sigmundur þannig fjarverandi í 100% tilfella og Þorgerður í 99,4%.

Hægt er að vera annað hvort skráður fjarverandi á Alþingi eða með tilkynnta fjarvist þar sem viðkomandi þingmaður hefur látið skrifstofu þingsins vita af fjarveru sinni. Fjarverandi þýðir hins vegar í raun það sem iðulega er kallað skróp í skólum. Fólk lætur einfaldlega ekki sjá sig. Hvað Sigmund og Þorgerði varðar voru þau fjarverandi í öllum þeim tilfellum sem þau mættu ekki til atkvæðagreiðslu í þingsalnum.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, kom næst af þeim sem sækjast eftir endurkjöri og mætti ekki í 81,5% atkvæðagreiðslna og þá Logi Einarsson, þingmaður flokksins, með 80,3%. Í flestum tilfellum voru þau með tilkynnta fjarvist en mættu engu að síður ekki. Þá komu Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, með 79,6% fjarveru og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, með 79%.

Þingmenn mæti í vinnuna sína

Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og einn þingmaður Flokks fólksins hafa mætt í allar atkvæðagreiðslur á þinginu af þeim sem sækjast eftir endurkjöri, þau Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir og Guðmundur Ingi Kristinsson. Tólf aðrir í þeim hópi eru með yfir 90% mætingu. Þar af fjórir frá Sjálfstæðisflokknum, fjórir frá Framsóknarflokknum, tveir frá Vinstri-grænum og einn frá Pírötum og Samfylkingunni.

Vitanlega geta ýmsar ástæður verið fyrir því að þingmenn taki ekki þátt í atkvæðagreiðslum. Til að mynda hafa þeir sitthvað annað að gera í störfum sínum þó færa megi gild rök fyrir því sem áður segir að atkvæðagreiðslur í þingsal feli allajafna í sér mikilvægustu ákvarðanir þess. Þá getur verið um persónulegar ástæður að ræða. Hins vegar hefur fjarvera ýmissra þingmanna verið slík að það verður illa skýrt með þeim hætti.

Væntanlega getum við verið sammála um það, óháð því hvernig við munum nýta atkvæðisrétt okkar í þingkosningunum í dag, að við séum að kjósa fólk á þing til þess að sinna störfum sínum af kostgæfni fyrir okkar hönd. Það hlýtur að teljast sem einhvers konar lágmarkskrafa að þingmenn mæti í vinnuna í stað þess að hreinlega skrópa margítrekað. Hvort slíkt kalli á endurráðningu er í höndum kjósenda.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 30. nóvember 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Hefðu getað minnkað verðbólguna
Hægt með krónunni?
Forðast að tala um meginstefnuna
Verðbólga í boði Viðreisnar
Frjálslynd Viðreisn?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb