Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Frelsið til þess að ráða eigin málum

Posted on December 1, 2022 by Fullveldi

Við minnumst þess í dag að 104 ár eru liðin frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Þann 1. desember 1918 endurheimtu Íslendingar loks frelsi sitt eftir að hafa lotið stjórn erlendra ríkja í rúmlega sex og hálfa öld. Þetta var uppskera frelsisbaráttu þjóðarinnar sem háð hafði verið áratugina á undan. Þann 17. júní 1944 varð Ísland síðan lýðveldi þegar konungssambandi landsins við Danmörku var formlega slitið.

Fjölmörg dæmi eru um það í sögu Íslands síðustu hundrað árin hvernig fullveldið, frelsið til þess að ráða eigin málum, hefur skipt sköpum fyrir hagsmuni þjóðarinnar. Bæði stór og smá. Landhelgisdeilurnar á síðari hluta 20. aldarinnar eru þar eðlilega áberandi. Efnahagslögsagan hefði ekki ítrekað verið færð út þar til hún náði 200 mílum ef valdið til þess hefði ekki verið innanlands. Þar var fullveldið í lykilhlutverki.

Þó vitað sé að Bandaríkin þrýstu á brezka ráðamenn að koma til móts við íslenzk stjórnvöld í þorskastríðunum svonefndum, vegna áhyggja af því að annars gæti Ísland yfirgefið NATO, er ljóst að án frumkvæðis íslenzkra ráðamanna hefði efnahagslögsagan seint verið færð út. Ísland var enda í ákveðnu forystuhlutverki í þeirri þróun sem leiddi að lokum til þess að 200 mílna lögsögur urðu hluti af alþjóðlegum hafrétti.

Sigur í Icesave þrátt fyrir regluverk ESB

Við hefðum að sama skapi ekki haft sigur í Icesave-deilunni við brezk og hollenzk stjórnvöld ef ekki fyrir fullveldið. Hefði Ísland verið innan Evrópusambandsins má ljóst vera að okkur hefði verið gert að ábyrgjast Icesave-skuldir Landsbanka Íslands líkt og írskum og grískum skattgreiðendum var gert að axla ábyrgð á skuldum þarlendra lánastofnana einkum vegna hagsmuna franskra og þýzkra banka.

Fullyrðingar um að regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum aðildina að EES-samningnum hafi tryggt Íslandi sigur taka hvorki mið af því að Icesave-deilan byggðist á gallaðri tilskipun sambandsins um innistæðutryggingar né því að regluverk þess gerði útrás íslenzku bankanna mögulega eins og staðið var að henni. Þá ekki sízt stofnun útibúa frá starfsemi þeirra á Íslandi í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Vert er einnig að hafa í huga í þeim efnum að Evrópusambandið studdi brezk og hollenzk stjórnvöld í Icesave-deilunni og tók þátt í málarekstri Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum sem að lokum úrskurðaði Íslendingum í vil. Taldar eru allar líkur á því að dómstóll sambandsins hefði komizt að annarri niðurstöðu og hefði slíkt fordæmi legið fyrir hefði EFTA-dómstóllinn orðið að taka mið af því.

„Írland er aðeins lítill fiskur í þessari tjörn“

Makríldeilan, sem hófst í kjölfar þess að makríll hóf að leita í stórauknum mæli inn í íslenzku efnahagslögsöguna í leit að æti, var ekki síður lýsandi fyrir mikilvægi fullveldisins. Innan Evrópusambandsins er ljóst miðað við áherzlur þess að sambandið hefði ekki úthlutað Íslandi neinum makrílkvóta en með inngöngu í Evrópusambandið framselja ríki vald sitt til þess að fara með yfirstjórn sjávarútvegsmála sinna til þess.

Þrátt fyrir ríka hagsmuni af makrílveiðum hafa til að mynda Írar, sem eitt af ríkjum Evrópusambandsins, ekki átt beina aðkomu að deilunni ólíkt Færeyingum sem þó eru ekki fullvalda ríki en fara með eigin sjávarútvegsmál í krafti heimastjórnar sinnar. Þess í stað er valdið í þeim efnum í höndum sambandsins sem í krafti þess samdi að lokum við Noreg og Færeyjar um veiðiheimildir þvert á vilja írskra stjórnvalda.

Martin Howley, einn af forystumönnum írskra sjómanna, sagði í samtali við fjölmiðla að þrátt fyrir að ríkisstjórn Írlands hefði barist af hörku gegn samkomulaginu hefði hún orðið undir enda snerist málið um atkvæði á vettvangi Evrópusambandsins og stóru ríkin innan sambandsins hefðu ekki haft áhuga á að verja hagsmuni Írlands í deilunni. „Írland er aðeins lítill fiskur í þessari tjörn. Við áttum aldrei möguleika.“

Vægi ríkja innan ESB fer eftir íbúafjölda

Fjölmörg dæmi má finna um það hvernig ríki innan Evrópusambandsins, einkum þau sem fámennari eru, hafa orðið undir í atkvæðagreiðslum á vettvangi þess. Þar á meðal um ýmis mál sem varðað hafa ríka þjóðarhagsmuni eins og í tilfelli Írlands í makríldeilunni. Innan sambandsins fer vægi ríkja fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem þau eru því minni möguleika eiga þau á því að hafa áhrif innan stofnana þess.

Þrátt fyrir að hafa verið eitt af fjölmennustu ríkjum Evrópusambandsins hafa rannsóknir sýnt að Bretland stóð iðulega frammi fyrir því að ákvarðanir væru teknar á vettvangi þess þvert á hagsmuni landsins áður en það gekk úr sambandinu. Ástæðan er ekki sízt sú að Bretar höfðu oft sérstakra hagsmuna að gæta sem fóru ekki saman við hagsmuni margra annarra ríkja innan Evrópusambandsins sem leiddi ekki sízt til útgöngunnar.

Bretland hafði í krafti íbúafjölda síns margfalt það vægi innan Evrópusambandsins sem Ísland hefði væri landið þar innanborðs. Vægi Írland er að sama skapi miklu meira innan þess. Það hefur þó ekki dugað til þess að verja hagsmuni þeirra. Við þetta bætist að einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins við ákvarðanatöku innan þess heyrir nánast sögunni til sem komið hefur sér sérstaklega illa fyrir fámennari ríki sambandsins.

Baráttunni fyrir frelsinu lýkur aldrei

Fullveldið er þannig algert grundvallarfrelsi fyrir hverja þjóð. Forsenda þess að taka megi ákvarðanir um málefni Íslendinga er að valdið til þess sé hér innanlands í höndum íslenzkra kjósenda í gegnum kjörna fulltrúa þeirra eða bindandi þjóðaratkvæðagreiðslur. Þeir sem vilja Ísland undir yfirstjórn annarra hafa fyrir vikið eðlilega haft horn í síðu fullveldisins og lagt sig fram við það að kasta sem allra mestri rýrð á mikilvægi þess.

Vert er að hafa í huga í þessu sambandi náin tengsl fullveldisins og lýðræðisins. Þannig má spyrja sig að því hvaða máli íslenzkt lýðræði skipti í raun ef valdið til þess að stjórna Íslandi væri að meira eða minna leyti komið úr landi í hendur einstaklinga og stofnana sem bæru enga lýðræðilega ábyrgð gagnvart íslenzku þjóðinni? Forsenda lýðræðisins er að valdið til þess að taka ákvarðanir um stjórn landsins sé í höndum íslenzkra kjósenda.

Frelsisbaráttu lýkur í raun aldrei enda verða þeir alltaf til sem vilja skerða frelsi annarra. Hið sama á við um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Henni lauk í reynd hvorki með fullveldinu árið 1918 né með stofnun lýðveldisins 1944. Fram að 1918 snerist baráttan um það að endurheimta fullveldið en eftir það hefur hún fyrst og fremst snúizt um það að standa vörð um það sem ávannst og sjá til þess að það glatist aldrei aftur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 1. desember 2022)

(Ljósmynd: Fánaborg íslenzkra fána. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða?
Hindrar EES fríverzlun við Bandaríkin?
Stjórnsýslan kvartar undan flóknu regluverki
Kvartað yfir klofinni ríkisstjórn
Stefnt að einu ríki frá upphafi

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb