Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Fór út fyrir umboð sitt

Posted on August 21, 2024October 29, 2024 by Fullveldi

Haustið 2012 fór fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt var hvort vilji væri fyrir því að tillögur stjórnlagaráðs yrðu „lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“. Var það samþykkt með atkvæðum tæplega 31% kjósenda á kjörskrá en kjörsókn var einungis 48,4%. Frumvarpið var í kjölfarið lagt fram á Alþingi en náði hins vegar ekki fram að ganga áður en þingkosningar fóru fram næsta vor.

Fyrir kosningarnar var tekizt harkalega á um málið á Alþingi. Niðurstaða þeirra varð hins vegar sú að þeir tveir flokkar sem beittu sér gegn því að stjórnarskrá lýðveldisins yrði skipt úr fyrir aðra byggðri á tillögum stjórnlagaráðs. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, fengu meirihluta þingsæta og mynduðu í kjölfarið ríkisstjórn. Ólíkt þjóðaratkvæðinu var kjörsókn í þingkosningunum 81,4%.

Fátt ef eitthvað er til marks um það að sérstakur áhugi sé á því hjá íslenzku þjóðinni að skipta stjórnarskrá lýðveldisins út fyrir aðra. Þvert á móti bendir flest til þess að kjósendur hafi í bezta falli takmarkaðan áhuga á málinu. Ekki sízt fylgi flokka hlynntum því að skipta um stjórnarskrá. Nú síðast stórjókst fylgi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum meðal annars eftir að flokkurinn lagði áherzlu á málið á hilluna.

Kjósendur upplýstir um leikreglurnar

Talsmenn þess að skipt verði um stjórnarskrá halda gjarnan á lofti þeirri sögufölsun að samþykkt hafi verið í þjóðaratkvæðinu að tillögur stjórnlagaráðs skyldu lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá en ekki frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Þar á milli er eðli málsins samkvæmt grundvallarmunur. Veruleikinn er sá að þjóðaratkvæðið var í reynd uppfyllt enda var frumvarpið lagt fram. Það var hins vegar ekki samþykkt.

Tekið var fram á kjörseðlinum og í kynningarefni sem sent var til kjósenda í aðdraganda þjóðaratkvæðisins að Alþingi ætti síðasta orðið um það hvort og að hvaða marki breytingar yrðu gerðar á stjórnarskránni í samræmi við stjórnskipun landsins. Enn fremur að þjóðaratkvæðið væri lögum samkvæmt ráðgefandi, þingið gæti ekki framselt löggjafarvald sitt og þingmenn væru aðeins bundnir af sannfæringu sinni.

Tal sömu aðila um það að Alþingi ráði ekki við stjórnarskrárbreytingar er óneitanlega nokkuð sérstakt í ljósi þess að í tillögum stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir lykilhlutverki þingsins við slíkar breytingar. Þannig segir í 113. grein tillagnanna um stjórnarskrárbreytingar að samþykki Alþingi frumvarp um breytingar á stjórnarskrá skuli bera það undir kjósendur. Forsendan er þannig sem fyrr frumkvæði þingsins í þeim efnum.

Tvennt hægt að gera við tillögurnar

Mikilvægt er annars að hafa í huga í þessu sambandi að stjórnlagaráði var aldrei falið að semja nýja stjórnarskrá og hafði fyrir vikið ekkert umboð til þess. Ráðið fékk þannig einungis það verkefni að „gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“ eins og fram kemur í þingsályktun Alþingis um skipun þess. Hins vegar tók ráðið sér það vald að semja frumvarp að nýrri stjórnarskrá í trássi við umboð sitt.

Tvennt er hægt að gera við tillögur stjórnlagaráðs með tilliti til umboðs ráðsins og þeirra forsendna sem lágu til grundvallar ráðgefandi þjóðaratkvæðinu. Annað hvort að líta á tillögurnar eins og þær voru alltaf hugsaðar, sem innlegg í þá vinnu að gera breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins þar sem þess er talin þörf, eða að hafa þær einfaldlega að engu þar sem umrædd vinna var ekki í samræmi við umboð ráðsins.

Stefna stjórnvalda, um að gerðar verði þær breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins sem talin er þörf á í sem breiðastri sátt og með hliðsjón af þeirri vinnu sem fram hefur farið í þeim efnum, er ekki aðeins í hæsta máta lýðræðisleg heldur í fullu samræmi bæði við þingsályktun Alþingis um skipun stjórnlagaráðs sem og þær forsendur sem lágu til grundvallar ráðgefandi þjóðaratkvæðinu um tillögur ráðsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 21. ágúst 2024)

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Krafa þjóðarinnar?
Tvennt hægt að gera við tillögurnar
Dönsk stjórnarskrá?
Að virða niðurstöður kosninga
„Þetta vill meirihluti þjóðarinnar!“

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb